Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 50
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30MENNING
BÆKUR ★★★
Manneskja án hunds
Håkan Nesser, þýðing: Ævar Örn
Jósepsson
UPPHEIMAR
Håkan Nesser hefur nokkra sér-
stöðu meðal norrænna glæpasagna-
höfunda. Hann er bókmenntalegri
en þeir flestir, meiri mannþekkj-
ari og leggur meira upp úr pers-
ónusköpun en plottum. Hann hefur
skrifað fjölmargar bækur af mis-
jöfnum toga en það eru glæpasög-
urnar sem hafa gert nafn hans
þekkt.
Serían sem byrjaði með Manneskju
án hunds árið 2006 gengur undir
nafninu Barbarotti-serían í höf-
uðið á lögreglumanninum Gunnari
Barbarotti sem þar er í kastljósinu.
Barbarotti er ein alskemmtilegasta
persóna glæpabókmenntanna, hálf-
ur Svíi og hálfur Ítali, sífellt að
gera samninga við Guð sem hann
trúir ekki á en gefur þó séns á
að sanna tilveru sína með því að
bregðast rétt við bænum Barbar-
ottis.
Morðgátan er einnig sérstök og
lengi framan af er ekki einu sinni
ljóst hvort nokkurt morð hafi verið
framið. Plottið hverfist í kringum
hvarf tveggja frænda úr fjölskyldu-
boði, en hvort þeir hafi horfið sjálf-
viljugir eður ei kemur ekki í ljós
fyrr en langt er liðið á sögu.
Það eru því fjölskyldumeðlimirn-
ir og samskipti þeirra sem Nesser
setur undir smásjána og gerir það
svo trúverðuglega og vel að jafnvel
forföllnum spennufíkli verður fljót-
lega slétt sama hvort þessir horfnu
piltar hafi verið drepnir eður ei.
Fjölskyldudínamíkin er nógu ógn-
vænleg ein og sér. Höfuð fjölskyld-
unnar er 65 ára kennari sem er
að setjast í helgan stein en hefur
fram undir þetta kúgað konu sína
og börnin þrjú miskunnarlaust. Það
er engin ást til skiptanna í þessari
fjölskyldu og barnabörnin þrjú
gera ekki mikið til að auka á hana.
Sjónarhornið skiptist milli mis-
mundandi persóna, eins og títt er
í breskum hver-gerði-það-sögum
en munurinn er sá að hér þjónar
þessi skipting ekki þeim tilgangi að
varpa grun á hina eða þessa pers-
ónuna heldur að leyfa lesandanum
að skyggnast inn í sálarlíf þeirra
og skynja smátt og smátt hvernig
landið liggur í þessari fordæmdu
fjölskyldu.
Persónurnar eru hver annarri
betur skapaðar og framvinda sög-
unnar er hæfilega hröð lengi fram-
an af, en síðustu fimmtíu síðurn-
ar eru ansi langdregnar og draga
verulega úr gæðum bókarinnar.
Það sem lyftir þeim upp er elskan
hann Barbarotti sem sjálfum sér
að óvörum kemst á rokna séns og
veit ekkert hvernig hann á að taka
á því máli. Engu að síður eru heild-
aráhrif sögunnar sterk og vægðar-
laus og virkilegur hvalreki fyrir
íslenska unnendur norrænu glæpa-
sögunnar að fá Nesser í safnið.
Ævar Örn Jósepsson þýðir og þýðir
vel. Nær svolítið sérviskulegu orð-
færi Nessers vel og setur um leið
sitt mark á textann.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Nesser er í hópi þeirra
bestu og þótt sagan kraumi ekkert af
spennu er hún djúp og næm lýs-
ing á samskiptum innan fjölskyldu.
Lögreglumaðurinn Barbarotti er líka
skrattanum skemmtilegri.
Helvíti – það eru hinir
„Sýningin Samþætting er fyrsta
samsýning meistaranema í mynd-
list við Listaháskóla Íslands en nem-
endurnir hafa sýnt á vormánuðum
undir yfirskriftinni Kveikjuþræð-
ir,“ segir Ólafur Sveinn Gíslason
sem hefur umsjón með náminu á
vormisseri. „Við ákváðum að sýna
á Hnitbjörgum, Listasafni Einars
Jónssonar, en það var fyrsta lista-
safn sem var reist á Íslandi, byggt
í kringum verk Einars og heimili
hans líka. Listamennirnir ganga
inn í heim hans með verkum sínum
og sýna verk sem eru mörg inn-
grip inn í rýmið hans, eða einhvers
konar núningur við hans list. Einar
var barn síns tíma, verk hans bera
þess merki að vera gerð á tímum
þjóðernishyggju og sem dæmi um
verk nemendanna er þjóðsöngsvél.“
Ólafur segir tímamót felast í
því að hafin sé kennsla í meist-
aranámi í myndlist á Íslandi.
„Námið hefur lengi verið í bígerð
en frestaðist meðal annars vegna
hrunsins. En svo hófst það loks
síðastliðið haust með námi átta
nemenda sem sýna verk sína á
þessari sýningu og í hópnum er
einn skiptinemi líka. Þetta verð-
ur því fámennur og þéttur hópur
sem hér verður í námi, 16 til 20
manns þegar allt er talið. Nem-
endur hafa mikið frelsi, geta sótt
námskeið þvert á deildir og tekið
hluta námsins erlendis.“
Ólafur segir mikinn áhuga vera
á náminu en um þessar mundir er
einmitt verið að fara yfir umsóknir
fyrir næsta ár. „Það eru mjög marg-
ar umsóknir frá erlendum nemend-
um þannig að áhuginn er bæði inn-
anlands sem utan.“
Sýningin Samþætting verður
opnuð á morgun klukkan tvö og
stendur til 19. maí. Listasafn Einars
Jónssonar er opið um helgar frá tvö
til fimm. sigridur@frettabladid.is
Myndlistarnemar
sýna í Hnitbjörgum
Meistaranemar í myndlist opna samsýninguna Samþættingu í Listasafni Einars
Jónssonar á morgun. Þeir eru í fyrsta hópi meistaranema í Listaháskóla Íslands
en kennsla á því stigi hófst síðastliðið haust. Mikill áhugi er á náminu.
SAMÞÆTTING Katla Rós Völudóttir við undirbúning sýningarinnar Samþættingar sem verður opnuð á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Listamennirnir sem sýna í Hnitbjörgum eru Bergdís Hörn Guðvarðardóttir,
Guðmundur Bragason, Halldór Ragnarsson, Katla Rós Völudóttir, Kristín
Helga Káradóttir, Niklas Christian Majland Brun, Pia Antonsen Rognes,
Ragnar Már Nikulásson og Rán Jónsdóttir.
Listamenn framtíðar
Save the Children á Íslandi