Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 56

Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 56
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 36 visir.is Meira um leiki gærkvöldsins KÖRFUBOLTI Stjörnunni frá Garðabæ mistókst að vinna sinn fyrsta meistaratitil í körfubolta í gær. Þá tóku Stjörnumenn á móti Grindavík í fjórða leik liðanna. Sigur Stjörnunnar hefði þýtt að félagið væri orðið Íslandsmeist- ari. Baráttuglaðir Grindvíkingar voru ekki á því að leyfa Stjörnu- mönnum að skemmta sér. Þeir seldu sig gríðarlega dýrt, fórnuðu sér í alla bolta og unnu verðskuld- aðan sigur, 82-88. Aaron Broussard átti stór- kostlegan leik í liði Grindavík- ur. Skoraði 37 stig og þar af 23 í fyrri hálfleik. Stjörnumenn réðu ekkert við hann og frammistaða Broussards var það sem skilaði Grindavík sigrinum ásamt óbil- andi baráttu allan leikinn. Liðin munu mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratit- ilinn í Grindavík á sunnudag. - hbg Oddaleikur í Röstinni STÓRKOSTLEGUR Stjörnumenn réðu ekkert við Aaron Broussard í gær en hann skoraði 37 stig fyrir Grindavík. Jovan Zdravevski reynir hér að verjast leikmanninum frábæra. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPORT Skagamenn endurnýjuðu kynnin við efstu deild sumarið 2012 eftir þriggja ára fjarveru. Draumabyrjun liðsins, þar sem liðið var taplaust í fyrstu sex leikjunum, gerði það að verkum að fall úr deildinni varð aldrei að áhyggjuefni á Skipaskaga. Nú þurfa Skagamenn að passa sig. Skaginn hefur fengið Letta og Finna til liðs við sig en illa hefur gengið að fá íslenska leikmenn í hópinn. Liðið er veikara en það sem hóf leik í deildinni sumarið 2012 og hefur ekki fyllt í skarð Gary Martin sem hélt í KR um mitt tímabil. Liðið er reynslunni ríkara en tímabil númer tvö í efstu deild geta reynst erfið. ÍA hafnar í 8. sætiSPÁ FRÉTTA- BLAÐSINS 2013 ➜ STJARNAN Jóhannes Karl Guðjónsson ➜ ÞJÁLFARINN ➜ NÝJU ANDLITIN ➜ HVAÐ ER LANGT SÍÐAN... ... liðið varð meistari – 12 ár ...liðið var inn á topp þrjú – 6 ár ...liðið spilaði í B-deild – 2 ár ... liðið varð bikarmeistari – 10 ár ... liðið vann tvöfalt – 17 ár ... liðið spilaði í Evrópukeppni – 5 ár ...liðið fékk á sig fæst mörk – 10 ár Þórður Þórðarson er 41 árs gamall og á sínu fimm tímabili með liðið. Hann kom ÍA upp í þriðju tilraun. Á að baki eitt tímabil sem þjálfari í efstu deild (22 leikir, 9 sigrar, 48 prósent) Jan Mikael Berg (Finnlandi) Maksims Rafalskis (Lettlandi) Þórður Birgisson (KF) Fylgstu með þessum: Andri Adolpsson – Ungur og efnilegur miðjumaður sem spilaði mikið í fyrra. ➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ íSLANDSMEISTARI: 18 SINNUM (SÍÐAST 2001) BIKARMEISTARI: 9 (2003) Við miklu var búist af Jóa Kalla síðastliðið sumar en hann stóð ekki alveg undir þeim væntingum. Spyrnu- kóngurinn þarf að gefa tóninn svo Skagamenn verði glaðir í gulu í sumar. hefst eftir 9 daga ÚRSLIT N1-DEILD KVENNA LOKAÚRSLIT, 1. LEIKUR FRAM - STJARNAN 20-21 (11-10) Mörk Fram (skot): Elísabet Gunnarsdóttir 7/2 (9/3), Sunna Jónsdóttir 6 (12), Stella Sigurðardóttir 4/1 (17/2), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2 (5), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1 (2), Guðrún Þóra Hálfdáns- dóttir (2). Varin skot: Guðrún Bjartmarz 9/1 (30/3, 30%). Hraðaupphlaup: 1 (Sunna 1) Fiskuð víti: 5 (Elísabet 1, Sunna 1, Stella 1, Sigur- björg 1, Ásta Birna 1) Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Stjörnunnar (skot): Jóna Margrét Ragnars- dóttir 9/2 (14/2), Rakel Dögg Bragadóttir 3 (5), Esther Viktoría Ragnarsdóttir 3 (6), Hanna Guðrún Stefánsdóttir 3 (7/1), Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2 (2), Sólveig Lára Kjærnested 1 (2), Þórhildur Gunnarsdóttir (1). Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 17/1 (37/4, 46%). Hraðaupphlaup: 3 (Hanna G. 2, Jóna Margrét 1) Fiskuð víti: 3 (Rakel 1, Esther 1, Hanna Guðrún 1) Utan vallar: 6 mínútur. DOMINO‘S-DEILD KARLA LOKAÚRSLIT, 4. LEIKUR STJARNAN - GRINDAVÍK 82-88 Stjarnan: Justin Shouse 26/4 fráköst/7 stoðsendingar, Jarrid Frye 17/8 fráköst, Jovan Zdravevski 13, Marvin Valdimarsson 10/10 fráköst, Brian Mills 9/10 fráköst/3 varin skot, Fannar Freyr Helgason 5, Dagur Kár Jónsson 2. Grindavík: Aaron Broussard 37/12 fráköst, Samuel Zeglinski 15/4 fráköst/6 stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 13/3 varin skot, Þorleifur Ólafsson 8, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 7/9 fráköst, Davíð Ingi Bustion 6/13 fráköst, Ólafur Ólafsson 2 Staðan í einvíginu er 2-2. KÖRFUBOLTI Hlynur Bæringsson var í vikunni valinn besti leik- maður sænsku úrvalsdeildarinn- ar í körfubolta en hann er ásamt Jakobi Erni Sigurðssyni lykilmað- ur í deildarmeistaraliði Sundsvall. Hlynur stendur í ströngu með liði sínu þessa dagana en í gærkvöldi tapaði liðið gegn Södertalje Kings í fjórða leik liðanna í úrslitum deild- arinnar. Södertalje leiðir þar með ein- vígi liðanna, 3-1, og getur tryggt sér meistaratitilinn í næsta leik. Hlynur og félagar í Sundsvall eru þó þekktir fyrir allt annað en að gefast upp. „Það er alltaf gaman að fá við- urkenningu, sérstaklega í nýju landi og ég hef ekkert nema gott að segja um það,“ sagði Hlynur hógvær í samtali við Fréttablaðið í gær. Hlynur er á sínu þriðja tímabili í Svíþjóð og stefnir nú á að vinna meistaratitilinn aftur sem liðið vann fyrir tveimur árum. En þessa nafnbót hafði hann aldrei hlotið áður. Hann og Jakob Örn Sigurð- arson hafa báðir verið í lykilhlut- verki hjá liðinu undanfarin ár. „Þetta hefur verið einhver vit- leysa hin árin,“ sagði hann í létt- um dúr. „Annars held ég að varn- arleikurinn sé svipaður hjá mér nú og áður. Hann hefur alltaf verið stór þáttur af mínum leik. Ég held þó að ég sé ekki með stærra varn- arhlutverk en aðrir í liðinu enda reynum við að sinna varnarvinn- unni saman. Við erum duglegir að víxla og oft endum við leiki á að verjast öðrum mönnum en við byrjuðum á.“ Aldrei vesen á okkur Sundsvall varð deildarmeistari í vor með talsverðum yfirburðum og segir Hlynur að tímabilið hafi gengið vonum framar. „Við tókum til dæmis þrettán sigurleiki í röð og þetta rann mjög þægilega í gegn. Við vorum heppnir með Kana sem pössuðu vel inn í liðið okkar. Það var því eiginlega aldrei neitt vesen á okkur,“ segir Hlynur. Sundsvall lenti ekki í vandræð- um í fyrstu umferð úrslitakeppn- innar og hafði svo betur gegn Pavel Ermolinskij og félögum í Norrköping í undanúrslitunum. Hann segir að Sundsvall og Söder- tälje séu með tvö bestu lið deildar- innar í ár. „Södertälje er með mjög taktískt sterkt lið og það lang agaðasta af þeim liðum sem við höfum spil- að við í vetur. Það er mikil harka í þessu liði og þeir eru fljótir að brjóta. Það er allt öðruvísi að spila við þá en öll önnur lið í deildinni.