Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 12
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | ASKÝRING | 12
2013
HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 22. TIL 24. APRÍL 2013FYLGI FLOKKANNA
H
úm
an
is
ta
-
fl
ok
ku
ri
nn
St
ur
la
Jó
ns
so
n
La
nd
sb
yg
gð
ar
-
fl
ok
ku
ri
nn
A
lþ
ýð
uf
yl
ki
ng
in
R
eg
nb
og
in
n
P
ír
at
ar
Fl
ok
ku
r
he
im
ila
nn
a
Lý
ðr
æ
ði
s-
va
kt
in
D
ög
un
40%
30%
20%
10%
0%
22
,9
%
14
,7
%
10
,9
%
25
,4
%
7,
6%
2,
4%
0,
2% 2
,7
%
0,
9%
0,
2% 2,
0%
0,
1%
0,
1% 3
,0
% 6,
3%
6,
5%
30
,3
%
26
,9
%
0,
8%
0,
0% 2,
4%
0,
0%
0,
1% 1,
7%
0,
2%
0,
1% 3
,0
%
13
,7
%
7,
9%
5,
6%
Framsóknarflokkurinn er enn stærsti
flokkurinn þó hann hafi tapað fylgi frá síð-
ustu viku. Heldur dregur úr stuðningi við
Sjálfstæðisflokkinn, en stjórnarflokkarnir
styrkja stöðu sína á síðustu dögunum fyrir
kosningar, samkvæmt niðurstöðu skoðana-
könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Samkvæmt könnuninni, sem gerð var
dagana 22. til 24. apríl, er aðeins einn
möguleiki á tveggja flokka stjórn, sam-
starf Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
Flokkarnir hafa innan við helming
atkvæða á bak við sig, samanlagt 48,3 pró-
sent, en fengju 36 þingmenn kjörna.
Framsóknarflokkurinn fengi 25,4 pró-
sent atkvæða og nítján þingmenn kjörna
samkvæmt könnuninni. Í könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2 sem birt var í síðustu
viku mældist fylgi flokksins 30,3 prósent
og hefur því látið verulega undan síga.
Flokkurinn hefur hvað sem því líður
styrkt stöðu sína verulega frá kosning-
unum 2009 þegar 14,8 prósent kusu Fram-
sókn.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 22,9 prósent
atkvæða samkvæmt könnuninni og sautján
þingmenn. Þetta er undir 23,7 prósenta
kjörfylgis flokksins í kosningunum 2009.
Það hlýtur að vera forystu flokksins veru-
legt áhyggjuefni að fylgið mælist svipað og
í síðustu kosningum í vikunni fyrir alþing-
iskosningarnar á laugardag, enda fylgið í
sögulegu lágmarki eftir hrunið í kosning-
unum 2009.
Samfylkingin hefur sótt á síðustu vik-
una, og fengi 14,7 prósent atkvæða og tíu
þingmenn yrðu niðurstöður kosninganna á
laugardag í takti við könnun Fréttablaðs-
ins og Stöðvar 2.
Fylgisaukningin á síðustu metrunum
er lítil huggun fyrir forystu flokksins.
Flokkurinn stefnir í sögulegt fylgistap og
hefur tapað meira en helmingi fylgis síns
frá kosningunum 2009, þegar 29,8 prósent
kusu Samfylkinguna.
Vinstri grænir hafa bætt við sig á síð-
ustu viku, mælast nú með 10,9 prósenta
fylgi samanborið við 7,9 prósent í síðustu
könnun. Þeir fengju átta þingmenn yrði
þetta niðurstaða kosninganna á laugar-
dag. Eins og hinn stjórnarflokkurinn hafa
Vinstri grænir tapað helmingi kjörfylgis
síns, en þeir fengu 21,7 prósenta fylgi í síð-
ustu kosningum.
Björt framtíð fengi 7,6 prósenta fylgi
yrði kosið nú samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við
flokkinn hefur heldur þokast upp á við
frá síðustu könnun, en er vel innan við
helmingur þess stuðnings sem flokkurinn
naut samkvæmt skoðanakönnunum í lok
janúar, þegar 16,4 prósent studdu flokk-
inn. Björt framtíð fengi fimm þingmenn
miðað við þessa niðurstöðu.
Stuðningur við Pírata hefur aukist lítil-
lega frá síðustu viku, þeir fengju 6,3 pró-
sent atkvæða yrði kosið nú samkvæmt
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, en
mældust með stuðning 5,6 prósenta fylgi í
síðustu viku. Píratar kæmu fjórum mönn-
um á þing yrðu þetta niðurstöður kosn-
inga.
Aðrir flokkar næðu ekki mönnum á þing,
samkvæmt könnuninni.
Ein tveggja flokka stjórn möguleg
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafa tapað fylgi síðustu vikuna samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Þeir eru þrátt
fyrir það einu flokkarnir sem geta myndað tveggja flokka stjórn. Stjórnarflokkarnir styrkja stöðu sína heldur en stefna í sögulegt fylgistap.
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Úrtakið í könnuninni var 2.699 manns
en hringt var þar til náðist í 2.000 sam-
kvæmt lagskiptu úrtaki dagana 22. til
24. apríl. Svarhlutfallið var 74,1 prósent.
Þátttakendur voru valdir með slembiúr-
taki úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt
eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu
og aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir þú
kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í
dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða
flokk er líklegast að þú myndir kjósa?
Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra
að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn
eða einhvern annan flokk? Alls tóku
67,3 prósent þátttakenda í könnuninni
afstöðu til spurningarinnar.
➜ Aðferðafræðin
Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 var gerð á þriggja daga tímabili, og náði til 2.000 kjósenda.
Hringt var í eitt þúsund manns á mánudags- og þriðjudagskvöld, og niðurstöðurnar birtar
í Fréttablaðinu á miðvikudag. Á miðvikudag var hringt í eitt þúsund til viðbótar og svörum
þeirra bætt við hin svörin til að fá sem nákvæmasta niðurstöðu.
Séu niðurstöðurnar eftir fyrri kvöldin tvö bornar saman við niðurstöðurnar frá því á mið-
vikudagskvöld kemur í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokksins er að dragast saman, en stuðningur við
stjórnarflokkana og Dögun aukast.
Þannig mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 21,9 prósent í þeim hluta könnunarinnar sem
unnin var á miðvikudag, og Framsóknarflokkurinn með 25,1. Samfylkingin virðist hins vegar á
siglingu með 16,1 prósents fylgi og Vinstri græn með 11,5 prósent.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Á NIÐURLEIÐ
FJÖLDI ÞINGMANNA Í
NORÐVESTURKJÖRDÆMI
FJÖLDI ÞINGMANNA Í
NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
FJÖLDI ÞINGMANNA Í
SUÐURKJÖRÆMI
FJÖLDI ÞINGMANNA Í
SUÐVESTURKJÖRÆMI
FJÖLDI ÞINGMANNA Í
REYKJAVÍK NORÐUR
FJÖLDI ÞINGMANNA Í
REYKJAVÍK SUÐUR
SKIPTING ÞINGSÆTA
Þingsæti nú
Miðað við
könnunina
22. til 24.
apríl 2013
19
17
10
4
8
529
16
19
11
3
Dögun
2
Píratar
1
Utan
flokka
SKIPTING ÞINGSÆTA FLOKKANA EFTIR KJÖRDÆMUM
Tvö ný framboð, Björt framtíð og Píratar, ná mönnum á þing samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var 22. til 24. apríl. Alls ætla 11,6 prósent að
greiða flokkum sem ekki ná mönnum á þing atkvæði sitt, samkvæmt niðurstöðum könnunar-
innar, sem yrði metfjöldi frá því núverandi kosningakerfi var tekið upp árið 1959.
Dögun kemst næst því að ná mönnum á þing, en þrjú prósent landsmanna styðja flokkinn
samkvæmt könnuninni. Flokkur heimilanna nýtur svipaðs stuðnings, 2,7 prósent ætla að kjósa
flokkinn á laugardag.
Hægri grænir eru ekki langt undan með 2,4 prósenta stuðning, og Lýðræðisvaktin mælist
með stuðning tveggja prósenta.
Aðrir flokkar mælast með stuðning undir einu prósenti. Regnboginn mælist með 0,9
prósent, Húmanistaflokkurinn og Sturla Jónsson með 0,2 prósent og Landsbyggðarflokkurinn
og Alþýðuhreyfingin með 0,1 prósent.
METFJÖLDI VILL FRAMBOÐ SEM NÁ EKKI INN