Fréttablaðið - 23.02.2013, Side 63
| ATVINNA |
Ný útboð í auglýsingu hjá
Reykjavíkurborg:
• Skarhólabraut 1, Mosfellsbæ, slökkvistöð –
nýbygging - Útboð nr. 12941.
• RFID self-service automats, RFID tags, RFID
staff workstations and RFID security gates
– Útboð nr. 12966.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Innkaupadeild
Verktakar
Stolt Sea Farm (www.stoltseafarm.com), alþjóðlegt
fiskeldis fyrirtæki sem stendur að framkvæmdum við
byggingu á fiskeldisstöð fyrir flúru við Reykjanesvirkjun,
tilkynnir eftirfarandi;
Vegna áframhaldandi framkvæmda býður fyrirtækið
þeim verktakafyrirtækjum sem áhuga hefðu á aðkomu að
verkefninu að skrá sig í gagnabanka fyrirtækisins með
því að senda ítarlegar upplýsingar um sig og unnin verk á
netfangið ssficeland@stolt.com.
Trúnaður verður bundinn í umræddum gagnabanka og fylgt
fyrirmælum persónuverndar.
ALÞJÓÐLEGIR
FRIÐARSTYRKIR
RÓTARÝHREYFINGARINNAR
2014-2016
Rótarýsjóðurinn, ROTARY FOUNDATION, sem rekinn
er af Alþjóða Rótarýhreyfingunni, mun veita allt að 60
styrki til tveggja ára meistaranáms skólaárin 2014-
2016. Styrkirnir verða veittir til náms og rannsókna
sem tengjast alþjóðasamstarfi og eflingu friðar í he-
iminum og eru ætlaðir fólki sem þegar hefur reynslu
af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu háskóla-
gráðu.
Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á samvinnu
við sex virta háskóla:
• Chulalongkorn University , Bangkok, Thailand
• Duke University and University of North Carolina at
Chapel Hill , USA
• International Christian University , Tokyo, Japan
• University of Bradford , West Yorkshire, England
• University of Queensland , Brisbane, Australia
• Uppsala University , Uppsala, Sweden
Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára
námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnisstyrkir.
Rótarýhreyfingin á Íslandi má senda eina umsókn. Val
íslenska umsækjandans fer fram eftir ítarleg viðtöl og
könnun á námsferli og störfum. Makar, afkomendur
og makar afkomenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki
sótt um styrkinn. Tíu Íslendingar hafa fengið friðar-
styrki frá því þeir voru fyrst veittir árið 2002.
Nánari upplýsingar um námið, háskólana og um-
sóknarskilmála er að finna á heimasíðu Rotary
International: http://www.rotary.org/EN/STUDENT-
SANDYOUTH/EDUCATIONALPROGRAMS/ROTARYC-
ENTERSFORINTERNATIONALSTUDIES/Pages/How-
ToApply.aspx . Umsóknareyðublaðið er að finna undir
World peace fellowship. Einnig má nálgast upplýsingar
á skrifstofu Rótarýumdæmisins (rotary@rotary.is).
Sími 568-2233 (eða í síma 525-4818).
Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru beðnir
um að senda ítarlegt æviágrip og lýsingu á mark-
miði með framhaldsnámi fyrir 21. apríl til Skrifstofu
Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108
Reykjavík, merkt „Friðarstyrkur“.
„Amma“ Óskast
Fjögurra manna fjölskylda í 101 Reykjavík óskar eftir „ömmu“
eða ráðskonu. Á heimilinu eru 2 börn, 6 ára og nýfætt.
Óskað er eftir aðstoð með heimilisþrif og annað sem til fellur.
Vinnutími getur verið annað hvort alla daga vikunnar eða
3-4 sinnum í viku. Áhugasamir sendi ferilskrá með mynd á
box@365.is merkt „Ö-25290“
Dagskrárstjóri
og umsjónarmaður
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni leitar að dagskrárstjóra
og umsjónarmanni eigna og opinna svæða ÚSÚ.
Í boði eru tvö spennandi störf í kraftmiklu umhverfi.
Leitað er að einstaklingum sem geta axlað ábyrgð og tekist
á við krefjandi verkefni auk þess að sýna frumkvæði og
metnað í starfi. Báðum störfum fylgir húsnæði á staðnum.
Starfssvið dagskrárstjóra:
• Vinnur að stefnumótun og þróun dagskrárliða
• Stýrir dagskrá fyrir skólabúðir og sumarbúðir
• Umsjón með hópeflis- og hvataferðum fyrir fyrirtæki og hópa
• Markaðssetning og kynning
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntun og reynsla:
• Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Lipurð í samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði
• Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar með áherslu á skipulögð
vinnubrögð
• Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt hæfni til að tjá sig í ræðu
og riti
• Reynsla af skátastarfi eða öðru sjálfboðastarfi er æskileg.
Starfssvið umsjónarmanns eigna og opinna svæða:
• Umsjón með eignum og opnum svæðum Útilífsmiðstöðvarinnar
• Viðhald og umhirða eigna á svæðinu og umsjón með viðhaldskerfi
• Umsjón með störfum verktaka og sjálfboðaliða
• Yfirumsjón með þrifum
• Innkaup og áætlanagerð
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntun og reynsla:
• Iðnmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Metnaður og rík ábyrgðartilfinning
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Grunnþekking á tölvum og helstu forritum
• Reynsla af skátastarfi eða öðru sjálfboðastarfi er æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Gíslason framkvæmdastjóri
ÚSÚ í síma: 868 8165, tölvupóstfang: brynjolfur@skatar.is
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 4. mars 2013
Vatnsveitufélag Hvalfjarðarsveitar sf.
Kt: 640608-0560
Búnaður í dælustöð Vatnsveitufélags
Hvalfjarðarsveitar Grundartanga.
Vatnsveitufélag Hvalfjarðarsveitar óskar eftir tilboðum í
dælubúnað, loka og pípulagnir í dælustöð á Grundartanga.
Í verkinu felst að útvega og koma fyrir öllum lögnum og
búnaði sem tilheyrir dælustöðinni. Einnig uppsetning
afldreifi- og stjórnbúnaði. Verktaki skal , afhenda, koma
fyrir og tengja allan afldreifi- og stjórnbúnað sem tilheyra
dælustöðinni.
Verktaki skal einnig leggja almennt rafmagn í dælustöðinni.
Í því felst að afhenda, koma fyrir og tengja allan almennan
rafbúnað sem tilheyra dælustöðinni.
Útboðsgögn verða afhent hjá Almennu verkfræðistofunni
Fellsmúla 26 108 Reykjavík frá og með 26.02.2013.
Tilboð verða opnuð 15.03.2013 á skrifstofu Faxaflóahafna sf
Tryggvagötu 17 Reykjavík.
Verktaki getur komist í tilbúið dæluhús á Grundartanga til
uppsetningar búnaðar 15. 04.2013.
Verklok eru 01.07.2013.
Vatnsveitufélag Hvalfjarðarsveitar sf
LAUGARDAGUR 23. febrúar 2013 17