Fréttablaðið - 05.04.2013, Síða 54

Fréttablaðið - 05.04.2013, Síða 54
5. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 38 „Ég fer á opnun Björtulofta í Hörpu seinni partinn í dag og á morgun fer ég á tónleika í Hörpu á vegum franska sendiráðsins. Þess á milli er ég að undirbúa kynningu á Listahá- tíð, sem verður næsta þriðjudag.“ Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. HELGIN Sprengi sandur Sigurjón M. Egilsson Sunnudagsmorgna kl. 10 – 12 „Mér líður alveg ömurlega. Þetta er bara rosalega erfitt en maður held- ur í vonina um að finna hana,“ segir Hulda Hrund Höskuldsdóttir. Hund- urinn hennar, hin níu mánaða Sally af tegundinni pug, hvarf úr Elliða- árdalnum fyrir tveimur vikum og hefur mikil leit staðið yfir síðan. Hulda Hrund bjó til Facebook-síð- una „Leitin að Sally“ þar sem hún hvetur fólk til að aðstoða við leitina. „Í fyrradag [á þriðjudag] sást hundur sem var mjög líkur henni í Víðidal. Þetta var smáhundur, um 26 sentímetrar upp á herðakamb, ljós með svarta grímu, sem var rosalega hræddur. Þetta hljómaði svakalega líkt og Sally. Ég hef verið að dreifa miðum með auglýsingu á dýraspítala og í dýrabúðir. Ég held enn í vonina. Ég þekki eina konu sem er að rækta pug í Noregi. Hann týndist í heila viku og þar var tíu stiga frost. En hann lifði af.“ Sally fældist í burtu þegar stór border collie-hundur gelti að henni er hún var á gangi með Huldu í Elliðaárdalnum. „Ég leit af henni og hún var allt í einu horfin.“ Hulda Hrund býr ein og á þrjá aðra hunda af sömu tegund og Sally. Hún býður þeim sem finnur tíkina eitt hundr- að þúsund krónur í fundarlaun. Sá hinn sami skal hringja í 694-8225 eða senda skilaboð á Facebook. Erf- itt er að nálgast Sally og því er best að lokka hana til sín með mat eða króa hana af. - fb Býður 100 þúsund í fundarlaun Hulda Hrund Höskuldsdóttir hefur leitað að pug-tíkinni sinni Sally í tvær vikur. HELDUR Í VONINA Hulda ásamt tíkinni sinni Carmen sem lítur eins út og Sally. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ➜ Frægir pug-eigendur eru leik- ararnir Jessica Alba og Gerard Butler og fótboltakappinn Zlatan Ibrahimovic. Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme fer fram á Akureyri um helgina. Hápunktur hátíðarinnar er hin svokallaða Big jump-keppni sem verður í gilinu annað kvöld klukkan 21. Þar munu tuttugu efni- legir brettamenn keppa um Ak Extreme-titilinn og -hringinn. Egill Tómasson, einn aðstand- enda hátíðarinnar, segir keppend- urna í ár vera á aldrinum átján til 37 ára. „Eiríkur Helgason fer fyrir fjögurra manna dómnefnd. Hann er okkar fyrsti atvinnumaður í íþrótt- inni og væri sjálfur að keppa í Big jump-keppninni ef hann væri ekki rifbeinsbrotinn,“ segir Egill. Yngri bróðir Eiríks, Halldór Helgason, verður þó á meðal keppenda. „Hall- dór var meiddur í fyrra og sat þá í dómnefndinni. Þeir virðast skiptast á, bræðurnir.“ Halldór sýnir ekki aðeins listir sínar á brettinu heldur þeytir einn- ig skífum í slagtogi við MC Gauta á Græna hattinum seinna um kvöldið. Þetta verður í fjórða sinn sem Hall- dór spreytir sig sem plötusnúður og að sögn Egils spilar hann allt frá dauðametal til teknótónlistar. Stökkpallurinn sem notaður verður í Big jump-keppninni er sá stærsti til þessa og tók það fimm- tán manna hóp fimm daga að smíða hann. Pallurinn verður svo fjar- lægður strax að keppni lokinni. - sm Stærsti stökkpallurinn til þessa Snjóbrettahátíðin Ak Extreme fer fram um helgina. Tuttugu keppa í Big jump. EFNILEGUR Halldór Helgason verður á meðal keppenda í ár. Hann þykir einn sá efnileg- asti í íþróttinni. „Ég náði að klára öll borðin sem eru í boði