Fréttablaðið - 05.04.2013, Qupperneq 47
FÖSTUDAGUR 5. apríl 2013 | MENNING | 31
22.30 Foo Fighters Tribute tónleikar
verða haldnir á Gamla Gauknum.
Aðgangseyrir er kr. 2.000.
23.00 Hljómsveitirnar Babies og
Beatless spila á efri hæð Faktorý.
Aðgangseyrir er kr. 1.000. Í aðalrými
þeytir Dj Pabbi skífum og Positive
Vibration spilar í hliðarsal.
23.00 Magnús Einarsson, Eðvarð
Lárusson, Karl Pétur Smith og Tómas
Tómasson leika tónlist úr ýmsum áttum
á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
23.00 Þungarokksveitin DIMMA kemur
fram á tónleikum á Bar 11. Sérstakur
gestur er rokksveitin Rekkverk. Aðgang-
ur er ókeypis.
Fyrirlestrar
12.00 Guillaume Xavier-Bender talar á
Evrópufundaröð Alþjóðamálastofnunar
Háskóla Íslands, í fundarsal Norræna
hússins. Umræðuefnið er Verndarstefna
eða frjálshyggja? Evrópski markaðurinn
og staða Evrópusambandsins í alþjóða-
stjórnmálum. Fyrirlesturinn fer fram á
ensku og allir eru velkomnir.
20.00 Kristinn Sævar Jónsson guð-
fræðingur heldur fyrirlestur í húsi
Lífspekifélagsins að Ingólfsstræti 22.
Fyrirlesturinn fjallar um sjálfsþekkingu
að gnóstískum skilningi og huglægan
sköpunarmátt að fornu og nýju.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is.
FÖSTUDAGUR
5. APRÍL 2013
Sýningar
17.00 Opnuð verður sýning á merku
safni uppstoppaðra fugla í Safnahúsi
Borgarfjarðar. Elsti gripurinn á sýn-
ingunni er frá árinu 1940 en það er
Snorri Freyr Hilmarsson sem hannar
sýninguna.
18.00 Sýning Einars Garibalda, Stautar,
opnuð í Slippnum, Skólavörðustíg 25a.
Opið hús
17.00 Plötuverslunin 12 Tónar heldur
opið hús í verslun sinni á Skólavörðu-
stíg 15 til að fagna 15 ára afmæli sínu.
Hljómsveitin Rökkurró leikur nokkur
lög fyrir gesti og gangandi. Allir vinir,
velunnarar og viðskiptamenn 12 Tóna
hjartanlega velkomnir.
Málþing
12.00 Siðfræðistofnun og Læknadeild
Háskóla Íslands efna til hádegismál-
stofu um tilraunalækningar og kukl.
Málstofan verður haldin í stofu 101 í
Lögbergi HÍ.
Tónlist
12.00 Systkinin Ragnheiður og Haukur
Gröndal taka höndum saman á tón-
leikunum Töfrar tónlistargyðjunnar í
Háteigskirkju. Dagskráin verður blanda
af óútkomnu efni, þjóðlögum og
íslenskum lögum eftir höfunda í upp-
áhaldi hjá þeim. Almennt miðaverð er
kr. 1.000.
22.00 Lára Rúnars heldur tónleika á
Hressó. Aðgangur er ókeypis.
22.00 Skúli mennski og Þung byrði
skemmta á Café Rosenberg. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.500.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
11
4
2
Vilborg pólfari átti sér þann stóra draum að
ganga á suðurpólinn og hún gerði hann að
veruleika með því að setja sér markmið.
Íslandsbanki býður viðskiptavinum upp á
frábæran fyrirlestur með Vilborgu þar sem
hún segir frá því hvernig lítil markmið geta
á endanum orðið að stórum sigri.
Hér býðst unglingum og foreldrum kjörið
tækifæri til að hlusta saman á uppbyggilegan
fróðleik.
#svaltmarkmið
Það er svalt að setja
sér markmið
Við bjóðum þér að hlusta á Vilborgu pólfara
í Háskólabíói:
mánudaginn 8. apríl kl. 18
miðvikudaginn 10. apríl kl. 18
Skráðu þig á islandsbanki.is/fyrirlestur
og þú mátt taka einn vin með.
Hljómsveitin Babies tekur fyrir lög erlendra stórsveita sem
voru upp á sitt besta á árunum um og eftir síðasta Vest-
mannaeyjagos. Aðstandendur tónleikanna benda gestum á
að taka með sér betri skóna því hljómsveitin spili einungis lög
sem hún elskar og reikna megi með miklu stuði.
