Fréttablaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 52
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32 NÝ STJARNA Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi Móðurmissirinn breytti mér sem manneskju „Ég lít öðruvísi á lífið og heiminn síðan mamma dó, en hún á það ekki skilið að ég láti dauða hennar íþyngja mér alla ævi,“ segir Snorri Engilbertsson leikari. FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ Þú getur ekki fengið allt Sýna sjónvarpsþættir með sterkum kon- um í aðalhlutverkum raunveruleikann? Eða eru þar dulin skilaboð til kvenna um að ef þær ætli sér langt í karríernum skuli þær gleyma eðlilegu heimilislífi? Kvenmyndir í nokkrum vinsælum sjónvarpsþáttum skoðaðar. Aldur er bara kennitala Unnur Steinsson sinnir fjölskyldunni, starfinu og áhugamálunum af alúð og ást. Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is Lottóþulan og blaðamaðurinn Katrín Brynja Hermannsdóttir og útvarps- konan Kolbrún Björnsdóttir, eða Kolla Í bítinu, ætla að skella sér á efri hæð Faktorý í kvöld og hlýða á Ásgeir Trausta og Pétur Ben. „Mér finnst Ásgeir alveg æðislegur og hlusta stanslaust á plötuna hans,“ segir Katrín Brynja. Hún hefur þó aldrei farið á tónleika með honum áður en var á æfingu í World Class í Laugum þegar kann kíkti þar við á mánudag- inn. „Hann kom alveg óvænt og fór að spila þar. Það braut æf- inguna aðeins upp og var alveg æðis- legt,“ segir hún. Hennar uppáhaldslag með kappanum er lagið Leyndarmál. „Það er algjört uppáhald hjá bæði mér og syni mínum og við hlustum mikið á það,“ segir hún en sonurinn fær þó ekki að koma með á Faktorý í kvöld, enda helst til ungur fyrir það. Kolbrún hefur hvorki farið á tónleika með Ásgeiri Trausta né Pétri Ben. „Ég er mikill aðdáandi Ásgeirs Trausta og hver veit nema ég kolfalli fyrir Pétri Ben á tónleikunum. Ég hlakka að minnsta kosti til að heyra í honum,“ segir hún. Hún á bæði disk- inn og vínylinn með Ásgeiri Trausta og segir það vera mest spiluðu plöturnar á sínu heimili. Henni þykir þó erfitt að gera upp á milli laganna hans. „Það er samt eitthvað sem gerist þegar ég hlusta á Heimförina,“ segir hún. - trs Forfallnir aðdáendur Ásgeirs Trausta Þetta er í fyrsta skipti sem plötusnúðateymið Dusky stígur á svið á Íslandi, en þeir félagar hafa verið að gera það gott í Evrópu síðasta árið og hafa meðal annars skipað efstu sætin á vinsældarlistum yfir dans- tónlist. Meðal þeirra helstu slagara má nefna Flo Jam og Nobody Else. FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR? FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2013 Listasmiðja 09.00 Ferðaflækja á flakki er leiðsögn og listasmiðja í Mjódd í Breiðholti þar sem leikskólabörnum verður boðið að fræðast og skapa. Sýningar 18.00 Gestalistamenn SÍM sýna afrakstur vinnu sinnar þennan mán- uðinn á (ör)sýningu að Seljavegi 32. Hátíðir 20.30 Árleg Jazzhátíð heldur áfram í Garðabæ. Dagskrá má finna á heimasíðunni www. gardabaer.is Kvikmyndir 15.00 Kvik- myndahátíð heldur áfram á Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15, þar sem sýndar verða stuttar sjón- varpsmyndir byggðar á hinum klass- ísku Grimms- ævintýrum. Fyrsta mynd dagsins er Garðabrúða (Rapunzel), klukkan 16 verður sýnd myndin Skraddarinn hugprúði (Das tapfere Schneider- lein) og klukkan 17 er það myndin Brimaborgarsöngvar- arnir (Die Bremer Stadtmusikanten). Uppákomur 12.00 Hjólaratleikur fjölskyldunnar við styttur bæjarins verður haldinn í tilefni Barnamenningarhátíðar. Hægt er að fara í leikinn hvenær sem er á milli 12 og 18. Hefst hann við Hörpu og lýkur í höggmyndagarði Ásmundar Sveins- sonar við Sigtún. Þátttökuspjöld fást í afgreiðslu Hörpu. Tónlist 22.00 Plötusnúðateymið Dusky stígur á stokk í Gamla kaupfélaginu á Akra- nesi. Dusky til halds og trausts verður landslið íslenskra plötusnúða, þeir Óli Ofur, BenSol og CasaNova. Miðaverð er kr. 1.500 fyrir miðnætti en kr. 2.000 eftir miðnætti. 23.00 Ásgeir Trausti og Pétur Ben spila á Faktorý. Miðaverð er kr. 2.500. 23.00 Hljómsveitin Homo and the Sapiens halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob- La-Da,Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Fyrirlestrar 12.00 Per Langgård flytur fyrirlestur á ensku í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Of course Greenlandic dishwashers will understand Greenlandic in the future - A short introduction to language policy in Greenland and an elaborated discussion of why massive support from advanced language technology might be the prime factor in keeping Greenlandic vital in the years to come. Aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Stærstu tónleikar Jazzhátíðar í Garðabæ verða haldnir í kvöld klukkan hálfníu í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Þar verður boðið upp á „Stofudjass í stórum sal“ með Flosason/Lauritsen kvartettinum. Lauritsen og Sigurður Flosason reka saman hljómsveit í Danmörku en hér kemur íslensk útgáfa hljómsveitar- innar fram. Sér- stakur gestur er söngkonan Ragnheiður Gröndal. Jazzhátíð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.