Fréttablaðið - 26.04.2013, Page 4

Fréttablaðið - 26.04.2013, Page 4
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 EFNAHAGSMÁL Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur tekið ákvarðanir um vexti á grundvelli áætlana um efnahagsbata sem ekki hafa gengið eftir. Þetta segir í nýju áliti Samtaka atvinnulífs- ins (SA). „Horfur í efnahags- og verð- lagsmálum eru aðrar og lakari en vaxtahækkunarferli undanfarinna misseri byggði á,“ segir í álitinu. SA telja því fullt tilefni til þess að stýrivextir verði lækkaðir veru- lega á næstunni og atvinnulífið með því hvatt til fjárfestinga. - óká SA kalla á lækkun vaxta: Hvetja þarf til fjárfestinga DÝRAHALD „Íbúar eru orðnir lang- þreyttir á að ekki virðist á neinn hátt tekið á málinu,“ segir hverfis- ráð Selfoss sem kveðst hafa fengið fjölda ábendinga vegna lausagöngu katta og hunda í bænum. „Gerir hverfisráðið þá kröfu að málinu verði flýtt og komið með úrlausnir sem raunverulega breyta þeirri stöðu sem er uppi,“ segir hverfisráðið og gagnrýnir einnig hversu gerð nýrrar hundasamþykkt- ar gangi hægt, að ekki sé minnst á kanínur sem geri íbúum lífið leitt. „Virðast þær vera farnar að gera sig heimakomnar í flestum íbúða- hverfum Selfoss og spurning hvort ekki þurfi, með einhverjum sýni- legum ráðum, að taka á þeim vanda sem fyrst.“ - gar Hverfisráð á Selfossi ítrekar: Íbúar þreyttir á lausum köttum SELFOSS Íbúar vilja „raunverulega“ breytingu. Erfitt gæti reynst að úthluta þing- sætum í samræmi við fylgi flokk- anna á landsvísu í kosningunum á laugardaginn vegna skorts á upp- bótarþingmönnum. Það gæti leitt til þess að flokkur eða flokkar fái fleiri þingmenn en fylgi þeirra segir til um, segir Þorkell Helgason, stærð- fræðingur og fyrrverandi prófessor. Þingsætunum 63 er úthlutað í tvennu lagi. Annars vegar eru 54 kjördæmakjörnir þingmenn, en hins vegar níu jöfnunarþingmenn. „Jöfnunarsætin eru hugsuð til þess að það náist pólitískur jöfn- uður, að flokkarnir fái þingsæti í samræmi við landsfylgið,“ segir Þorkell. „Markmiðið var að flokk- arnir fengju þingmenn eins og land- ið væri eitt kjördæmi.“ Hann segir að stjórnvöldum hafi oft verið bent á að níu jöfnunarþing- menn geti hæglega orðið of fáir til að ná því markmiði. Það getur til dæmis gerst þannig að flokkur fái fleiri kjördæmissæti en fylgi flokks- ins á landsvísu segir til um, vegna misjafns atkvæðavægis milli kjör- dæma og sterkrar stöðu þess flokks í landsbyggðarkjördæmunum. Þá gæti pólitískt misvægi orðið til komist margir flokkar yfir fimm prósenta þröskuldinn. Nái þrjú framboð rétt yfir fimm prósenta fylgi en fengju engan kjördæmis- kjörinn þingmann, geti þau fengið alla níu jöfnunarþingmennina. „Það var meðvitað hjá höfundum laganna árið 2000 að skortur á jöfn- unarþingmönnum myndi fyrst og fremst bitna á stóru flokkunum,“ segir Þorkell. Þá leiði það til þess að ekki náist að jafna innbyrðis milli stóru flokkanna. Verði niðurstöður kosninga í takti við skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem fjallað er um á síðu 12, fær Framsóknarflokkur- inn einum þingmanni meira en hann ætti að fá samkvæmt landsfylgi. Sá yrði á kostnað Sjálfstæðisflokksins sem fengi einum færri en landsfylg- ið segir til um, segir Þorkell. Hann segir dæmi um mun meiri skekkju af þessum orsökum í niður- stöðum sumra annarra skoðana- kannana fyrir þessar kosningar. Í sumum tilvikum hafi skort fimm til tíu jöfnunarþingmenn til að ná full- kominni jöfnun þingsæta miðað við kjörfylgi. Þorkell, sem sat í stjórn- lagaráði, segir tillögur ráðsins hafa tekið á þessum vanda, og miðað að því að tryggja fullan jöfnuð milli flokka. brjann@frettabladid.is Jöfnunarþingmennirnir gætu reynst vera of fáir Hætta er á að sterkir landsbyggðarflokkar fái fleiri þingmenn en fylgi á landsvísu segir til um segir stærðfræð- ingur. Markmið með jöfnunarþingmönnum var að koma í veg fyrir það. Lítil framboð gætu sópað þeim upp. JAFNIR Jöfnunarþingmenn eru hugsaðir til að flokkar fái þingsæti í samræmi við fylgi þeirra á landsvísu, líkt og ef landið væri allt eitt kjördæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Allt stefnir í að metfjöldi atkvæða í komandi alþingis- kosningum verði greiddur framboðum sem ekki koma mönnum á þing. Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem nánar er fjallað um á síðu 12, myndu lítil framboð fá samtals 11,6 prósent atkvæða. „Það eru engin dæmi um það að svo mikið fylgi leiði ekki til þingsæta frá því hlutfallskosningar voru alfarið teknar upp 1959. Fyrra met í þessum efnum var helmingi lægra,“ segir Þorkell Helgason, fyrrverandi prófessor. Það gerðist árið 1978, þegar hlutfallið var 5,5 prósent. Framboð þurfa að ná fimm prósenta fylgi til að eiga rétt á jöfnunarþingmönnum, þó framboð sem fá minna fylgi geti vissulega fengið kjördæmakjörna þingmenn. „Það er auðvitað pólitísk spurning hvort það á að vera þröskuldur, en svona er staðan,“ segir Þorkell. Hann bendir þó á að tal um „dauð atkvæði“ sé á villigötum, enda séu alltaf fjölmörg atkvæði sem ekki nýtist flokkum til að fá þingmenn. Þannig geti flokkur þurft 30 þúsund atkvæði til að fá tíu þingmenn, en 33 þúsund til að ná ellefu. Fái flokkurinn 32 þúsund atkvæði gagnist tvö þúsund ekki, og falli tæknilega séð dauð niður. Þannig sé alltaf óhjákvæmilegt að atkvæði falli dauð niður, sama hverjum atkvæðið sé greitt. Alltaf atkvæði sem falla dauð niður BANDARÍKIN, AP Bræðurnir sem sprengdu tvær sprengjur í Boston-maraþoninu í síðustu viku ætluðu að sprengja fimm sprengjur til viðbótar á Times Square í New York. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, greindi frá þessu í gær. Bloomberg og lögreglustjór- inn Raymond Kelly töluðu um málið á blaðamannafundi. Þeir sögðu að Dzhokhar Tsarnaev, yngri bróðirinn og sá sem lifði af, hefði greint lögreglumönnum frá þessu. Bræðurnir hafi ákveð- ið í skyndi að þeir myndu keyra til New York og sprengja þar. Það átti að gerast á fimmtudag í síð- ustu viku, þegar þeir rændu bíl. „Áætlanirnar féllu um sjálfar sig þegar þeir gerðu sér grein fyrir því að bíllinn sem þeir rændu var bensínlítill og þeir skipuðu bíl- stjóranum að stoppa á nálægri bensínstöð,“ sagði Kelly. Bílstjór- inn flúði hins vegar og hringdi á lögreglu, sem elti bræðurna uppi á stolna bílnum. Faðir bræðranna greindi í gær frá því að hann væri á leið til Bandaríkjanna, en fjölskyldan vill jarða eldri bróðurinn í Rúss- landi. - þeb Tsarnaev-bræður voru á leið á Times Square þegar lögregla stöðvaði þá: Ætluðu að sprengja í New York DZHOKHAR OG TAMERLAN Tsarnaev ÞORKELL HELGASON DÓMSMÁL Símon Sigvaldason mun taka við sem dómari í al- Thani-málinu svokallaða. Einnig er fyrirhugað að aðalmeðferð málsins fari fram í október en ekki í febrúar á næsta ári eins og talið var. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. Símon tekur við málinu af Pétri Guðgeirssyni sem er að fara í veikindaleyfi. Málinu var frest- að fyrir nokkru þar sem Gestur Jónsson og Ragnar H. Hall verj- endur sögðu sig frá málinu. - þeb Aðalmeðferð í október: Símon tekur við al-Thani 2013 207,1194 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 116,86 117,42 178,58 179,44 152,08 152,94 20,4 20,52 19,789 19,905 17,686 17,79 1,1722 1,179 175,4 176,44 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 24.4.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is gerir grillmat að hreinu lostæti! E N N E M M /S IA /N M 57 44 6 E N N E M M / S IA / N M 57 44 6 Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Sunnudagur Hvasst/stormur norðanlands, hægari sunnan til. VAXANDI VINDUR um vestanvert landið í kvöld með úrkomu sem gengur til austur í nótt. Á morgun verður minnkandi rigning en annað kvöld snýst í vaxandi norðanátt með snjókomu norðanlands og jafnvel stormi um tíma á sunnudag. 1° 7 m/s 1° 6 m/s 1° 2 m/s 2° 6 m/s Á morgun Strekkingur/hvasst með S-ströndinni annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 3° 0° 3° 0° -1° Alicante Aþena Basel 21° 27° 17° Berlín Billund Frankfurt 24° 11° 21° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 24° 9° 9° Las Palmas London Mallorca 25° 12° 20° New York Orlando Ósló 17° 28° 13° París San Francisco Stokkhólmur 16° 17° 10° 3° 2 m/s 2° 5 m/s -1° 2 m/s -1° 4 m/s -1° 3 m/s 0° 5 m/s -4° 1 m/s 6° 4° 8° 7° 6°

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.