Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 32
FRÉTTABLAÐIÐ Alda B. og Júlía spjalla. Tíska og menning. Spjörunum úr og helgarmaturinn.
6 • LÍFIÐ 26. APRÍL 2013
Hvernig gengur lífið í tískubrans-
anum í dag?
A: Það gengur vel. Ég er mjög
þakklát yfir að hafa alltaf nóg
að gera og fyrir öll skemmtilegu
verkefnin sem ég fæ að vinna við.
Nú ertu búin að vera lengi í fag-
inu og í raun aldrei farið neitt,
jafnvel þegar þú varst kasólétt eða
með börnin lítil? Eru þrautseigja
og úthald lykill að velgengninni?
A: Þessi bransi er ekki það sem
mætti segja fjölskylduvænn. Já,
ég hef alltaf verið að vinna og
lítið frí tekið jafnvel þó ég væri
ólétt eða með lítil börn. Ég var til
dæmis að vinna fram á síðasta dag
þegar ég gekk með tvíburana og
var farin að vinna nánast um leið
og þeir fæddust. Þeir voru annað
hvort bara teknir með í vinnuna
eða ég skutlaðist heim af og til af
tökustað til að gefa brjóst. Ég get
ekki annað en verið mjög þakklát
öllu því skilningsríka fólki sem ég
hef unnið með. Já, ég tel það vera
part af því hvað mér hefur geng-
ið vel hve vinnusöm ég hef verið. Í
„freelance“ bransanum þýðir ekk-
ert að vera veikur heima þegar þú
ert bókaður í verkefni. En þetta er
öðruvísi í dag þar sem ég hef að-
stoðarfólk sem getur hoppað inn í
minn stað ef eitthvað kemur upp á.
Ætlaði ekki að vinna við tísku
Hvernig hefur gengið að sam-
eina starfið og uppeldi barnanna í
gegnum tíðina?
A: Það hefur gengið vel enda
hef ég ómetanlega hjálp frá for-
eldrum. Svo hafa börnin bara alist
upp við þetta svo þau þekkja lítið
annað. En auðvitað getur þetta
líka verið erfitt þegar mikið er að
gera og ég kem seint heim og er
farin snemma út á morgnana en þá
kemur líka á móti að ég á stundum
frí í miðri viku og get sótt í skól-
ann og gert eitthvað skemmtilegt.
Ætlaðir þú alltaf að verða stílisti
eða vinna við tísku?
A: Nei, ég er bogamaður og var
með alls konar hugmyndir sem
unglingur um hvað ég vildi verða,
held að ég hafi skipt um skoð-
un einu sinni í mánuði. Sem varð
til þess að ég kláraði ekkert nám.
Það er því þrjóskan sem er búin að
koma mér á þann stað sem ég er
á í dag.
Hver er fyrsta minningin þín úr
bransanum með mömmu?
J: Ég veit ekki alveg hver akk-
úrat fyrsta minningin mín er en
ég man að þegar ég var fimm ára
gömul sofnaði ég í einhverjum
tröppum á tökustað með mömmu
og líka þegar ég vann með barn-
æsku-idolinu mínu Birgittu Hauk-
dal, ég meina hver myndi gleyma
því!
Sama hvað öðrum finnst
Heillaðist þú strax af tískuheim-
inum?
J: Já, ég myndi segja það. Ég
hef alist upp við þennan bransa
og alltaf fundist hann áhuga-
verður. Hann hefur sína galla en
hefur fleiri kosti sem bæta hann
skemmtilega upp. Ég lifði á því
að skoða bækur Davids Lachap-
elle þegar ég var krakki. Það er
bara svo mikið af áhugaverðu
og skemmtilegu fólki í þessum
bransa. Ég hef verið ótrúlega
heppin að hafa mömmu til að leið-
beina mér í faginu, annars þætti
mér þetta líklega minna spenn-
andi.
Nú ertu mjög ung að árum en
hefur strax vakið athygli fyrir stíl
þinn og starf. Hvernig myndirðu
lýsa þínum persónulega stíl í dag?
Ég er með mjög mismunandi
stíl og hef farið í gegnum mörg
tískutímabil sem ég vil helst ekki
muna eftir. Stíllinn minn breyt-
ist bara dag frá degi, einn dag-
inn vil ég vera geðveikur hippi og
hinn vil ég vera geðveikt rokk. Ég
klæðist bara því sem mér líður vel
í og því sem mér finnst flott. Svo
getur skapið haft mikið um það að
segja hverju ég klæðist.
Mér er yfirleitt sama hvað
öðrum finnst en ef einhverjum
þykir stíllinn minn flottur er það
bara bónus. Ef ég þyrfti að skil-
greina mig núna þá myndi ég
segja að ég væri svona „hippy
chic“ og svo verð ég alltaf að vera
með hatt.
Innblásin af mömmu
Hverjar eru helstu tískufyrirmynd-
irnar?
J: Þær eru svo margar, til
dæmis Kate Moss, Molly Ringwald
í Breakfast club og svo uppáhaldið
mitt Keith Richards.
A: Helena Bonham Carter og
Vivienne Westwood.
Hefur mamma verið þinn helsti
innblástur?
J: Mamma er minn helsti inn-
blástur. Hún hefur alltaf verið það,
hún er sterk kona, dugleg og falleg-
asta manneskja að innan sem utan
sem ég þekki, en hvað fötin varð-
ar þá fæ ég ekki innblástur frá
mömmu enda er hún alltaf í svörtu
sem ég ekki. Við erum hreinlega
andstæður þegar kemur að pers-
ónulegum stíl. Stel samt alveg
fötunum hennar nokkuð oft, það
SPJALLIÐ ÞRAUTSEIGJA OG
ÚTHALD LYKILL AÐ VELGENGINNI
Það ríkir fallegt samband á milli mæðgnanna Öldu B. Guðjónsdóttur og Júlíu Tómasdóttur. Þær deila mikilli ástríðu fyrir tísku og starfa einnig saman sem
stílistar en eins og margir vita er Alda einn farsælasti stílisti landsins. Lífi ð spjallaði við þessar skemmtilegu mæðgur um tískuáhugann.
ALDA B. GUÐJÓNSDÓTTIR
HJÚSKAPARSTAÐA Einhleyp
BÖRN 4
STARF Stílisti
JÚLÍA TÓMASDÓTTIR
ALDUR 16 ára
SKÓLI Álftanesskóli
STARF Aðstoðarstílisti og
þerna á 101 hóteli
Júlía segir mömmu sína hafa gefið sér
mikinn innblástur að öllu leyti. Hún
ætlar þó ekki að starfa við tísku í fram-
tíðinni heldur langar hana að gerast
leikkona.