Fréttablaðið - 23.02.2013, Síða 52
| ATVINNA |
Lögmenn Lækjargötu óska eftir lögfræðingi til
starfa við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Fullnaðarpróf í lögfræði.
• Framhaldsnám á sviði lögfræði og lögmanns-
réttindi eru kostur.
• Reynsla af lögfræðistörfum sem tengjast
fjármálamörkuðum er einnig kostur.
• Frumkvæði, nákvæmni og metnaður í starfi.
Umsóknir skal senda á netfangið:
logmenn@laekjargata.is.
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2013.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Lögfræðingur
Lögmenn Lækjargötu bjóða upp á trausta, alhliða lögfræði-
þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Eigendur lögmannsstofunnar eru:
Birgir Tjörvi Pétursson hdl., Guðmundur H. Pétursson hdl.,
Ingvi Hrafn Óskarsson hdl., Reimar Pétursson hrl. og
Sigurður Kári Kristjánsson hdl.
Lögmenn Lækjargötu ehf. | Lækjargötu 2 | 101 Reykjavík
Sími 512 1220 | www.laekjargata.is
Verka- og vélamaður í Þjónustu-
miðstöð Hafnarfjarðarbæjar
Umhverfi og framkvæmdir hjá Hafnarfjarðarbæ óska eftir
að ráða starfsmann til starfa frá og með 1. maí n.k.
Starfsmaðurinn skal hafa meirapróf og grunnnámskeið
vinnuvéla (stóra námskeiðið), einnig að hafa reynslu af
tækjavinnu og almennum verkamannastörfum. Hluti af
verksviði starfsmannsins er þátttaka í bakvaktarkerfi
bæjarins.
Starfslýsingu fyrir starfið má finna á heimasíðu bæjarins
undir Auglýsingar/ Verka- og vélamaður í Þjónustu-
miðstöð Hafnarfjarðarbæjar.
Launakjör og taxtar eru samkvæmt kjarasamningi við
Hafnarfjarðarbæ.
Umsóknarfrestur um starfið er til 20. mars n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Björn Bögeskov
Hilmarsson yfirmaður Þjónustumiðstöðvar í síma
585-5670 eða í gegnum netfangið boddi@hafnarfjordur.is
Bjarmi
Á ungbarnaleikskólanum Bjarma í Hafnarfirði eru
tvær lausar stöður leikskólakennara frá 8. ágúst
2013. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2013.
Okkur vantar hugmyndaríka og skapandi einstaklinga, sem
líta lífið björtum augum og líta á áskoranir sem tækifæri til
að þroskast.
Á Bjarma er unnið með fljótandi námskrá og dagskipulag,
stöðvavinnu, teymisvinnu, dreifða ábyrgð og forystu.
Hægt er að sækja um starfið á netfangið bjargir@gmail.com
eða á heimasíðu skólans www.leikskolinn.is/bjarmi
Nánari upplýsingar veitir Svava í síma 512 3330 og 695 3089
Vélskömmtun lyfja
Lyfjaver ehf óskar eftir að ráða starfsmann til framtíðar-
starfa við vélskömmtun lyfja. Viðkomandi þarf að vera
heilsuhraustur, snyrtilegur, reglusamur, nákvæmur og
samviskusamur og hafa hreint sakavottorð. Æskilegt er
að viðkomandi hafi náð a.m.k. 25 ára aldri.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið
alli@lyfjaver.is fyrir 1. mars n.k.
Bílaþvottastöðin Lindin Bæjarlind 2
óskar eftir starfsmanni í fullt starf.
Um er að ræða starf við bílaþvottastöð og bónstöð.
Viðkomandi þarf að vera harðduglegur, stundvís,
heiðarlegur, vandvirkur og með mikla þjónustulund.
Krafist er hreins sakavottorðs og reglumennsku.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bílpróf.
Umsókn og ferilskrá sendist á robertmar@simnet.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars.
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
Við leitum að fólki í sumarstörf á tímabilinu
15. maí til 1. september, eða eftir samkomulagi.
Starfsmenn óskast á eftirtalda vinnustaði:
Ker- og steypuskáli. Aðallega er unnið á
þrískiptum vöktum og þurfa starfsmenn að
standast lyftarapróf áður en starf hefst, hafi
þeir ekki réttindi.
Skautsmiðja. Unnið er á tvískiptum vöktum
og þurfa starfsmenn að standast lyftarapróf
áður en starf hefst, hafi þeir ekki réttindi.
Hafnarvinna. Unnið er í dagvinnu og þurfa
starfsmenn að skila inn hreinu sakavottorði
og standast lyftarapróf, hafi þeir ekki réttindi.
Mötuneyti. Meðal annars er leitað eftir mat-
reiðslumanni.
Öryggisvarsla. Unnið er á þrískiptum
vöktum og þurfa starfsmenn að skila inn
hreinu sakavottorði.
Birgðahald og innkaup. Unnið er í dagvinnu.
Rannsóknarstofa. Unnið er á tvískiptum
vöktum.
Efnisvinnsla. Unnið er á tvískiptum vöktum
og þurfa starfsmenn að standast lyftarapróf
áður en starf hefst, hafi þeir ekki réttindi.
Iðnaðarmenn. Óskað er eftir iðnaðarmönn-
um í dagvinnu á verkstæðum. Starfsmenn
þurfa að hafa iðnréttindi og sérstök athygli
er vakin á því að iðnnemar koma jafnframt
til greina.
Ýmsir aðrir vinnustaðir.
Á flestum vinnustöðum ISAL er bæði
dagvinna og vaktavinna í boði.
Allt nýtt starfsfólk:
» Þarf að vera orðið 18 ára eða verða það
á árinu.
» Þarf að gangast undir læknisskoðun og
standast lyfjapróf áður en það hefur störf.
Lögð er rík áhersla á öryggismál starfs-
manna og er markviss þjálfun í upphafi
starfstíma.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að
sækja um á heimasíðu okkar riotintoalcan.is
þar sem jafnframt eru nánari upplýsingar.
Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. er þekkingarfyrirtæki sem rekur álver í Straumsvík. Við bjóðum upp á margbreytileg
störf þar sem hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna gegnir lykilhlutverki. Við leggjum áherslu á markvisst
fræðslustarf, frammistöðuhvetjandi starfsumhverfi og gott upplýsingaflæði ásamt tækifærum til starfsþróunar.
Við setjum umhverfis-, öryggis-, og heilbrigðismál í öndvegi og vinnum stöðugt að umbótum á verkferlum og
vinnuaðferðum. Við leggjum áherslu á að starfa í góðri sátt við umhverfið og samfélagið sem við erum hluti af.
Sumarstörf í Straumsvík
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR6