Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 58
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 38
Allt sem þú þarft...
Yfirburðir
Fréttablaðsins
staðfestir!
Auglýsing í
Fréttablaðinu
nær til yfir
92%
lesenda
blaðanna
Lesa bæði
Fréttablaðið og
Morgunblaðið
Lesa bara
Morgunblaðið
Lesa bara
Fréttablaðið
64% 8%
28%
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila
sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup
sýnir ótvírætt.
Prentmiðlakönnun Capacent Gallup.
18-49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Meðallestur á tölublað, jan.-júní 2012.
FÓTBOLTI Zulte Waregem er ekki
þekkt nafn í evrópskri félagsliða-
knattspyrnu og hingað til hefur
það heldur ekki verið þekkt sem
stórveldi í belgískri knattspyrnu
– langt í frá. Engu að síður hafa
Ólafur Ingi Skúlason og félagar
hans náð ótrúlegum árangri á
tímabilinu og tróna nú á toppnum
þegar fáeinar vikur eru eftir.
Zulte Waregem hefur aldrei
orðið belgískur meistari og lék
sitt fyrsta tímabil í efstu deild þar
í landi 2005-6. Það tímabil varð
félagið bikarmeistari en það er
eini stóri titillinn í sögu félagsins.
„Það er búið að ganga lygilega
vel hjá okkur allt tímabilið,“ segir
hann í samtali við Fréttablaðið en
Árbæingurinn Ólafur Ingi kom til
félagsins frá SönderjyskE í Dan-
mörku árið 2011.
„Flestir hér í Belgíu áttu von
á því að þetta myndi fjara út hjá
okkur í meistaraumspilinu en það
er fjarri lagi. Við höfum verið
óheppnir að hafa ekki náð fleiri
stigum, ef eitthvað er,“ segir hann.
Keppnisfyrirkomulagið í Belgíu
er ólíkt hefðbundinni deildar-
keppni þar sem að lokinni hefð-
bundinni tvöfaldri umferð fara sex
efstu liðin áfram í sérstakt umspil
þar sem þau mætast innbyrðis,
heima og heiman, í hreinni baráttu
um titilinn. Þar trónir Zulte Ware-
gem á toppnum nú þegar umspil-
ið er hálfnað og er liðið með eins
stigs forystu á Anderlecht eftir að
hafa unnið leik liðanna um síðustu
helgi, 2-1.
„Þetta fyrirkomulag þýðir að
það eru toppleikir í hverri einustu
viku og það þarf því að halda rétt á
spilunum. Þetta er þéttur pakki og
getur verið fljótt að breytast. Við
þurfum því að halda okkur á jörð-
inni,“ segir hann.
Aldrei lent í lægð
Árangur liðsins má fyrst og fremst
skýra með því að í liðinu eru marg-
ir ungir og gríðarlega efnilegir
leikmenn sem hafa skarað fram
úr væntingum flestra. Þar fara
fremstir í flokki Thorgan Hazard,
bróðir Eden hjá Chelsea, og Junior
Malanda. Sá fyrrnefndi spilar nú
sem lánsmaður frá Chelsea en
Malanda, sem er aðeins átján ára
gamall, kom frá Lille síðastliðið
sumar þar sem hann spilaði með
varaliðinu.
Báðum hefur verið lýst sem
stórefnilegum leikmönnum sem
muni láta til sín taka hjá stórlið-
um Evrópu í framtíðinni. Undir
þetta tekur Ólafur Ingi. „Í janúar
í fyrra komu tveir eldri og reynd-
ari leikmenn frá Standard Liege
sem styrktu liðið mikið. Svo í
sumar komu ungir leikmenn sem
hafa staðið sig frábærlega í vetur.
Þeir hafa verið sérstaklega stöðug-
ir og því hefur liðið í raun aldrei
lent í neinni lægð – auk þess sem
við höfum í raun sloppið algerlega
við meiðsli leikmanna. Það skiptir
miklu máli því við erum ekki með
stóran hóp,“ segir Ólafur Ingi
„Þetta eru 19-20 ára strákar sem
hafa sannað sig á sínu fyrsta tíma-
bili í efstu deild. Við erum svo með
góða eldri leikmenn líka og góða
blöndu í liðinu.“
Hann segir að liðið hafi líka
fengið tvo unga leikmenn á láni frá
Anderlecht sem hafi ekki komist í
hóp þar. „Nú eru þeir lykilmenn í
liði sem er fyrir ofan Anderlecht.
Það er fyndið að hugsa til þess.“
Hazard hefur verið frábær
Ólafur Ingi segir að Malanda hafi
komið inn í liðið af miklum krafti.
„Hann spilar í minni stöðu og eftir
að ég hafði verið í byrjunarliðinu
fyrstu sex leikina sló hann mig út
úr liðinu,“ segir Ólafur Ingi.
„Hann er tröll af manni. Við
erum svipað hávaxnir en hann er
fimmtán kílóum þyngri. Hann var
fenginn til liðsins sem varnarmað-
ur en kom inn á miðjuna þar sem
hann hefur vaxið og dafnað. Juni-
or var nálægt því að fara í janúar
eftir að það kom gott tilboð í hann
frá Englandi en það gekk ekki í
gegn,“ sagði Ólafur.
„Svo er Thorgan [Hazard] búinn
að vera frábær. Hann er miklu
betri en ég hélt og þorði að vona.
Hann hefur verið okkar besti leik-
maður, sérstaklega eftir áramót.
Ég held að hann geti orðið ótrú-
lega öflugur.“
Ólafur Ingi vonast til að þess-
ir tveir og aðrir leikmenn liðsins
freistist til að taka eitt ár í viðbót
með liðinu ef liðið verður meistari
í vor og vinnur sér þátttökurétt í
Meistaradeild Evrópu.
Erfitt fyrir mig að kvarta
Eins og áður segir missti Ólafur
Ingi sæti sitt í byrjunarliðinu í
haust en hefur þó spilað reglulega
með liðinu allt tímabilið.
„Mér finnst ég hafa staðið mig
vel þegar ég hef fengið að spila en
þegar liðinu gengur svona vel get
ég í raun ekki kvartað, þó svo að
maður sé auðvitað fúll yfir því að
vera á bekknum,“ segir hann.
„Ég hef þó aldrei upplifað stöðu
mína þannig að ég sé fyrir utan
liðið. Ég legg mitt af mörkum og
finn að mér er treyst fyrir því sem
mér er ætlað að gera.“
Ólafur Ingi skrifaði nýverið
undir nýjan þriggja ára samn-
ing og segir hann að það hafi sent
ákveðin skilaboð. „Þeir hljóta að
vera ánægðir með eitthvað. Ég sé
líka fram á spennandi ár hér, sér-
staklega ef við vinnum deildina í
vor.“ eirikur@frettabladid.is
Það reiknaði enginn með okkur
Zulte Waregem hefur komið öllum sparkspekingum í Belgíu í opna skjöldu en liðið trónir á toppi deildarinnar þegar fi mm umferðir eru
eft ir af tímabilinu. Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason segir að ungir og stórefnilegir leikmenn liðsins hafi fl eytt því langt í ár.
Í MEISTARABARÁTTU Ólafur Ingi í leik með Zulte Waregem. Hann hefur komið við
sögu í flestum leikjum liðsins og skorað í þeim eitt mark. NORDICPHOTOS/GETTY