Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 82
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 66
Ég verð eiginlega
að fara út núna til
þess að geta tekið næsta
skref á mínum ferli og
haldið áfram að bæta
mig.
Bjarki Már Elísson
HANDBOLTI Það liggur ekki enn
fyrir hvar einn besti hornamaður
landsins, Bjarki Már Elísson, leik-
ur næsta sumar. Hann hefur sett
stefnuna á atvinnumennsku og því
afar ólíklegt að hann verði áfram í
herbúðum HK.
Bjarki Már hefur verið í við-
ræðum við rússneska stór liðið
Chekhovski Medvedi. Með því
leika flestir lykilmenn rússneska
landsliðsins og þjálfari liðsins,
Vladimir Maximov, er einnig
landsliðsþjálfari og forseti rúss-
neska handboltasambandsins.
„Það lítur ekki vel út með Med-
vedi lengur en það er samt ekki
farið út af borðinu. Félagið er í
bullandi fjárhagsvandræðum og
óvissa með framhaldið í augna-
blikinu,“ sagði Bjarki Már, en
aðalstuðningsaðili félagsins er að
draga saman seglin og því bíður
vinna forráðamanna félagsins að
laða að nýja styrktaraðila.
Medvedi er stolt rússneska
handboltans og það yrði mikið
áfall fyrir handboltann í landinu ef
rekstrargrundvöllur liðsins myndi
hrynja til grunna.
„Ég var kominn með samnings-
drög í hendurnar frá félaginu en
ég vildi ekki taka því á meðan
staðan er svona. Það er líklega
vont að vera peningalaus í Rúss-
landi. Það er nógu slæmt að vera
blankur hérna heima.“
Hornamaðurinn knái segist ekki
vera neitt sérstaklega svekktur
með hvernig staðan á Medvedi-
málinu sé því hann hafi ekki vitað
út í hvað hann var að fara.
„Þetta var bara óvissa og
ævintýri. Ég hef verið að spyrja
strákana sem hafa spilað þarna í
Meistara deildinni hvernig þetta
sé þarna. Þeir hafa sagt að þetta
sé ekkert sérstaklega huggulegt
og spennandi. Það er alltaf þægi-
legra að hafa Íslendinga nálægt en
í þessu liði eru bara Rússar. Þarna
er líka Úkraínumaður og Hvít-
Rússi og þeir eru orðnir Rússar.
Ætli ég hefði ekki verið orðinn
Rússi eftir tvö ár,“ sagði Bjarki
Már léttur að venju en bætti við á
alvarlegri nótum að ef félagið næði
að rétta sig við og hann færi þang-
að væri hann að fá fínan samning.
„Maximov sagði við umbann að
hann vildi fá mig og ég þyrfti ekki
að koma á reynslu. Samningur-
inn sem ég fékk sendan var mjög
góður miðað við fyrsta samning
hjá hornamanni.“
Bjarki segir að þýskt félag hafi
einnig áhuga á honum en að það
mál sé ekki komið nógu langt til
þess að hann vilji tjá sig um það.
Það mál muni skýrast þegar tíma-
bilinu lýkur í Þýskalandi.
„Ég stefni enn á að fara út og
ég verð eiginlega að fara út núna
til þess að geta tekið næsta skref
á mínum ferli og haldið áfram að
bæta mig. Ég er metnaðarfullur og
vil komast í landsliðið og til að ná
þeim markmiðum þarf ég að kom-
ast út.“ henry@frettabladid.is
Líklega vont að vera
blankur í Rússlandi
Ekkert verður af því að hornamaðurinn Bjarki Már Elísson semji við rússneska
félagið Chekhovski Medvedi á næstunni, þar sem félagið er í fj árhags-
vandræðum. Bjarki Már stefnir engu að síður ótrauður á að komast út í sumar.
ÆTLAR ÚT Bjarki Már stefnir ótrauður á að komast út í atvinnumennsku í sumar þó svo að líklega verði ekkert af Rússlands-
ævintýri hans að þessu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Tímabili úrúgvæska
framherjans Luis Suarez, leik-
manns Liverpool, lauk formlega
í gær þegar hann var dæmdur í
tíu leikja bann. Bannið fær hann
fyrir að bíta Branislav Ivanovic,
leikmann Chelsea, í leik liðanna
um síðustu helgi.
Aðeins fjórir leikir eru eftir af
tímabilinu og Suarez verður því í
banni í fyrstu sex leikjum Liver-
pool á næstu leiktíð.
Suarez mótmælti ekki kær-
unni er hún var gefin út en hann
sagði þá að þriggja leikja bann
væri hæfileg refsing fyrir bitið.
Dómstóll enska knattspyrnu-
sambandsins var ekki á sama
máli.
„Félagið og leikmaðurinn eru
mjög hissa á því hversu langt
bannið er. Við bíðum nú eftir
skriflegum rökstuðningi fyrir
banninu og munum ekki tjá
okkur frekar fyrr en við höfum
farið yfir hann,“ sagði Ian Ayre,
framkvæmda stjóri Liverpool.
