Fréttablaðið - 05.04.2013, Side 16

Fréttablaðið - 05.04.2013, Side 16
5. apríl 2013 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 VILTU LÆRA LISTINA AÐ MUNA? „... alveg frábær ...“ B ILL GATES, THE GATES NOTES „... fyrst og fremst snjöll, fyndin og yndisleg ...“ DEBORAH BLUM, NEW SCIENTIST Í fyrsta lagi vegna þess að Evrópumálin eru eitt stærsta hagsmunamál Íslands til framtíðar. Aðild að ESB snýst um að koma á traustari umgjörð um efnahagslífið þannig að verðbólga og vextir geti lækkað og stöðugleiki komist á. Varanlega. Í dag nemur Íslandsálagið á krónuna um 130- 230 milljörðum á hverju ári og íslenskar fjölskyldur borga 117 milljörðum meira á ári af húsnæðislánum en heimili í Evrópu. Það er ekki hægt að aðskilja skuldamálin frá gjaldmiðilsmálunum. Þess vegna eru Evrópumálin svona brýn. Í öðru lagi vegna þess að við erum langt komin í viðræðunum. Samningar eru hafnir eða þeim lokið í um 4/5 hluta allra málaflokka. Við höfum náð mjög góðum árangri við að koma á framfæri skilningi á sérstöðu Íslands í sjávarútvegsmálum, landbúnaði, byggðamálum og umhverfis- málum. Samningalið okkar er þrautþjálfað og einbeitt í að ná sem bestum samningi. Í þriðja lagi myndu slit á viðræðunum endanlega skera á þann möguleika að taka upp evru – ef þjóðin svo kýs. Seðlabankinn hefur sagt skýrt að evran er eini raun- hæfi valkosturinn við veika krónu. Það er í skýrri andstöðu við blákalda hagsmuni Íslands að taka frá þjóðinni möguleikann á að velja þar á milli. Eina leiðin Í fjórða lagi vegna þess að þetta er eina leiðin til þess að útkljá Evrópumálin. Einungis með því að fá aðildarsamning á borðið sjáum við raunverulega hvað aðild felur í sér. Þá getur umræðan um aðild og áhrif aðildar á byggðamálin, umhverfi og auðlindir, unga fólkið, rannsóknir og þróun, smáfyrirtæki og skapandi greinar, snúist um staðreyndir en ekki getgátur. Stór hluti Evrópuandstöðunnar bygg- ir á þeirri trú að Íslendingar geti ekki ná góðum samningi. Ég er ekki haldinn þeirri vanmetakennd. Í fimmta lagi er lýðræðislegt að ljúka samningum. Meirihluti Alþingis sam- þykkti að fela ríkisstjórn að sækja um aðild að ESB. Víðtækt samráð hefur verið haft við hagsmunaaðila og félagasamtök í samningaferlinu. Gögn eru birt jafnskjótt á vefnum. Skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt að mikill meirihluti Íslendinga vill sjá samninginn. Þjóðin á að eiga lokaorðið í Evrópumálunum. Ljúkum aðildarviðræðunum EVRÓPUMÁL Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ➜ Skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt að mikill meirihluti Íslendinga vill sjá samninginn. Botninum náð? Sjálfstæðisflokkurinn mælist með svo lítið fylgi að annað eins hefur varla sést. Bjarni Benediktsson segir að nú sé botninum náð. Margir hljóta að taka undir það– fylgi Sjálfstæðisflokksins, af öllum flokkum, getur varla lækkað mikið meira, er það? Bjarni ætti hins vegar kannski að varast þetta orðalag. Síðasti formaður Sjálfstæðisflokksins sem sagði að botninum væri náð var Geir H. Haarde. Það gerði hann í mars árið 2008 og var þá að tala um efnahagsástandið. Hann hafði á röngu að standa. Herkvaðning úr Valhöll Annars er örvæntingin í Sjálfstæðisflokknum orðin slík að í gær sendi framkvæmdastjórinn Jónmundur Guðmarsson hópeflis- póst á trúnaðarmenn í flokknum. Það er svo sem ekki óeðlilegt í þessu árferði, en athygli vekur að í niður- lagi póstsins vitnar hann í grein Árna Johnsen frá því í Morgunblaðinu í gær. „Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segir að Bjarni Benediktsson sé „hæfasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi í dag til þess að rífa Ísland upp til árangurs“,“ skrifar Jónmundur, og heldur í kjölfarið áfram að tíunda hvílíkum mannkostum Árni telur að formaðurinn búi yfir. Valið og hafnað Jónmundur vitnar hins vegar ekki í annað í þeirri makalausu grein Árna, eins og það þegar hann sakar Ragnheiði