Fréttablaðið - 26.04.2013, Page 28

Fréttablaðið - 26.04.2013, Page 28
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og annað frábært. Hönnun, heilsa og hamingja. Alda B. og Júlía spjalla. Tíska og menning. Spjörunum úr og helgarmaturinn. 2 • LÍFIÐ 26. APRÍL 2013 HVERJIR HVAR? Umsjón blaðsins Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is Umsjón Lífsins á Vísir.is Ellý Ármanns elly@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid Lífi ð Hamingja, fólk og annað frábært KVENNASAMKOMA Fjöldi kvenna í FKA, Félagi kvenna í atvinnulífinu, kom saman á léttum fundi fyrr í vikunni þar sem yfirskriftin var „Kvenímynd- in: Skækjur, gyðjur eða töffarar“. Þóra Arnórsdótt- ir fjölmiðlakona og Halldóra Gyða Matthíasdótt- ir Proppé útibússtjóri voru fyrirlesarar kvöldsins en á meðal gesta voru Hafdís Jónsdóttir, eigandi World Class, Marentza Poulsen smurbrauðs- jómfrú, Hulda Bjarnadóttir, framkvæmda- stjóri og fjölmiðlakona, og Sólveig Guð- mundsdóttir, eigandi Culiacan. Þ etta kom þannig til að við Gunnar, sem hefur staðið fyrir MasterC- hef-námskeiðum og keppnum fyrir fyrir- tækjahópa hjá okkur, vorum að spjalla saman og fram kom í máli hans að hann fyndi fyrir mikl- um áhuga barna og unglinga á Master Chef-keppninni og honum sjálfum sem sigur vegara þeirrar keppni,“ segir Auður Ögn Árna- dóttir í Salt eldhúsi aðspurð um ný barna- og unglingamatreiðsl- unámskeið sem haldin verða um helgina. Það verður enginn annar en Gunnar Helgi sem mun sjá um námskeiðin. Auður segir Gunn- ar Helga hafa fengið aðdáenda- bréf frá allt niður í tíu ára göml- um krökkum og að þeir virðist óhræddir við að spjalla við hann á förnum vegi. „Þá fékk ég strax þessa hug- mynd því ég hafði oftsinnis feng- ið fyrirspurnir um námskeið fyrir þennan aldurshóp en ekki getað brugðist við því fyrr en þarna og ég sá mér leik á borði og bókaði hann bara strax.“ Þau Auður og Gunnar Helgi ætla að fara af stað með nám- skeið fyrir tvo hópa til að byrja með, annars vegar börn 9-13 ára og hins vegar unglinga 14-18 ára. „Í yngri hópnum er gert ráð fyrir að þau útbúi algjöra krakka klassík en það er pitsa og súkku laðimuffins. Gunnar ætlar þó að kenna þeim útgáfu af pitsa- deigi sem þarfnast ekki gers og tómatsósuna fá þau að gera alveg sjálf frá grunni.“ Með því lang- ar þau Auði og Gunnar að vekja krakkana til vitundar um hvaða hráefni eru í matnum sem þau eru að borða og sýna fram á að það að gera hlutina frá grunni sjálfur þarf hvorki að vera flók- ið né tímafrekt. „Muffins er svo eitthvað sem allir krakk- ar þekkja, en sumir kannast helst við fyrirbrigðið úr pökk- um frá Betty Crocker. Þarna fá þau að spreyta sig á bakstrinum frá grunni og í lokin munum við að sjálfsögðu skreyta kökurnar á mjög listfengan hátt.“ Þegar kom að eldri hópn- um, gerðu þau skoðanakönnun meðal unglinga í kringum sig til að komast að því hvað það væri sem þá myndi helst langa að læra að gera. „Niðurstaðan var sú þau vildu helst fá leiðsögn um hvað þau gætu gert handa sér sem millibita þegar þau kæmu svöng heim úr skólanum, eitt- hvað sem gæti einnig gagnast sem kvöldverður ef því væri að skipta. Gunnar er búinn að setja saman spennandi matseðil af fylltum vefjum og brauði í alls kyns útgáfum, bæði heitt og kalt. Í eftirrétt gera þau svo súkku- laðirúllutertu með súkku laði, banana- og rjómakremi,“ segir Auður að lokum, spennt yfir verkefninu. Öll börnin fá uppskriftamöppu með sér heim og afnot af svuntu á meðan á námskeiðinu stendur. Námskeiðin verða haldin 28. apríl og allar nánari upplýsing- ar og skráning er á www.salteld- hus.is. FÓLK GUNNAR MASTERCHEF KENNIR BÖRNUM AÐ ELDA Gunnar Helgi Guðjónsson, fyrsti meistarakokkur Íslands í MasterChef, hefur fengið mikla athygli barna og unglinga eftir sigurinn. Hann ætlar nú í samstarfi við Salt eldhús að hafa áhrif á unga fólkið og kenna því að elda frá grunni. Hvað gerir þú til að tæma hugann eftir erfiða vinnuviku ? Ég er nýbyrjuð aftur í Hot yoga í World Class. Á föstudögum úti á Seltjarnar- nesi er María með „Sacred music hot vinyasa“ tíma þar sem ljósin eru slökkt og kertum er raðað um salinn. Það er fullkomin leið til að tæma hugann og losa sig við allt stress sem hefur safnast saman í vikunni. Hvernig hleður þú batteríin? Ég er þeim hæfileika gædd að geta sofnað hvar sem er, hvenær sem er. Það er því einstaklega gott þegar maður er sífellt á ferðinni að geta tekið 15 mínútna lögn í bílnum, í stól eða undir borði. Það er svona skammtíma- hleðsla á batteríunum – kemur manni í gegnum langan dag ef nóttin áður var ekki nýtt nægilega vel í svefn. En langtímahleðsl- an á sér stað uppi í bústað hjá ömmu og afa eða í Baðstofunni með vinkonunum. Hugleiðir þú eða notast þú við aðrar aðferðir til að rækta hugann? Alveg frá því að ég var mjög ung hef ég allt- af lesið mjög mikið. Mér finnst það besta leiðin til að rækta hug- ann, það róar hann og maður nær að gleyma öllu öðru. Það er líka mjög nærandi að fara í jóga og hugleiða þar, orkan í salnum er alltaf svo góð og fyrir manneskju eins og mig er mjög gott að mega ekki tala í heilar 90 mínútur. Viltu deila með okkur uppáhaldshamingjumolanum þínum/tilvitnun? Ég held að mikilvægast sé að muna að hamingjan kemur innan frá – með því að gera það sem færir þér hamingju og umkringja þig af fólki sem viðheldur þeirri hamingju. Muna að halda jafnaðargeðinu og láta ekkert eða engan stela frá þér gleðinni í lífinu! Hvernig ræktar þú vini þína? Einfaldlega með því að hitta þá eins oft og ég get. Flestir vinir mínir eru reyndar núna einhvers staðar lengst úti í stóra heiminum í alls konar ferðalögum þannig að þá er gott að hafa Facebook og Skype og Snapchat. Snapchat er snilld. Unnur Eggertsdóttir hefur í nægu að snúast en hún starfar á auglýsingastofunni Jónsson&Le‘Macks, leikur Sollu stirðu og syngur. Hún segist gædd þeim hæfileika að geta sofnað hvar sem er og eigi því auðvelt með að hlaða batteríin. Hamingjuhorniðs Námskeið af ýmsum toga eru haldin hjá Auði í Salt eldhúsinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.