Fréttablaðið - 26.04.2013, Qupperneq 23
Umhverfisátak
Toshiki Toma, prestur inn-flytjenda á Íslandi, er ófeiminn við að tjá sig
um málefni líðandi stundar. Á
bloggsíðu hans og heimasíðu má
finna fjölda predikana, ljóða og
bloggfærslna um hin ýmsu mál-
efni ásamt fleiru. Þar á meðal
var neðangreind uppskrift sem
Toshiki tók vel í að deila með les-
endum. „Þetta er mjög einfaldur
og bragðgóður réttur og einn af
þeim sem ég lærði fljótlega eftir
að ég byrjaði að elda mat sjálfur,“
segir Toshiki um réttinn.
Uppskriftin er að steiktum
svínalundum með tómötum,
eggjum og edamame-baunum
fyrir tvo. „Þar sem svínakjöt er
bragðlítið kjöt læt ég það liggja í
sojasósu og mirin, þetta er sér-
staklega mikilvægt ef um steikta
rétti er að ræða eins og þennan.
Það góða við þennan rétt er að
hann er einfaldur og hráefnið
er auðfengið. Ég hvet fólk til að
prófa einu sinni.“ Heimasíða Tos-
hiki er www.toma.is og bloggsíð-
an hans er www.toshiki.blog.is.
BEINT FRÁ JAPAN
EINFALDUR RÉTTUR Toshiki Toma, presti innflytjenda, er margt til lista lagt.
Hann semur ljóð, bloggar um öll heimsins mál og er liðtækur í eldhúsinu.
200-240g svínalundir
150g frosnar Edamame-baunir í
baunaslíðrum (fæst í Hagkaup)
2 tómatar
3 egg
2 tsk. saxað engifer
1 tsk. kartöflumjöl
40 ml Kikkoman-sojasósa
20 ml mirinsósa
Jurtaolía eftir þörfum, ekki
ólívuolía.
AÐFERÐ
Skerið svínakjötið niður í fimm til
átta millimetra þykkar sneiðar.
Blandið saman mirin-, sojasósu
og kartöflumjöli í skál. Setjið
sneiðarnar út í og látið liggja í
leginum í um það bil klukkustund
við stofuhita. Sjóðið edamame-
baunabelgi samkvæmt leiðbein-
ingum á pakka. Búið til mjúka
eggjahræru á meðan edamame-
baunirnar kólna en takið svo
baunirnar úr baunaslíðrinu. Takið
eggjahræruna til hliðar. Skerið
hvern tómat niður í sex bita.
Setjið olíu á pönnu og steikið
engiferið. Bætið svínakjötinu á
pönnuna og steikið en reynið að
taka sem minnst af leginum með.
Þegar kjötið er orðið steikt er
tómötunum bætt út á þar til þeir
verða mjúkir. Varist að hræra of
mikið þannig að tómatarnir fari í
mauk. Hellið þá restinni af mirin-
og sojasósunni yfir og bætið við
baunum og eggjarhræru við og
blandið varlega saman. Berið
fram með hrísgrjónum.
SVÍNALUNDIR MEÐ TÓMÖTUM, EGGJUM OG
EDAMAME-BAUNUM.
Því miður er allt of fáum rafhlöðum skilað ár-
lega. Hægt er að skila rafhlöðum á söfnunar-
stöðvar sveitarfélaga, til söluaðila rafhlaðna og
bensínstöðva.
15% KYNNINGARAFSLÁTTURÍ APRÍL
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Glæsilegar hljóðlátar viftur
og hitablásarar með
air multiplier tækni.