og þarf að bíða eftir að þeir uppfæri leikinn og búi til ný borð. Ég er búinn að vera í tómum vandræðum með sjálfan mig síðan ég kláraði þetta og veit ekkert hvað ég á af mér að gera,“ segir lands- liðsmaðurinn í handbolta, Vign- ir Svavarsson. Hann náði þeim merka árangri á dögunum að klára öll 245 borðin í hinum feikivinsæla Facebook-leik Candy Crush. Leikurinn hefur tröllriðið heims- byggðinni að undanförnu og skip- ar efsta sætið á ófáum listum yfir vinsælustu leiki netheima. Hann er vinsælasta appið á Facebook og virðist sem fólk á öllum aldri sé orðið háð honum. „Ég byrjaði að spila þetta í janúar og vil nú kenna Guðjóni Val Sigurðssyni um það. Guðjón vill meina að stelpurnar hans hafi sett leikinn inn í símann hans og hann óvart byrjað að spila í kjölfarið. Ég veit nú ekki hvort ég trúi því. Hann festist samt alveg, svo ég varð að sjá hvað væri svona merkilegt við þetta. Þetta er nett óþolandi leikur, en samt skemmti- legur,“ bætir Vignir við. Candy Crush heldur upp á eins árs afmæli sitt 11. apríl. „Þetta er rosalega flókinn leikur. Það er ekki hægt að útskýra hann. Maður verð- ur bara að upplifa hann. Það klárar hann ekki hver sem er,“ segir Vign- ir og hlær. „Nei, þetta er í raun sáraeinfalt. Ætli það megi ekki segja að þetta sé hálfgerð blanda af Tetris og Bejew eled,“ bætir hann við, en Candy Crush Saga gengur út á að safna þremur eins sælgæt- ismolum í röð og sprengja þá. Vignir hefur að eigin sögn aldrei verið forfallinn tölvu- leikjaspilari þótt hann hafi spilað þá nokkra í gegnum tíðina og til að mynda orðið dyggur aðdáandi Super Mario Bros á sínum tíma. Spurður um heilræði hefur hann eitt ráð á reiðum höndum. „Ef fólk ætlar að ná árangri í Candy Crush mæli ég með að það slíti kross- band,“ segir hann og hlær. Sjálf- ur lenti hann í því að slíta kross- band í febrúar og segist í kjölfarið loksins hafa haft tíma til að sinna leiknum betur. „Það er góð til- finning að hafa náð að vinna eitt- hvað þessa dagana,“ segir lands- liðskappinn jákvæður. tinnaros@frettabladid.is Kláraði Candy Crush með slitið krossband Meiðsli Vignis Svavarssonar landsliðskappa skila árangri í tölvuleik á Facebook. GOTT AÐ VINNA EITTHVAÐ Vignir hefur náð góðum árangri á handboltavellinum og unnið ófáa leikina þar. Sökum meiðsla hefur hann verið frá keppni í nokkra mánuði en hefur nýtt tímann vel í Candy Crush Saga og nú loks náð að klára síðasta borðið í leiknum. Það er erfitt að festa reiður á hvað það er sem gerir Candy Crush svo vinsælan. Sterkir og fallegir litirnir eru taldir eiga þar hlut að máli, grípandi tónlistin spillir ekki fyrir, né þá hrósið sem spilarinn hlýtur fyrir flestar góðar hreyfingar. Það eru heldur engin tímamörk í leiknum og spilaranum því gefið gott svigrúm til að hugsa áætlun sína til enda í þeirri von að hann nái sem bestum árangri. Leikurinn lítur út fyrir að vera frekar auðveldur í byrjun og ekki bjóða upp á mikla áskorun, en hann breytist þó eftir að tíunda borðinu er náð. Eftir það er ekki óalgengt að spilarar séu fastir í sama borðinu svo dögum, og jafnvel vikum, skiptir. Þegar spilari hefur klárað öll sín aukalíf þarf hann svo að treysta á Facebook-vini sína til að koma sér aftur inn í leikinn með því að bjóða sér aukalíf. Það má því ætla að Candy Crush hafi styrkt mörg vináttusamböndin í gegnum tíðina og jafnvel skaðað nokkur. Vinsælasti leikur heims CANDY CRUSH SAGA Það er mikið lagt upp úr útlitinu á Candy Crush og litirnir til dæmis sterkir og fallegir. 7000 manns sóttu hátíðina í fyrra. Reiknað er með öðru eins fj ölmenni í ár. EGILL TÓMASSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.