Fréttablaðið - 05.04.2013, Síða 2

Fréttablaðið - 05.04.2013, Síða 2
5. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 LÖGREGLUMÁL Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum, hefur lagt fram kæru vegna nauðg- unar. Erla hefur greint frá því að henni hafi verið nauðgað af lög- reglumanni meðan hún sat í gæsluvarð- haldi í Síðu- múlafangelsi vegna málanna og kemur það fram í nýrri skýrslu um þau. „Fram að þessu hafði ég ekki einu sinni hugleitt að kæra af því að þetta var fyrnt,“ sagði Erla við Vísi í gær. Hún segir það mikinn létti að hafa kært, með því vilji hún binda enda á þennan hluta málsins. - þeb Segist finna fyrir létti: Erla Bolladóttir kærði nauðgun ERLA BOLLADÓTTIR ALMANNAVARNIR Óvissustigi aflétt Almannavarnir og lögreglustjórinn á Hvolsvelli afléttu í gær óvissustigi við Heklu. Sjö jarðskjálftar urðu dagana 10. til 23. mars en síðan þá hafa ekki verið neinar jarðhræringar á þessum slóðum. SPURNING DAGSINS FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU Þér er boðið á opinn stjórnamálafund í dag Árborg, Hótel Selfossi kl. 12 með Svandísi Svavarsdóttur og Arndísi Soffíu Sigurðardóttur. Borgarbyggð, Landnámssetrinu kl. 12 með Lárusi Ástmar Hannessyni og Árna Þór Sigurðssyni. Sauðárkróki, Kaffi Krók kl. 12 með Katrínu Jakobsdóttur og Lilju Rafney Magnúsdóttur. Rjúkandi kaffi og líflegar umræður. ARNDÍS SOFFÍAKATRÍNÁRNI ÞÓR OPNIR STJÓRNMÁLA- FUNDIR Í DAG ALLIR VELKOMNIR SVANDÍS LÁRUS ÁSTMAR LILJA RAFNEY Bergþór, ætlarðu þá núna að halda þig á mottunni? „Já, annars er hætt við að ég verði tekinn á teppið.“ Stórsöngvarinn Bergþór Pálsson hefur í tvö ár unnið að því að sauma endurgerð gamals riddarateppis af Þjóðminjasafninu. KOSNINGAR „Svona er þetta bara,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, sem uppgötvaði í gær að hann væri ekki á kjörskrá og þar af leið- andi ekki kjörgengur í komandi alþingis- kosningum. Guðmundur skipar efsta sætið á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi og segist hafa falið lögmanni sínum að reyna að kæra sig inn á kjörskrá. Hann segir að slíkt sé býsna algengt þegar kjósendur átti sig á því á kjörstað að þeir séu ekki á kjörskránni. „Í versta falli þurfum við að finna nýjan mann í oddvitasætið,“ segir Guðmundur. Ekki þurfi að skila inn fullbúnum framboðslistum fyrr en 12. apríl. „Þannig að það er nógur tími til stefnu,“ segir hann. Ástæða þess að Guðmundur er ekki á kjörskrá er sú að hann hefur verið með lögheimili erlendis lengi. Hann hefði þurft að skrá lögheimilið á Íslandi fyrir 23. mars, síðasta viðmiðunardag Þjóðskrár, til að verða kjörgengur í kosn- ingunum. Guðmundur segist þó áfram munu verða formaður flokksins, hvað sem gerist, og að þetta komi í raun ekki svo mjög að sök, enda sé það á stefnuskrá Hægri grænna að ráðherrar þeirra séu ekki jafnframt þingmenn. - sh Formaður Hægri grænna uppgötvaði í gær að hann er ekki kjörgengur: Reynir að kæra sig inn á kjörskrá NOREGUR Nær 450 konur og karl- ar stunda vændi í og við Stav- anger í Noregi. Það eru rúmlega tvöfalt fleiri en 2009 þegar sett voru ný lög sem banna Norð- mönnum að kaupa kynlífsþjón- ustu í Noregi og utanlands. Aðeins einn Norðmaður hefur verið sektaður fyrir að kaupa kynlífsþjónustu erlendis. Í frétt á vef Aftenposten segir að lögreglan viðurkenni að hafa ekki sinnt málinu nógu vel. Til standi að bæta úr því. Að sögn lögreglunnar koma margir erlendir vændisseljendur til Karmøy-flugvallar í Haugesund þaðan sem þeir halda til bæja í nágrenninu áður en þeir snúa heim. - ibs Áhrif nýrra laga í Noregi: Tvöfalt fleiri stunda vændi SVÍÞJÓÐ Félögum í sænska Jafnað- armannaflokknum hefur fækkað um 8,9 prósent síðan 2009, eða um 9.700 manns. Flokksfélagar voru alls 99.484 um síðustu áramót. Meðalaldurinn er sextíu ár og 47 prósent flokksfélaga eru komin á eftirlaun. Aðeins fjórtán pró- sent eru yngri en 40 ára, að því er segir í frétt á vef Sænska dag- blaðsins. Í skýrslu nefndar segir að ástæða sé til að hafa áhyggjur af þessari þróun. - ibs Sænskir jafnaðarmenn: Flokksfélagar færri og eldri FÓLK „Við ætlum að reyna að setja um tuttugu hunda fyrir framan sleða en það er mesti fjöldi sem hefur verið settur fyrir framan eitthvað apparat hér á landi,“ segir Benedikt Magnússon þjálfari, sem hyggst ásamt fleirum setja Íslands- met í hundakerruakstri í Heið- mörk næstkomandi laugardag. Hund arnir, sem eru af tegundinni Siberian Husky, eru allir í eigu Benedikts og félaga hans. Benedikt á sjálfur sex hundanna. Að sögn Benedikts hefur farið mikil vinna í þjálfun hundanna. „Ef þú vilt eiga hunda sem fara einhverjar vegalengdir þarftu nátt- úrlega að láta þá fara þessar vega- lengdir. Þú þarft sem sagt að þjálfa mikið.