Fréttablaðið - 07.03.2013, Side 59
FIMMTUDAGUR 7. mars 2013 | MENNING | 51
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2013
Sýningar
14.00 Sýningin Ormurinn ógnarlangi,
Söguheimur norrænnar goðafræði,
opnar í húsnæði Barna- og unglinga-
geðdeildar Landspítalans við Dalbraut.
Upplestur
18.00 Ögmundur Jónasson les 26.
Passíusálminn í Grafarvogskirkju í til-
efni föstunnar.
Uppákomur
12.15 Hrefna Sætran matreiðslu-
meistari velur og segir frá uppáhalds-
verki sínu á sýningunni Flæði á
Kjarvalsstöðum.
20.00 Lionsklúbburinn Ýr í Kópavogi
stendur fyrir kvöldstund með Þórhalli
miðli í Lundi, Auðbrekku 25. Aðgangs-
eyrir er kr. 2.000 og rennur allur ágóði
til líknarmála.
Málþing
16.30 Haldið verður framtíðarþing
um farsæla öldrun í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur. Þingið er á vegum
fjölmargra aðila sem starfa að mál-
efnum aldraðra og verður það með
þjóðfundar sniði.
Tónlist
20.00 Hljómsveitin Búddabítlarnir
stígur á svið á Café Haiti. Flutt verða
lög The Beatles og aðgangur er ókeypis.
20.00 Söngkonan Unnur Sara heldur
tónleika á Hemma og Valda ásamt
DJ. flugvél og geimskip. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Hljómsveitirnar World Narcosis
og Klikk koma fram á þungarokkskvöldi
á Ellefunni. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Svavar Knútur og sænska söng-
konan Magpie Marvin skemmta á Café
Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Hljómsveitirnar Árstíðir og 1860
halda tónleika á Faktorý með tónlistar-
manninum Hjalta Þorkelssyniþ
22.00 Hjalti Þorkelsson og Eðvarð
Lárusson halda tónleika á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir
er kr. 500.
Fyrirlestrar
12.00 Steinunn Sigurðardóttir talar um
nýjustu skáldsögur sínar, Jójó og Fyrir
Lísu, í stofu 105 á Háskólatorgi.
12.00 Dr. Suelette Dreyfus heldur
opinn fyrirlestur í Norræna húsinu um
Uppljóstranir og áhrif tækniþróunar á
dreifingu upplýsinga.
16.00 Nobuyoshi Mori, prófessor við
Tokai-háskóla í Japan flytur fyrirlestur
í stofu 101 í Odda HÍ. Fyrirlesturinn
er á vegum Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í erlendum tungumálum
og ber hann yfirskriftina Vandinn að
þýða íslensk ljóð á japönsku. Flutningur
verður á ensku og allir eru velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Nokkrir myndlistarmenn, ljósmyndarar,
hönnuðir og húsgagnasmiðir á Akureyri ætla
að opna vinnustofur sínar fyrir gestum og
gangandi í dag, fimmtudaginn 7. mars milli
klukkan 16 og 20. Fólk getur gengið á milli,
kíkt í heimsóknir og skoðað það sem verið er
að framleiða og bjóða upp á. Stefnt er að því að
gera þetta að mánaðarlegum viðburði.
Stofurnar eru í Kaupvangsstræti 12, Lista-
safnshúsinu, gengið inn úr portinu baka til,
í Flóru Hafnarstræti 90, á Ráðhústorgi 7,
fyrirtækinu Mublum, húsgagnaviðgerðum að
Brekkugötu 13 og í Hvítspóa að Brekkugötu 3a.
„Við prófuðum þetta fyrir mánuði síðan og
það heppnaðist rosalega vel, var heilmikið ren-
nerí milli húsa,“ segir Elín Hulda Einarsdóttir,
ein þeirra sem er með vinnustofu í Flóru, og
kveðst vona að veðrið verði hagstætt gangandi
vegfarendum.
Hún bendir á að veitingastaðir séu á hverju
strái, Bautinn styrki til dæmis viðburðinn og
sé með tilboð. -gun
Opna vinnustofurnar sínar
Akureyringar og ferðamenn í bænum eiga þess kost að heim sækja vinnu-
stofur lista- og handverksmanna milli klukkan 16 og 20 í dag.
HLUTI HÓPSINS Í FLÓRU Hlynur Hallsson, Sigurjón Már
Svanbergsson, Kristín Þóra Kjartansdóttir, Elín Hulda
Einarsdóttir, Marta Kusinska og María Franksdóttir.