Fréttablaðið - 23.02.2013, Blaðsíða 99
LAUGARDAGUR 23. febrúar 2013 | MENNING | 63
OneHundredPushups
Ef þú vilt endilega styrkja líkama
þinn þá getur þú að sjálfsögðu fund-
ið app við hæfi. OneHundredPushups
er frábært app fyrir upptekið fólk
sem hefur ekki tíma til að komast í
ræktina en vill samt sem áður geta
gert 100 armbeygjur.
Appið býður upp á sex vikna
æfingaáætlun sem miðar að því að
þú getir tekið 100 armbeygjur eftir
einn og hálfan mánuð. Það eina sem
þú þarft er appið, fullt af vilja og um
það bil 30 mínútur á viku.
Skýringar:
App fyrir Apple-tæki
App fyrir Android-tæki
App fyrir Windows
APP VIKUNNAR
„Já, hann er undurfagur drengurinn, en hann
veit ekki hverju hann á von á frá fyrrver-
andi ungfrú Úlfljótsvatn,“ segir söngkonan
Hera Björk Þórhallsdóttir, um keppinaut sinn
Francisco Leon.
Hera og Leon eru stödd í Síle þessa dagana,
þar sem þau eru að keppa í sex laga úrslitum
söngvakeppninnar Vina del Mar Internation-
al Song Contest og eru þau, að sögn spekinga,
sigurstranglegustu keppendurnir. Leon þessi
er frá Venesúela og er fleira til lista lagt en
að syngja því hann var kjörinn herra Vene-
súela árið 2004. Hera er þó ekki ókunnug feg-
urðarsamkeppnum sjálf, því hún var einmitt
kosin Ungfrú Úlfljótsvatn árið 1984.
Keppnin hefst á morgun en riðillinn sem
Hera keppir í er þó ekki fyrr en á mánudaginn.
Hún keppir svo aftur á miðvikudaginn og kom-
ist hún í þriggja laga úrslit stígur hún aftur á
svið á fimmtudagskvöldið, þegar úrslitin fara
fram. „Þetta verður hörð keppni sem ég hlakka
mikið til að taka þátt í. Sviðið er frábært og
gaman að syngja með stórri hljómsveit, falleg-
um dönsurum og með yfir 20.000 manns fyrir
framan sig. Okkur var sagt í dag að í fyrra hafi
áhorf í sjónvarpi farið yfir 100 milljónir manna
í fyrsta skipti svo þetta er greinilega mjög vax-
andi hátíð,“ segir Hera spennt.
Hera Björk etur kappi við herra Venesúela
Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir þykir sigurstrangleg í Vina del Mar International-söngvakeppninni sem fer fram í næstu viku.
BÆÐI FALLEG
Þau Hera Björk
og Francisco
Leon eiga bæði
fegurðartitla í
farteskinu en
þau eru talin
sigurstrang-
legust í Vina
del Mar Inter-
national Song
Contest sem
fer fram í Síle í
vikunni.
Tónleikar til styrktar Ingólfi
Júlíussyni, ljósmyndara og marg-
miðlunarhönnuði, verða haldn-
ir í Norðurljósum í Hörpu 28.
febrúar. Ingólfur greindist með
bráðahvítblæði í byrjun október
í fyrra og hefur dvalið á sjúkra-
húsi að mestu síðan.
Allir sem koma fram á tónleik-
unum gefa vinnu sína og þeirra
á meðal eru Ari Eldjárn, Hörður
Torfason, Dimma, KK og Q4U,
sem Ingólfur hefur spilað með.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 krónur.
Miðasala er í Hörpu og á midi.
is. Þeir sem ekki komast á tón-
leikana geta lagt inn peninga á
eftirfarandi reikning: 0319-26-
002052. Kennitala: 190671-2249.
Tónleikar til
styrktar Ingólfi
INGÓLFUR JÚLÍUSSON Ljósmyndarinn
og margmiðlunarhönnuðurinn berst við
bráðahvítblæði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA