Fréttablaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 4
5. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 216,7058 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,29 123,87 185,72 186,62 157,81 158,69 21,17 21,294 21,173 21,297 18,798 18,908 1,2904 1,298 184,28 185,38 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 04.04.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SIGURNÁMSKEIÐ Námskeið í að taka réttar ákvarðanir í lífinu og að yfir- stíga slæmar venjur. Margir berjast við ýmsa leiða ávana, m.a. reiði, vöntun á fyrirgefningu, notkun vímugjafa, nei- kvæðan hugsanagang o.s.frv. Hvernig þróast hegðun yfir í ávana, hvað liggur að baki slæmra ávana og hvernig er hægt að sigrast á þeim? FYRIRLESARAR: Chad og Fadia Kreuzer DAGSETNING: 8., 9. og 10. apríl kl. 20:00 15., 16. og 17. apríl kl. 20:00 STAÐSETNING: Rauði salur Verzlunarskóla Íslands (vesturinngangur). Íslensk þýðing í boði. Nánari upplýsingar hjá Vigdísi Lindu Jack í s: 867-1640 eða á vigdislinda@hotmail.com Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Sunnudagur 3-8 m/s. SVALT EN YFIRLEITT GOTT Það fer heldur kólnandi á landinu næstu daga einkum um norðan- og austanvert landið. Vindur verður fremur hægur og yfirleitt úrkomulítið. 0° 9 m/s 4° 7 m/s 5° 6 m/s 8° 10 m/s Á morgun 8-15 m/s en hægari NA-til. Gildistími korta er um hádegi 3° -1° 0° -3° -2° Alicante Basel Berlín 19° 9° 4° Billund Frankfurt Friedrichshafen 5° 8° 12° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 5° 5° 23° London Mallorca New York 6° 18° 13° Orlando Ósló París 24° 2° 9° San Francisco Stokkhólmur 16° 4° 2° 5 m/s 2° 7 m/s -3° 3 m/s -2° 6 m/s -3° 4 m/s 1° 6 m/s -1° 3 m/s 4° -1° 0° -3° -4° HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 3. OG 4. APRÍL 2013FYLGI FLOKKANNA H úm an is ta - fl ok ku ri nn Fr am fa ra - fl ok ku ri nn R eg nb og in n 40% 30% 20% 10% 0% 3, 5% 0, 6% 2, 6% 0, 4% 1, 4% 2, 8% 0, 6% 5, 6% 5, 6% P ír at a- fl ok ku ri nn Fl ok ku r he im ila nn a Lý ðr æ ði s- va kt in D ög un 40 ,0 % 17 ,8 % 8, 3%9, 1% 31 ,9 % 27 ,6 % 2, 4% 1, 4% 1, 0% 1, 6% 7, 1% 1, 8%1 3, 8% 9, 5% LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur stað- festi í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem er grunaður að hafa beitt fimmtán ára stúlku ofbeldi, stungið fingri í leggöng hennar og reynt að neyða ofan í hana fíkniefni. Í úrskurðinum segir að stúlkan og vinur hennar hafi haft samband við lögreglu fyrir rúmri viku og sagt manninn hafa svipt þau frelsi og ráðist á þau. Stúlkan segir manninn hafa skip- að henni að setja pappírsbút undir tunguna, sem hún telji að hafi verið LSD. Hann hafi síðan tekið í hnakka hennar, sett hnéð á bakið á henni og krafið hana um peninga. Síðan hafi hann slegið hana, hótað lífláti og reynt að troða ofan í hana MDMA-kristöllum, sem eru virka efnið í e-töflum, sem hún hafi þó frussað út úr sér. Þá hafi hann klætt hana úr buxum, sagst ætla að leita að peningum á henni og stungið fingri í leggöng hennar. Stúlkan segir að hann hafi þá hent henni inn í annað herbergi, kastað vog í andlitið á henni, stungið hana í andlit og líkama með penna og hellt yfir hana vökva. - sh Maður í gæsluvarðhaldi grunaður um hrottalegt ofbeldi gegn unglingsstelpu: LSD neytt upp í 15 ára stúlku SKIPTING ÞINGSÆTA Þingsæti nú Miðað við könnunina 3. og 4. apríl 2013 31 13 6 4 4 529 16 19 11 3 Dögun 2 Píratar 1 Utan flokka Framsóknarflokkurinn tekur fylgi af öllum hinum gömlu stjórnmála- flokkunum, samkvæmt skoðana- könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gær og fyrradag. Flokkurinn er í stórsókn og myndu tveir af hverjum fimm kjósendum, 40 prósent, styðja hann samkvæmt könnuninni. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur beðið afhroð og helmingast frá því í janúar. Um 17,8 prósent styðja flokkinn nú, samanborið við nærri 38 prósent þá. Sveiflurnar á fylgi flokkanna mælast mun meiri í könnun Frétta- blaðsins og Stöðvar 2 en í síðustu könnunum annarra könnunar- fyrirtækja. Möguleg skýring á þeim mun gæti verið að kannan- ir Capacent og MMR eru gerð- ar á mun lengri tíma en könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Þær mæla því fylgið á ákveðnu tíma- bili meðan könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 mælir stöðuna í gær og fyrradag. Samfylkingin og Vinstri græn tapa bæði fylgi. Samfylkingin er komin undir tíu prósent og hefur stuðningur við flokkinn helm- ingast frá könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um miðjan janúar. Vinstri græn mælast nú með stuðning 5,6 prósenta, hættulega nærri fimm prósenta markinu sem flokkar þurfa að ná til að koma mönnum á þing. Björt framtíð og Píratar eru einu nýju framboðin sem myndu ná mönnum á þing yrðu niður- stöður kosninga í takt við könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Björt framtíð tapar fylgi frá síðustu könnun og mælist nú með stuðning 8,3 prósenta. Þá fengi flokkurinn samkvæmt könnuninni fimm þingmenn. Framsókn tekur fylgi frá öllum Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn hefur helmingast frá því í janúar. Tæp 18 prósent styðja flokkinn nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Framsóknarflokkurinn er meira en tvöfalt stærri. Stjórnarflokkarnir eru með samanlagt 15 prósenta fylgi. Píratar virðast á góðri siglingu og mælast nú með 5,6 prósenta fylgi. Það myndi skila flokknum fjórum þingmönnum yrðu þetta niðurstöður kosninga. Önnur ný framboð mælast með fylgi undir fimm prósentum og ná ekki mönn- um á þing miðað við þá niðurstöðu. brjann@frettabladid.is Niðurstöður könnunarinnar sýna áframhald á þeirri sveiflu sem síðustu kannanir hafa sýnt og endurspegla væntanlega líka að einhverju leyti frammistöðu forystumanna flokkanna í umræðuþætti Sjónvarpsins, segir Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands. Hann segist þó vilja bíða eftir annarri könnun sem sýni viðlíka tölur og könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Það sé eðli allra kannana að úrtök geti í einstaka tilvikum fyrir hreina tilviljun verið skökk þrátt fyrir að aðferðafræðin sé í góðu lagi. „Ég segi þetta bara af því að þetta eru svo ótrúlegar niðurstöður,“ segir Gunnar Helgi. „Könnunin sýnir að Framsóknarflokkurinn er í stórsókn og Sjálfstæðis- flokkurinn í svo mikilli kreppu að ég hef aldrei séð annað eins,“ segir Gunnar Helgi. „Stjórnarflokkarnir eru í vörn eins og áður, en þessi þróun öll gengur lengra en maður getur trúað.“ Gunnar Helgi segir Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, ekki verða langlífan í embætti verði niðurstöður kosninga í takt við þessa niðurstöðu. Hann efast þó um að Bjarni stígi til hliðar fyrir kosningar. „Það væru of mikil panikviðbrögð.“ Hann bendir einnig á að staðan sé ekki endilega Bjarna að kenna. Hann sé í þröngri stöðu í margskiptum flokki, eins og landsfundur flokksins hafi afhjúpað svo rækilega. Bjarna hafi mistekist að móta söluhæfa ímynd í mörgum málum. STAÐA BJARNA BENEDIKTSSONAR ORÐIN AFAR VEIK Úrtakið í könnuninni var 1.231 manns en hringt var þar til náðist í 800 samkvæmt lag- skiptu úrtaki miðvikudaginn 3. apríl og fimmtudaginn 4. apríl. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Alls tók 64,1 prósent þátttakenda í könnuninni afstöðu til spurningarinnar. ➜ Aðferðafræðin Manninum var sleppt úr fangelsi á reynslulausn 8. nóvember síðastliðinn þegar hann átti 350 daga eftir óafplánaða af refsingu. Ekki kemur fram í úrskurðinum fyrir hvað hann sat inni eða hversu langan dóm hann fékk. Á skilorði síðan í nóvember GUNNAR HELGI KRISTINSSON HEILSA Menn sem stríða við hár- missi eiga frekar á hættu að fá hjartakvilla en kynbræður þeirra með þykkt hár. Þetta kemur í ljós í rannsókn sem gerð var í Japan. Menn með skalla eiga sam- kvæmt niðurstöðunum að vera um þriðjungi líklegri en aðrir til að fá hjarta- eða æðasjúkdóma. Fylgnin er þó sýnu meiri þegar kemur að reykingum og offitu. Því megi hafa meiri áhyggjur af mataræði og lifnaðarháttum en hækkandi enni. - þj Ný japönsk rannsókn: Hjartakvillar tengjast skalla ■ Fylgi í síðustu könnuninni 13. og 14. mars. ■ Fylgi í könnuninni nú. ■ Kosningarnar 2009. 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.