Fréttablaðið - 23.02.2013, Qupperneq 78
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 42
Einu sinni var maður úti að
ganga með tannbursta í bandi.
Þá kom strákur glottandi til
hans og sagði: Hvað heitir
hundurinn þinn?
- Ha? Sérðu ekki að þetta er
tannbursti? svaraði maðurinn.
Um leið og strákurinn var farinn
sneri maðurinn sér að tann-
burstanum og sagði:
- Þarna plötuðum við hann,
Snati!
Pínulítill kúreki kom askvaðandi
inn á krá í villta vestrinu greini-
lega trylltur af reiði.
„Hver málaði hestinn minn
grænan hérna fyrir utan?“
öskraði hann.
Það ríkti grafarþögn þar til
risastór og mikill kúreki stóð upp
og svaraði dimmri röddu:
„Það var ég.“ Litli kúrekinn
horfði skelfdur upp eftir krafta-
karlinum og sagði mjóróma:
„Það er nefnilega það, ég vildi
bara láta þig vita að hann er
orðinn þurr.“
KATRÍN BJÖRT
Hér er kisa að
lepja mjólk á mynd
eftir Katrínu Björt
Sigmarsdóttur sem
er fjögurra ára
Hafnfirðingur.
Brandarar
Í hvaða skóla ertu? Vesturbæjar-
skóla.
Hvað ertu gamall? 11 ára.
Hvað er skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir, tónmennt,
heimilisfræði. Svo finnst mér líka
gaman að vera í kennslustundum
með bekkjarkennaranum mínum af
því hún er svo góð.
Hvað hét fyrsta leiksýningin sem
þú lékst í? Oliver Twist.
Hvað hefurðu leikið í mörgum
leikritum? Þau eru fimm með Mary
Poppins. Hin leikritin eru: Oliver
Twist, Allir synir mínir, Galdrakarl-
inn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi.
Hvað er skemmtilegasta leiksýn-
ingin sem þú hefur tekið þátt í?
Mér finnst þessi sýning standa svo-
lítið upp úr en annars finnst mér
þær allar jafn skemmtilegar.
Getur þú sagt frá hlutverkinu þínu
í Mary Poppins? Mikael er hress,
svolítið stríðinn og pabbi hans er
ekki nógu góður við hann. Hann
á systur sem heitir Jane, hann er
mikið með henni.
Er leikritið mjög líkt bíómynd-
inni? Ef það er ólíkt, hvað gerir
það þá ólíkt? Já, það er allt öðru-
vísi. Það kemur annað fyrir í leik-
ritinu. Ég myndi segja að leikritið
væri skemmtilegra, það er mörgum
lögum bætt við og það eru fleiri
persónur. Maður lærir meira af
þessari sögu en af myndinni þó
maður læri líka af myndinni.
Hvernig gengur þér að læra
textann fyrir leikritin? Færðu
hjálp við það? Fyrst fékk ég hjálp
en núna kann ég ekki bara minn
texta heldur líka textann sem allir
hinir segja utan að.
Hefurðu einhvern tíma ruglast?
Já, en ekki mjög oft. Ég hef oftast
ruglast þannig að ég hef gleymt að
segja eitthvað en aldrei sagt eitt-
hvað vitlaust á vitlausum tíma.
Langar þig að verða leikari þegar
þú verður stór? Já, núna, en það
gæti breyst. En mig hefur langað
það mjög lengi og langar það enn
þá. En það er samt margt annað
sem tengist leikhúsi sem mig langar
líka að vinna við, til dæmis leik-
mynd og búningar.
Leikritið er allt öðru-
vísi en bíómyndin
Grettir Valsson fer með hlutverk Mikaels í Mary Poppins. Hann hefur leikið í
fi mm leikritum þótt hann sé bara ellefu ára og langar mikið til að verða leikari
þó að ýmislegt annað sem tengist leikhúsi komi líka til greina.
GRETTIR Kann ekki bara sinn
texta í Mary Poppins heldur það
sem allir aðrir segja.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
32
„Jæja Róbert,“ sagði Kata önug. „Þú segist vera snillingur í
sudoku, best að þú leysir þessa og látir okkur bara í friði.“
Robert opnaði munninn til að segja eitthvað, en hætti svo
við. Þau Kata gátu ekki alltaf verið að rífast svona. „Við leysum
hana bara öll saman,“ sagði Lísaloppa. „Er það ekki?“ Kata
og Róbert sögðu ekkert. Konráð rauf þögnina og sagði, „við
verðum þá bara að leysa hana tvö fyrst þau eru í þessari fýlu.“
Getur þú
hjálpað þeim
að leysa þessa
sudokugátu?
3 4 5 7
5 4 3 7 1
7 2 6 4 3
7 3 1 8 9
3 7 2 4
9 4 8 6 3
8 9 5 1 2
2 1 3 5
6 1 4 7
um helgina 11-17