“ Þar sem enginn er snjórinn þessa dagana draga hundarnir vagna á hjólum sem vega um 100 kíló, en vagninn ber einn til tvo menn. „Við stefnum á að láta þá hlaupa um fimm, sex kílómetra en þetta er bara gert upp á gamanið. Við erum komin mjög stutt í þessu sporti hér á landi. Lengsta hlaupið sem hefur farið fram hér á landi er um þrjátíu kílómetrar. Úti í heimi eru þeir kannski að fara þúsund kílómetra en það tekur þá kannski fimm daga.“ Spurður hvort hann sjái fyrir sér auknar vinsældir íþróttarinn- ar segist hann vona að svo verði en bætir við: „Hinn almenni hunda- eigandi er að kaupa sér gæludýr, en þeir sem eiga sleðahunda vilja vinnudýr. Þetta eru tveir ólíkir heimar en þeir geta alveg farið saman. Það hafa verið stofnað- ir tveir klúbbar í kringum þetta, Sleðahundaklúbbur Íslands og Draghundasport Íslands, en fjöldi fólks er meðlimir í klúbbnum og margir þeirra eiga ekki einu sinni sleðahund. Þannig að það greini- legt að það er fjöldi fólks sem hefur áhuga á þessu.“ Benedikt segir hundana fá mikið út úr því að draga sleða. „Hundun- um finnst þetta mjög gaman og þeir alveg bíða eftir því að fá að komast út. Þetta eru vinnudýr og í þessu fá þeir mikla útrás.“ Eins og áður segir mun atburð- urinn fara fram í Heiðmörk næst- komandi laugardag klukkan tvö. hanna@frettabladid.is Stefna á Íslandsmet í hundakerruakstri Benedikt Magnússon ætlar ásamt félögum að setja tuttugu sleðahunda fyrir kerru í Heiðmörk um helgina. Hann segir þá fá mikla ánægju og útrás við dráttinn. Hundarnir munu draga vagna á hjólum en hver og einn vegur um hundrað kíló. Hinn almenni hundaeigandi er að kaupa sér gæludýr, en þeir sem eiga sleðahunda vilja vinnudýr. Benedikt Magnússon þjálfari SLEÐAFJÖR Benedikt Magnússon ætlar ásamt fleirum að setja Íslandsmet í hunda- sleðadragi í Heiðmörk á laugardaginn. MYND/ÚR EINKASAFNI SÁDI-ARABÍA 24 ára gamall maður hefur verið dæmdur til þess að verða lamaður fyrir neðan mitti nema hann borgi 33 milljónir króna í skaðabætur. Maðurinn lamaði vin sinn þegar hann stakk hann í bakið fyrir tíu árum. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa gagnrýnt dóminn harðlega og segja hann pyntingu. Bresk stjórnvöld hafa skorað á stjórn- völd í Sádi-Arabíu að framfylgja ekki dóminum, enda væri það brot á alþjóðalögum. Ali al-Khawahir hefur setið í fangelsi í tíu ár fyrir hnífs- stunguna. Dómurinn er nýjasta dæmið um bókstafstrúartúlkun á íslömskum lögum. - þeb Amnesty gagnrýnir dóm: Ungur maður dæmdur til að verða lamaður ARGENTÍNA, AP Að minnsta kosti 55 eru látnir og tuttugu er saknað eftir gríðarleg flóð í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, og nágrenni. Eftir metúrkomu á þriðjudag og miðvikudag, þar sem ofankoma mældist 400 millimetrar, meira en nokkru sinni hefur mælst í heilum aprílmánuði, flæddi vatn yfir höfuðborgina og nágrannabæinn La Plata, en um milljón manna býr á þessu svæði. Veðurstofa hafði varað við úrkomu en ekkert í líkingu við það sem varð. Vatnsaginn náði hátt í tveggja metra hæð áður en flóðin tóku að réna í gær og neyðarstarf hófst. Þúsundir manna voru án rafmagns og drykkjar- vatns, auk þess sem vinnsla í olíuhreinsistöð stöðv- aðist vegna elda sem orsökuðust af flóðinu. „Við höfum ekkert rafmagn og ekkert vatn. Við höfum ekkert!“ sagði Nelly Corrado, íbúi sem varð illa úti í flóðinu og sakaði yfirvöld um sinnuleysi. Mauricio Macri, borgarstjóri Buenos Aires, sagði að veðurhamfara sem þessara væri að vænta vegna loftslagsbreytinga og kallaði eftir auknu fjármagni frá stjórnvöldum til að bregðast við þeim. - þj Metúrkoma í nágrenni Buenos Aires veldur gríðarlegum flóðum: 55 látnir og tuttugu enn saknað ALLT Á FLOTI Íbúar í La Plata horfa út um glugga á heimili sínu þar sem vatn flæðir um allt. 55 manns hið minnsta eru látnir eftir gríðarlega úrkomu á þriðjudag og miðvikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÉLAGSMÁL Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur ógilt kosningar til for- manns félagsins sem fram fóru í síðasta mánuði. Nefndin telur ekki hægt að útiloka að við talningu hafi atkvæði verið talin með sem greidd voru eftir að atkvæða- greiðslu lauk. Ólafur G. Skúlason fékk flest atkvæði í kjörinu, einu meira en Vigdís Hallgrímsdóttir, sem kærði framkvæmd kosninganna. Kjörnefnd FÍH hefur sagt af sér í kjölfarið. - þj Félag hjúkrunarfræðinga: Formannskjör gallað og ógilt

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.