Fréttablaðið - 26.04.2013, Page 10

Fréttablaðið - 26.04.2013, Page 10
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 9 6 4 FRÉTTASKÝRING Hvað hefur ríkisstjórnin samið um há útgjöld síðan þingi var frestað? Ríkisstjórnin og einstaka ráðherrar hafa samið um útgjöld fyrir hönd ríkissjóðs sem hlaupa á milljörðum króna frá því að Alþingi var frestað 28. mars. Nokkuð erfitt er að henda nákvæmlega reiður á upphæðinni, þar sem ekki er ljóst hver kostnað- ur verður að fullu við ókeypis tann- lækningar fyrir börn fyrr en í janú- ar 2018. Frá þeim tíma verður hann 1,5 milljarður króna á ári. Að barnatannlækningum sleppt- um er stærsti einstaki útgjaldalið- urinn aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila að meðtöldum lánsveðslán- um. Kostnaðurinn af þeirri aðgerð er óljós, en sé miðað við kostnað við 110 prósent leiðina er áætlað að kostnaðurinn verði 1,5 til 2,5 millj- arðar króna. Þá hefur ríkisstjórnin samþykkt að heimila Íbúðalánasjóði að lána Félagsstofnun stúdenta 1.260 millj- ónir króna, en ríkissjóður mun niðurgreiða lánið sem nemur mis- muninum á 3,5 prósenta vöxtum og almennum útlánsvöxtum sjóðsins, Rétt er að taka það fram að í nokkrum tilvikum er um reglu- bundin útgjöld að ræða. Innanríkis- ráðherra hefur tilkynnt um viðbót- arframlag til lögreglunnar vegna rannsókna á skipulagðri brotastarf- semi í apríl undanfarin ár. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra og Guðbjartur Hannes- son velferðarráðherra eru dugleg- astir að gera samninga um útgjöld. Innanríkisráðherra hefur gert þrjá slíka upp á 268 milljónir króna og staðið að þeim fjórða, ásamt vel- ferðar- og forsætisráðherra sem nemur 79 milljónum króna. G u ð bj a r t u r H a n n e s s o n velferðar ráðherra hefur staðið einn að einum slíkum samningi, en það er fyrrnefndur samningur vegna tannlækninga barna. Þá var það að tillögu hans að ríkisstjórnin samþykkti lánið til Félagsstofnun- ar stúdenta sem og að ráðstafa 250 milljónum króna úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði í átaksverkefni um sumarstörf fyrir námsmenn. Ögmundur og Guðbjartur eru síðan í ráðherranefndinni sem skrifaði undir viljayfirlýsingu um aðgerðir vegna lánsveðslána, ásamt Katrínu Júlíusdóttir fjármálaráð- herra og Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra. kolbeinn@frettabladid.is Ráðstafa milljörðum úr ráðherrastólunum Útgjöld sem ríkisstjórnin og einstakir ráðherrar hafa samþykkt síðan Alþingi var frestað hlaupa á milljörðum króna. Einstaka samningar eru allt frá þremur millj- ónum í allt að 2,5 milljarða. Samið um útgjöld til nokkurra ára í sumum tilvikum. „Þetta er ekkert annað en tiltölulega augljós tilraun til að kaupa sér vinsældir,“ segir Gunnar Helgi Krist- insson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, um útgjöld ráðherra á síðustu vikunum fyrir kosningar, þegar þing er farið heim. Hann segir þetta hafa verið gagnrýnt áður, meðal annars árið 2007 þegar útgjöldin hafi verið umtalsverð. Þá hafi þeir sem nú standa í því sama verið gagnrýnir. Gunnar Helgi vill koma böndum á þetta. „Þetta er mjög óheppilegt. Það væri langeðlilegast að það væri reynt að koma einhverjum böndum á heimildir ráðherra til að gera svona hluti eftir að kosningabarátta er hafin. Kannski einhverja mánuði fyrir kosningar, eða eitthvað slíkt.“ Gunnar Helgi segir að í raun geti ráðherrar ekki skuldbundið ríkissjóð á þennan hátt, slíkt verði að gerast í fjárlögum eða með aukafjárveitingum sem eru háðar samþykkti Alþingis. „Það þarf auðvitað samþykki Alþingis þegar fjáraukalög eru lögð fram og auðvitað getur Alþingi þá strangt til tekið hafnað þessari fjárveitingu, þó það sé ekki hefð fyrir að gera það.“ Augljós tilraun til að kaupa vinsældir 24. apríl 40 milljónir 23. apríl 3 milljónir 23. apríl 1,5 til 2,5 milljarðar 23. apríl 25 milljónir 21. apríl 240 milljónir 19. apríl 20 milljónir 11. apríl ??? 9. apríl 250 milljónir 5. apríl 1.260 milljónir 5. apríl 79 milljónir SAMÞYKKT EFTIR AÐ ÞING FÓR HEIM GUNNAR HELGI KRISTINSSON Ráðherrar eru gjarnir á að semja um útgjöld fyrir ríkissjóð síðustu vikur fyrir kosningar, þegar þeir eru lausir undan fjárveitingar- valdi Alþingis. Uppbygging í stækkuðu friðlandi í Þjórsárverum. Ríkisstjórnin samþykkir tillögu forsætis- ráðherra. Stuðningur við hælisleitendur. Innanríkisráðherra. Viljayfirlýsing um aðgerðir vegna lánsveða. Katrín Júlíusdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Ögmundur Jónasson og Guðbjartur Hannesson. Viðbótarframlag til lögreglu vegna rannsóknar á skipulagðri glæpastarfsemi. Innanríkis- ráðherra. Styrkir til Landsbjargar vegna endurbóta á björgunarskipum. 30 milljónir árlega 2014 til 2021. Samið við 18 fyrirtæki um markaðsátak fyrir saltfisk. Atvinnuvegaráðherra og utanríkis- ráðherra. Samið við Sjúkratryggingar Íslands og Tannlæknafélag Íslands um tannlækningar fyrir börn. Óviss kostnaður næstu ár en árlegur kostnaður frá og með 1. janúar 2018 eru 1,5 milljarðar. Átaksverkefni um sumarstörf fyrir allt að 650 námsmenn. Ríkisstjórnin samþykki að tillögu velferðarráðherra. Íbúðalánasjóði veitt heimild til að lána Félagsstofnun stúdenta til byggingar námsmanna- íbúða. Ríkisstjórnin samþykkir að tillögu velferðarráðherra. Forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum. Ríkis- stjórnin samþykkir að tillögu forsætis-, velferðar- og innanríkisráðherra. PENINGASTREYMI ÚR STJÓRNARRÁÐINU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.