Fréttablaðið - 05.04.2013, Page 34
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Yfirheyrslan og helgarmaturinn.
...spjörunum úr
HELGAR MATURINN
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Dætur mínar.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig? Í raun
og veru ég sjálfur með því
að vakna í morgun.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búinn að umbera
allt of lengi? Fullkomn-
unaráráttu sem ég elska að
hata.
Ertu hörundssár? Já og
nei.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Bæði.
Hvenær gerðirðu þig
síðast að fífli og hvern-
ig? Ég reyni að gera mig
að fífli daglega og ef mér
mistekst það þá á ég fullt af
„vinum“ og ættingjum sem
hlaupa fúsir í skarðið. Ég
stóð mig til dæmis ágætlega
í vikunni þegar ég kallaði
yfir gjaldkerana í Landsbank-
anum að þeir þyrftu að fara í
raddþjálfun því það heyrðist
ekkert í þeim (það var reynd-
ar fáránlega mikið að gera)
en ég sagði þetta í fullri ein-
lægni, blikkaði og allt – en
þetta gerði ég með fullri virð-
ingu svo þeir yrðu ekki mjög
móðgaðir.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Það var ég
sem klippti númerin af vælu-
bílnum og setti 6601200 í
staðinn.
Hvað eyðirðu miklum
tíma á Facebook á dag?
Ber fyrir mig fimmta ákvæði
bandarísku stjórnarskrárinn-
ar.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Það þurfa
ALLIR vini.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir vita
um þig? Ætli það sé ekki
hvað mér þykir í raun vænt
um þá.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Láta mér leiðast. Það verður
Skálmöld í Hörpu!
NAFN? SÖLVI FANNAR
VIÐARSSON
ALDUR? 41 ÁRS
STARF? LEIKARI, EINKAÞJÁLF-
ARI, FYRIRLESARI, RITHÖFUND-
UR, MEÐFERÐARAÐILI Í STARF-
RÆNNI LÆKNISFRÆÐI (E. FUNCT-
IONAL MEDICINE) OG ÝMISLEGT
ANNAÐ SMÁLEGT.
Indverskur kjúklingaréttur
Úrbeinuð læri eða bringur
3-4 hvítlauksgeirar
3-4 cm ferskur engifer – rífa
með rifjárni
2 msk. garam masala-krydd
2-3 msk. karrý
1 msk. sojasósa
3-4 litlar dósir af tómat-paste
2-3 lárviðarlauf
5 svört piparkorn
½ flaska rauðvín
2 dl vatn
2 teningar kjúklingakraftur
1-2 msk. hrásykur/sykur
Brúna kjúkling og hvítlauk
í smá olíu, skella svo öllu í
pott og láta malla í u.þ.b.
1 klst.
Frábært að bera fram með
sætum kartöflum, naan-
brauði, hrísgrjónum, jógúrt-
sósu og mangó-chutney.
Tvær stórar sætar kartöflur
skornar í bita eða sneiðar
og lagt í eldfast mót. Olíu og
smá salti skellt ofan á. Gott
er að setja líka hvítlauk og/
eða pekanhnetur. Bakist þar
til kartöflurnar eru tilbúnar.
Jógúrtsósa:
1 dl AB-mjólk
5 cm u.þ.b. agúrkubútur, rifinn
Salt og pipar
2 hvítlauksrif, kramin
Öllu blandað saman og hrært
vel.
Gígja
Þórðardóttir
Sölu- og mark-
aðsstjóri
Gengur vel ehf.
deilir hér einum
af sínum uppá-
haldsréttum sem
hún eldar reglu-
lega fyrir fjöl-
skylduna.
G
O
SH
C
o
sm
et
ic
s
b
y
E.
Tj
el
le
se
n
A
/S
·
w
w
w
.g
o
sh
co
sm
et
ic
s.
d
k
Viltu
endurnýjaðan kraft og gljáa
fyrir hárið þitt ?
Fullkomin hárlína og mótunarvörur fyrir allar hárgerðir