Fréttablaðið - 26.04.2013, Qupperneq 10
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
9
6
4
FRÉTTASKÝRING
Hvað hefur ríkisstjórnin samið um há
útgjöld síðan þingi var frestað?
Ríkisstjórnin og einstaka ráðherrar
hafa samið um útgjöld fyrir hönd
ríkissjóðs sem hlaupa á milljörðum
króna frá því að Alþingi var frestað
28. mars.
Nokkuð erfitt er að henda
nákvæmlega reiður á upphæðinni,
þar sem ekki er ljóst hver kostnað-
ur verður að fullu við ókeypis tann-
lækningar fyrir börn fyrr en í janú-
ar 2018. Frá þeim tíma verður hann
1,5 milljarður króna á ári.
Að barnatannlækningum sleppt-
um er stærsti einstaki útgjaldalið-
urinn aðgerðir í þágu yfirveðsettra
heimila að meðtöldum lánsveðslán-
um. Kostnaðurinn af þeirri aðgerð
er óljós, en sé miðað við kostnað
við 110 prósent leiðina er áætlað að
kostnaðurinn verði 1,5 til 2,5 millj-
arðar króna.
Þá hefur ríkisstjórnin samþykkt
að heimila Íbúðalánasjóði að lána
Félagsstofnun stúdenta 1.260 millj-
ónir króna, en ríkissjóður mun
niðurgreiða lánið sem nemur mis-
muninum á 3,5 prósenta vöxtum og
almennum útlánsvöxtum sjóðsins,
Rétt er að taka það fram að í
nokkrum tilvikum er um reglu-
bundin útgjöld að ræða. Innanríkis-
ráðherra hefur tilkynnt um viðbót-
arframlag til lögreglunnar vegna
rannsókna á skipulagðri brotastarf-
semi í apríl undanfarin ár.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra og Guðbjartur Hannes-
son velferðarráðherra eru dugleg-
astir að gera samninga um útgjöld.
Innanríkisráðherra hefur gert þrjá
slíka upp á 268 milljónir króna og
staðið að þeim fjórða, ásamt vel-
ferðar- og forsætisráðherra sem
nemur 79 milljónum króna.
G u ð bj a r t u r H a n n e s s o n
velferðar ráðherra hefur staðið
einn að einum slíkum samningi,
en það er fyrrnefndur samningur
vegna tannlækninga barna. Þá var
það að tillögu hans að ríkisstjórnin
samþykkti lánið til Félagsstofnun-
ar stúdenta sem og að ráðstafa 250
milljónum króna úr Atvinnuleysis-
tryggingasjóði í átaksverkefni um
sumarstörf fyrir námsmenn.
Ögmundur og Guðbjartur eru
síðan í ráðherranefndinni sem
skrifaði undir viljayfirlýsingu um
aðgerðir vegna lánsveðslána, ásamt
Katrínu Júlíusdóttir fjármálaráð-
herra og Steingrími J. Sigfússyni
atvinnuvegaráðherra.
kolbeinn@frettabladid.is
Ráðstafa milljörðum
úr ráðherrastólunum
Útgjöld sem ríkisstjórnin og einstakir ráðherrar hafa samþykkt síðan Alþingi var
frestað hlaupa á milljörðum króna. Einstaka samningar eru allt frá þremur millj-
ónum í allt að 2,5 milljarða. Samið um útgjöld til nokkurra ára í sumum tilvikum.
„Þetta er ekkert annað en tiltölulega augljós tilraun
til að kaupa sér vinsældir,“ segir Gunnar Helgi Krist-
insson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, um útgjöld
ráðherra á síðustu vikunum fyrir kosningar, þegar þing
er farið heim. Hann segir þetta hafa verið gagnrýnt
áður, meðal annars árið 2007 þegar útgjöldin hafi
verið umtalsverð. Þá hafi þeir sem nú standa í því
sama verið gagnrýnir. Gunnar Helgi vill koma böndum
á þetta.
„Þetta er mjög óheppilegt. Það væri langeðlilegast
að það væri reynt að koma einhverjum böndum á
heimildir ráðherra til að gera svona hluti eftir að
kosningabarátta er hafin. Kannski einhverja mánuði
fyrir kosningar, eða eitthvað slíkt.“
Gunnar Helgi segir að í raun geti ráðherrar ekki
skuldbundið ríkissjóð á þennan hátt, slíkt verði að
gerast í fjárlögum eða með aukafjárveitingum sem
eru háðar samþykkti Alþingis. „Það þarf auðvitað
samþykki Alþingis þegar fjáraukalög eru lögð fram
og auðvitað getur Alþingi þá strangt til tekið hafnað
þessari fjárveitingu, þó það sé ekki hefð fyrir að gera
það.“
Augljós tilraun til að kaupa vinsældir
24. apríl 40 milljónir
23. apríl 3 milljónir
23. apríl 1,5 til 2,5 milljarðar
23. apríl 25 milljónir
21. apríl 240 milljónir
19. apríl 20 milljónir
11. apríl ???
9. apríl 250 milljónir
5. apríl 1.260 milljónir
5. apríl 79 milljónir
SAMÞYKKT EFTIR AÐ ÞING FÓR HEIM
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
Ráðherrar eru gjarnir á
að semja um útgjöld fyrir
ríkissjóð síðustu vikur fyrir
kosningar, þegar þeir eru
lausir undan fjárveitingar-
valdi Alþingis.
Uppbygging í stækkuðu friðlandi í Þjórsárverum. Ríkisstjórnin samþykkir tillögu forsætis-
ráðherra.
Stuðningur við hælisleitendur. Innanríkisráðherra.
Viljayfirlýsing um aðgerðir vegna lánsveða. Katrín Júlíusdóttir, Steingrímur J. Sigfússon,
Ögmundur Jónasson og Guðbjartur Hannesson.
Viðbótarframlag til lögreglu vegna rannsóknar á skipulagðri glæpastarfsemi. Innanríkis-
ráðherra.
Styrkir til Landsbjargar vegna endurbóta á björgunarskipum. 30 milljónir árlega 2014 til
2021.
Samið við 18 fyrirtæki um markaðsátak fyrir saltfisk. Atvinnuvegaráðherra og utanríkis-
ráðherra.
Samið við Sjúkratryggingar Íslands og Tannlæknafélag Íslands um tannlækningar fyrir börn.
Óviss kostnaður næstu ár en árlegur kostnaður frá og með 1. janúar 2018 eru 1,5 milljarðar.
Átaksverkefni um sumarstörf fyrir allt að 650 námsmenn. Ríkisstjórnin samþykki að tillögu
velferðarráðherra.
Íbúðalánasjóði veitt heimild til að lána Félagsstofnun stúdenta til byggingar námsmanna-
íbúða. Ríkisstjórnin samþykkir að tillögu velferðarráðherra.
Forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum. Ríkis-
stjórnin samþykkir að tillögu forsætis-, velferðar- og innanríkisráðherra.
PENINGASTREYMI ÚR STJÓRNARRÁÐINU