Elínu Árnadóttur og aðra mótframbjóðendur hans í próf- kjöri flokksins í Suðurkjördæmi um að hafa „rottað sig saman til þess að skáka [honum] út af hlaupabrautinni“. „Það var sem sagt ákveðið í þröngan hóp klíku í Reykjanesbæ hverjir ættu að verða þingmenn Suðurkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það var skelfilegt að vakna upp við brotnar leikreglur, falsið og svikin,“ skrifaði Árni og bætti því við að það borgaði sig ekki að refsa Sjálfstæðisflokknum þótt hann „missi illilega niður um sig buxurnar“. Það er ákveðið afrek að geta púslað saman herhvöt upp úr þessari hálfdulbúnu hirtingarræðu. stigur@frettabladid.is U mræðan um kynferðisbrot á Íslandi hefur gjörbreytzt eftir að ljóstrað var upp um ítrekuð og ljót brot barna- níðingsins Karls Vignis í Kastljósi RÚV í upphafi árs. Stíflur þagnar og þöggunar hafa brostið og ótal ein- staklingar sagt frá kynferðisofbeldi sem þeir hafa verið beittir. Þetta kemur skýrt fram í þeirri gríðarlegu fjölgun kæra sem lögreglunni berast vegna kynferðisbrota. Í janúar voru þær fjórum sinnum fleiri en í sama mánuði í fyrra. Um leið er greinilegt að margir trúa því ekki að hið opinbera réttargæzlukerfi sé í stakk búið að fást við þessi mál. Margt hefur þó breytzt í þeim efnum. Hert hefur verið á löggjöf um kyn- ferðisbrot á undanförnum árum. Starfsfólk lögreglu, saksóknara og dómstóla er langtum betur að sér um eðli og afleiðingar þessara brota en áður var. Aðstaða til að sinna þolendum kynferðisbrota, til dæmis neyðarmóttaka vegna nauðgana og Barnahúsið, er að mörgu leyti til fyrirmyndar. Það mun ekki breytast að kynferðisbrotamál eru vandmeðfarnari en mörg önnur, meðal annars vegna þess hvað snúið getur verið að sanna þau. Aukin þekking og skilningur á þeim er þó líkleg til að fjölga sakfellingum og að gerendurnir fái refsingu fyrir brot sín. Það er hins vegar alger frumforsenda þess að fólk hafi trú á kerfinu að það anni þeim málafjölda sem nú er við að eiga. Undan- farna mánuði hefur komið skýrt fram að hvorki lögreglan né embætti saksóknara hafa fé og mannskap til að sinna þeim sem skyldi. Hugsanlegt er að fyrir vikið verði rannsókn sumra mála ekki nægilega vönduð og að í öðrum tilvikum dragist málsmeðferðin úr hömlu. Lögreglan hefur unnið hratt í máli Karls Vignis, sem var ákærður fyrr í vikunni fyrir brot gegn fjórum einstaklingum, en margir tugir mála eru óafgreiddir. Tillögur undirnefndar allsherjar- og menntamálanefndar Alþing- is um úrbætur á meðferð kynferðisbrotamála gegn börnum eru mikilvægt skref í þá átt að fólk geti borið fullt traust til réttargæzlu- kerfisins. Nefndin segir það sem liggur í augum uppi; að auka þurfi fjárveitingar til rannsóknardeilda lögreglunnar og ríkissaksóknara- embættisins til að þessar stofnanir ráði við málafjöldann. Jafnframt er lagt til að skoðað verði að rýmka rannsóknarheimildir lögregl- unnar í kynferðisbrotamálum, meðal annars notkun tálbeitna. Nefndin vill sömuleiðis efla Barnahúsið með auknum fjárveit- ingum og telur koma til greina að skikka dómara til að nota þjónustu þess í dómsmálum sem varða kynferðisbrot gegn börnum. Það er raunar alveg furðulegt að stærsti héraðsdómstóll landsins, Héraðs- dómur Reykjavíkur, skuli árum saman hafa sniðgengið Barnahúsið ítrekað, þrátt fyrir að það sé löngu orðið öðrum ríkjum fyrirmynd. Þar geta dómarar yfirheyrt börn í öruggu umhverfi, þar sem þeim er látið líða vel og líklegra er en ella að fáist fram raunsönn frásögn af brotum sem þau hafa orðið fyrir. Tillögur nefndarinnar eru gott og jákvætt skref, en það liggur á að fylgja orðum eftir með efndum og auka fjárveitingar til mála- flokksins strax á næsta þingi. Skilvirk meðferð kynferðisbrotamála er mikilvægur hluti þess fyrsta verkefnis ríkisvaldsins að gæta öryggis borgaranna. Meðferð kynferðisbrota í réttargæzlukerfinu: Skref í átt að meira trausti Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.