FOO FIGHTERS Arnar „Rokk“ Friðriksson ætlar að feta í spor Dave Grohl á Gamla Gauknum í kvöld þegar heiðurstónleikar Foo
Fighters fara þar fram.
FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Í kvöld verður rokkbandið Foo Fighters í fyrir-
rúmi á Gamla Gauknum í tilefni þess að tíu
ár eru liðin frá því að sveitin hélt sína fyrstu
tónleika hér á Íslandi. Það er bandið FooIce
sem annast flutninginn og fer þar í broddi
fylkingar Arnar „rokk“ Friðriksson, sem
ætlar að feta í fótspor Daves Grohl og annast
sönginn á tónleikunum. Margir muna ef til vill
eftir honum frá því hann lenti í öðru sæti í
raunveruleikaþáttunum Bandið hans Bubba,
á eftir Eyþóri Inga. Ásamt Arnari skipa bandið
þeir Kristján Grétarsson, Dave Dunn, Birgir
Kárason og Benedikt Brynleifsson.
Foo Fighters tribute í kvöld
Á sýningunni Ævin-
týri fuglanna er lögð
áhersla á mikilvægi
verndunarbúsvæða
fugla í alþjóðlegu
samhengi. Efniviður
sýningarinnar kemur
úr Náttúrugripasafni
Borgarfjarðar og er
hún helguð minningu
Sigfúsar Sumarliðasonar, fyrrverandi sparisjóðsstjóra í
Borgarnesi, sem sat lengi í stjórn safnsins.
„Þessi tribute-kvöld hafa alveg
slegið í gegn hjá okkur og hafa
verið þau mest sóttu að undan-
förnu, fyrir utan stærstu nöfnin
í tónlistinni í dag. Skálmöld fyll-
ir auðvitað alltaf húsið og Retro
Stefson líka, til að nefna dæmi, en
þessi kvöld hafa oft komist mjög
nálægt þeim í aðsóknartölum,“
segir Eiríkur Rósberg Eiríksson
á Gamla Gauknum.
Gamli Gaukurinn hefur hýst
fjöldann allan af tribute-tónleik-
um á undanförnum mánuðum
og virðist engin lognmolla ætla
að verða þar á næstunni. Eirík-
ur segir það vera mismunandi
hvort þeir á Gamla Gauknum
hafi frumkvæði að tónleikum og
setji saman hljómsveit eða hvort
komið sé að máli við þá um að fá
að halda tónleika. „Stundum koma
líka bönd sem leita til okkar eftir
góðum hugmyndum um hvaða
Tribute-tónleikar nýjasta æðið
Gamil Gaukurinn hefur hýst marga tribute tónleika að undanförnu og enn fl eiri
eru á döfi nni. Rokkararnir í Foo Fighters verða teknir þar fyrir í kvöld.
bönd ætti að taka fyrir,“ segir
hann.
Nú þegar eru tribute-tónleikar
skipulagðir í næstum hverri viku
vel fram í júní á Gamla Gauknum.
Meðal sveita sem þar verða teknar
fyrir eru Pearl Jam, Guns N‘ Roses,
Kiss, Rage Against The Machine og
Alice in Chains. „Svo erum við líka
að vinna í að setja upp Jeff Buck-
ley tribute-tónleika og jafnvel Amy
Winehouse,“ segir Eiríkur. - trs
„Ég stefni á að kíkja á hana Láru Rúnars vinkonu mína
sem er að spila á Hressó í kvöld. Það er svo langt síðan
ég hef séð hana spila á sviði en ég er mikill aðdáandi
hennar, enda er hún frábær tónlistarkona og yndisleg
manneskja í þokkabót,“ segir söngkonan Lay Low
sem ætlar að reyna að taka sér frí frá vinnu og kíkja í
bæinn um helgina.
Lára Rúnars spilar á tónleikakvöldi á Hressó í
kvöld á nýrri tónleikaröð í boði Jacobs Steiner
og Burn. Þetta er annað kvöldið í röðinni
en tónleikarnir eru haldnir á Hressó fyrsta
föstudag hvers mánaðar. Lára hefur verið
á fullu að undanförnu og gaf til að mynda
út sína fjórðu breiðskífu, Moment, í
haust.
Vinkonan frábær tónlistarkona