“ Kann vel við öryggið Hlynur segir að sér líki vel við lífið í Sundsvall utan körfuboltans og bæði sér og fjölskyldu sinni líði eins og þau séu heima hjá sér. „Auðvitað söknum við ættingja og vina á Íslandi en okkur líður mjög vel hér. Við þekkjum orðið allt hérna og svo skemmir ekki fyrir að liðinu hefur gengið mjög vel.“ Hlynur á enn tvö ár eftir af samningi sínum við félagið og sér því ekki fram á að söðla um á næstunni. Hann viðurkennir þó að hann sé opinn fyrir öllu. „Stundum langar manni í nýja áskorun. Ævintýraþráin er enn til staðar. Það eru kostir og gall- ar við öryggið því inn á milli væri maður til í að vera frjáls og prófa eitthvað nýtt. En yfirleitt er ég nú mjög sáttur við að hafa öryggið,“ segir Hlynur. „Ég á kannski enn eitthvað eftir þegar að þessum samningi lýkur.“ eirikur@frettabladid.is Ævintýraþráin enn til staðar Hlynur Bæringsson var í vikunni valinn varnarmaður ársins í Svíþjóð. Lið hans, Sundsvall Dragons, keppir nú um sænska meistaratitlinn þar sem Hlynur er í lykilhlutverki ásamt Jakobi Erni Sigurðarsyni. FRÁKASTAHÆSTUR Hlynur í leik með Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Hann tók flest fráköst allra leikmanna sænsku úrvalsdeildarinnar í vetur eða 10,2 að meðal- tali. Hann er líka í hópi 20 hæstu leikmanna deildarinnar í stigaskorun (14,4) og stoðsendingum (3,3). Hann var með framlagsstuðullinn 21,5 sem er sá næsthæsti í deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrir stuttu var tilkynnt að Peter Öqvist yrði áfram landsliðsþjálfari Íslands en hann er einnig þjálfari Sundsvall og hefur verið undanfarin ár. „Það var rökrétt framhald mála enda þurfa lið sem ætla að ná árangri að byggja upp stöðugleika,“ segir Hlynur Bæringsson. „Ég er reyndar lítið að hugsa um landsliðið núna en það eru vonandi spennandi tímar fram undan þar. Þetta lofar góðu.“ Öqvist er með lausan samning hjá Sundsvall og óvíst hvort hann verði áfram þar. „Hann er búinn að vera hér í tíu ár og er spenntur fyrir því að prófa sig í sterkari deild.“ Gott að halda Peter Öqvist HANDBOLTI Jóna Margrét Ragn- arsdóttir skaut Stjörnunni í úrslit N1-deildar kvenna á eftirminni- legan hátt á dögunum og hún var svo aftur hetjan í gær í fyrsta úrslitaleiknum gegn Fram. Jóna Margrét skoraði þá sigur- markið 20 sekúndum fyrir leiks- lok með glæsilegu skoti. „Það þarf einhver að taka það að sér að vera hetjan,“ sagði Jóna Margrét og hló við. „Þetta hefur bara spilast svona. Ég var að hitta í dag þannig að það var kannski bara ágætt að ég tók af skarið núna.“ Jóna Margrét átti heilt yfir flottan leik en hún vildi sem minnst gera úr eigin frammi- stöðu. „Ég er heppin að vera í frá- bæru liði.“ - hbg Jóna hetjan eins og áður STÍGUR UPP Jóna Margrét er óhrædd vð að taka af skarið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.