Suarez hefur fram á föstudag til
þess að áfrýja banninu. - hbg
Fékk tíu leikja bann
Luis Suarez refsað grimmilega fyrir að bíta í leik.
BANABITI SUAREZ? Menn velta nú
fyrir sér hvort Suarez eigi framtíð fyrir
sér hjá Liverpool. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Uli Höness, forseti
Bayern München, var handtek-
inn af þýsku lögreglunni í síðasta
mánuði fyrir skattsvik. Honum
var síðan sleppt gegn því að
greiða fimm milljónir evra, 762
milljónir króna, í tryggingu.
Höness liggur nú undir grun
fyrir að hafa stundað skattsvik í
Þýskalandi með því að fela háar
fjárhæðir í svissneska banka-
kerfinu.
Málið hefur vakið talsverða
athygli í Þýskalandi og Angela
Merkel, kanslari Þýskalands,
lýsti meðal annars vonbrigðum
sínum með gjörðir Höness.
Sjálfur hefur hann viðurkennt
að hafa gert mistök en að hann
vilji bæta fyrir þau. Höness var
viðstaddur þegar að Bayern
vann 4-0 stórsigur á Barcelona í
undan úrslitum Meistaradeildar
Evrópu í gær.
Höness gæti fengið fangelsis-
dóm verði hann ákærður og sak-
felldur. - esá
Forseti Bayern
handtekinn
9 mánuðir - Eric Cantona, leikmaður
Manchester United, árið 1995 fyrir karatespark
í áhorfanda.
9 mánuðir - Mark Bosnich, markvörður Chelsea,
fyrir notkun á kókaíni árið 2003.
8 mánuðir - Rio Ferdinand, leikmaður Man-
chester United, sem mætti ekki í lyfjapróf árið
2003.
7 mánuðir - Adrian Mutu, leikmaður Chelsea,
féll á lyfjaprófi árið 2004.
12 leikir - Joey Barton, leikmaður Queens Park
Rangers, fyrir ofbeldisfulla hegðun, í lokaleik
tímabilsins í fyrra gegn Manchester City.
11 leikir - Paolo di Canio, leikmaður Sheffield
Wednesday, fyrir að stjaka við dómaranum Paul
Alcock árið 1998.
10 leikir - David Prutton, leikmaður Southamp-
ton, fyrir að stjaka við dómaranum Alan Wiley
árið 2005.
10 leikir - Luis Suarez, leikmaður Liverpool,
fyrir að bíta Branislav Ivanovic, leikmann
Chelsea.
9 leikir - Paul Davis, leikmaður Arsenal, fyrir að
kýla og kjálkabrjóta Glenn Cockerill, leikmann
Southampton, árið 1998.
8 leikir - Luis Suarez, leikmaður Liverpool, fyrir
kynþáttaníð í garð Patrice Evra, leikmanns
Manchester United.
➜ Lengstu bönnin í enska boltanum
Veiðimenn sjá um eigin kost en geta fengið máltíðir sé þess óskað.
Pantanir og nánari upplýsingar fást í síma 696 1130 og gisli@laxinn.is
Laus veiðileyfi
VESTURÁRDALUR ehf.
HAFRALÓNSÁ
6 stanga holl:
26.-29. ág., 55.000 kr. pr. dag
29. ág.-1. sept., 48.000 kr. pr. dag
7.-10. sept., 35.000 kr. pr. dag
10.-13. sept., 32.000 kr. pr. dag
4 stanga holl:
13.-16. sept., 30.000 kr. pr. dag
16.-19. sept., 30.000 kr. pr. dag
Laus veiðileyfi í einni rómuðustu stórlaxaá landsins.
Stórbrotið umhverfi og stórir laxar!
Veiðimenn sjá sjálfir um uppihald í mjög góðu húsi.
Meðalveiði síðustu ár hefur verið 250-300 laxar á sumri.
Verð á stöng á dag er 85.000. Þetta er einstakt tækifæri til að
komast að í þessari eftirsóttu á.
Pantanir og nánari upplýsingar fást í síma 696 1130 og gisli@laxinn.is
Nýttu tækifærið!
VESTURÁRDALUR ehf.
VESTURDALSÁ
27.- 30. júlí
30. júlí - 2. ágúst
5. – 8. ágúst
Það voru að losna nokkur holl í þessari eftirsóttu perlu.
3 stangir í 3 daga á besta tíma!
FÓTBOLTI Pólverjinn Robert
Lewandowski átti hugsanlega
besta leik ferilsins í gær er hann
skoraði öll fjögur mörk Dortmund
í 4-1 sigri á Real Madrid.
Þetta var fyrri leikur liðanna í
undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu. Real hefur verk að vinna
í síðari leiknum sem fram fer á
Santiago Bernabéu.
Þrjú marka Lewandowski komu
úr opnum leik og eitt þeirra kom
úr afar öruggri vítaspyrnu. Það
var Cristiano Ronaldo sem skor-
aði mark Real Madrid í leiknum.
- hbg
Ferna hjá Lewandowski
Robert Lewandowski sá um að afgreiða Real Madrid.
FERNA Lewandowski fagnar fjórða markinu í gær. NORDICPHOTOS/AFP