Fréttablaðið - 26.04.2013, Síða 16

Fréttablaðið - 26.04.2013, Síða 16
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 16 Sumardagurinn fyrsti Sumar- komu fagnað Vetur og sumar frusu saman víðs- vegar um landið, sem þykir vita á gott sumar. Sumarkomunni langþráðu var fagnað um allt land í gær. FÁNABERI Það er ekki auðvelt verk að bera íslenska fánann í skrúðgöngu á sumardaginn fyrsta, og nauðsynlegt að vera með vettlinga. MIKIL KÁTÍNA Í KASTALANUM Hoppukastalar vekja alltaf mikla lukku fólks á öllum aldri, og ekki síður þegar bæði rennibraut og lítil þrautabraut leynast í kastalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL STUÐ Þessar tvær ungu dömur skemmtu sér vel og voru þjóðlegar með fána í hönd. SVALUR Í KLIFRINU Það var nóg fyrir börnin að gera bæði í Grafarvogi og Árbæ, þar sem ljósmyndari Fréttablaðsins kíkti á stemninguna. Þessi átti auðvelt með klifurbrautina. NAPURT Á FYRSTA DEGI SUMARS Þessum strák virtist ekkert sérlega hlýtt þrátt fyrir að sumarið sé tæknilega komið til landsins. SKRÚÐGANGAN Skrúðgöngur tilheyra hátíðahöldunum á sumardaginn fyrsta um allt landið. Lúðrasveitir og íslenskir fánar eru bestu fylgihlutirnir, auk þess sem það borgar sig að vera vel klæddur eins og þessir göngumenn vissu. VIÐ STÝRIÐ Kassabílar sjást ekki svo oft á götum borgarinn- ar, en þessar stelpur áttu ekki erfitt með að fara um á einum slíkum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.