Fréttablaðið - 26.04.2013, Síða 24
FÓLK|HELGIN
ODDVITINN
Katrín Theodórsdóttir
stýrir störfum yfirkjör-
stjórnar í Reykjavíkur-
kjördæmi norður.
MYND/GVA
Mikið mun mæða á yfirkjörstjór-num, öðrum kosninganefndum og starfsmönnum þeirra um
helgina þegar alþingiskosningar fara
fram. Stór hópur fólks víða um land
mun eyða laugardeginum og aðfaranótt
sunnudags við að aðstoða kjósendur og
flokka og telja atkvæði. Katrín Theo-
dórsdóttir er oddviti yfirkjörstjórnar í
Reykjavíkurkjördæmi norður og segir
hún annasama en skemmtilega helgi
fram undan. „Það er virkilega gaman
að vinna við kosningar og í raun minnir
þetta á vertíð þegar kosningavélin
er ræst og sett í fullan gang nokkrum
vikum fyrir kosningar. Með okkur er
stór hópur fólks sem margt hvert hefur
tekið þátt í svona starfi í áratugi.“
Á kjördag verður búið að breyta
Ráðhúsi Reykjavíkur í kjörstað eins og
undanfarin ár. „Fyrir utan að leiðbeina
og hjálpa kjósendum eftir þörfum þurfa
starfsmenn kjörstjórna að ganga frá
flóknum uppgjörum því allt þarf að
stemma áður en kjörgögnin eru afhent
yfirkjörstjórn sem hefur aðsetur í Ráð-
húsinu. Eftir lokun kjörstaða kl. 22.00
getur hin eiginlega talning farið fram en
þá hefur hópur fólks staðið og flokkað
seðla frá lokun hússins kl. 19.00.“ Þrátt
fyrir mikla fjölgun framboða í ár vonar
Katrín að flokkun atkvæða og talning
þeirra taki ekki lengri tíma en venju-
lega.
Um sjötíu manns eyða kvöldinu og
aðfaranótt sunnudags í Ráðhúsinu við
talningu atkvæða. Talningarfólkið er
svo öflugt að það er eins og að horfa á
sjónhverfingamenn að störfum að sögn
Katrínar. „Þessi vinna er eðli máls-
ins samkvæmt mikil nákvæmisvinna
og mesta pressan snýr að því að vera
tilbúinn með fyrstu tölur á réttum tíma.
Þessa vinnu þarf því að vinna af mikilli
nákvæmni og stundum er talið og
endurtalið til morguns ef dæmið gengur
ekki upp, en þá getur þurft að fara yfir
öll kjörgögnin aftur. Þeir sem vinna við
talningu vita svo sem hvað þeir eiga í
vændum og að nóttin geti orðið löng.
Það telst gott að vera búinn klukkan
þrjú um nóttu.“
Sunnudagur eftir kjördag verður því
rólegur dagur hjá Katrínu sem hyggst
eyða honum í hvíld og lestur, helst í
rúminu að eigin sögn. ■ starri@365.is
TALIÐ FRAM Á NÓTT
KOSNINGAR Fjöldi manns eyðir laugardagskvöldi og aðfaranótt sunnudags í
talningu atkvæða vegna alþingiskosninga sem fara fram um helgina
Þar er hægt að skoða hversu mikið má
spara með því að skipta um gler í hús-
inu og þannig lækka hitakostnaðinn.
Slíkt getur skipt verulegu máli, einkum
hjá þeim sem búa á hinum svokölluðu
köldu svæðum á landinu, því þar er
kyndingarkostnaður mun hærri en á
svæðum þar sem hús eru hituð með
jarðhitavatni.
Þar eru líka reiknivélar sem hjálpa
þér að bera saman mismunandi teg-
undir bifreiða, skoða hversu mikið
hver tegund eyðir og hvað rekstur
bifreiðarinnar er þá mikill á ári. Þessa
reiknivél er sjálfsagt að skoða áður en
ráðist er í bifreiðakaup. Einnig er hægt
að reikna út ferðakostnað bifreiða,
þegar farið er í lengri og styttri ferðir.
Þeir sem hjóla í vinnuna geta líka
reiknað út hversu mikið þeir spara
með því að hjóla í stað þess að
keyra í vinnuna. Einnig geta
þeir reiknað út hversu
miklu „eldsneyti“ –
eða kaloríum eytt
er í hverri ferð, því
þegar hjólað er þá
er verið að brenna
líkamsfitu í stað
jarðefnaeldsneytis.
HVERJU ERTU AÐ BRENNA?
Inni á vef Orkuseturs eru ótal reiknivélar þar sem hægt er að reikna út ýmsa
kostnaðarliði, sem snúa að gjöldum sem tengjast daglegu lífi flestra.
Sæktu þér nýja appið og hlustaðu á
FM957 hvar og hvenær sem er!
Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu QR kóðann
og sæktu Útvappið fyrir iOS eða Android.
Fáðu FM95BLÖ
í símann þinn!
Ný
tt
ap
p
GRÆNN APRÍL
GRÆNN APRÍL
hvetur þig til að leita
frekari upplýsinga inni á:
www.orkusetur.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir