Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.05.2013, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 03.05.2013, Qupperneq 2
3. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 MENNTUN Alls þreyttu 23 íslenskir háskólanemar inn- tökupróf í læknisfræði við læknadeildina við Jesse- nius-háskóla í Slóvakíu í gær. Allir stóðust þeir prófið og munu því hefja nám við skólann næsta haust. Runólfur Oddsson, konsúll Slóvakíu hér á landi, segir átta Íslendinga þegar vera við nám við skólann og líki vistin vel. „Íslendingum hefur gengið mjög vel og það er mjög ánægjulegt að það muni fjölga í þeirra hópi komandi haust.“ Prófið fór fram á Grand Hóteli í gær og var Her- bert Vilhjálmsson einn af þeim sem það þreyttu. Hann segist hafa gengið með þann draum í maganum að fara í læknisfræði í talsverðan tíma og undirbúið sig vel. „Ég tók inntökuprófið í læknadeildina hérna heima síðasta haust en komst ekki inn. Vinkona mín sem er úti sagði mér síðan frá inntökuprófinu fyrir skólann úti og ég ákvað að slá til.“ Hann segir það leggjast vel í sig að hefja námið í haust. Skólagjöldin við skólann eru 9.500 evrur fyrir árið sem nemur um einni og hálfri milljón íslenskra króna. Aðspurður hvernig hann ætli að greiða fyrir námið segir Herbert það eiga eftir að koma í ljós. „Ætli það sé ekki bara gamla góða LÍN.“ Þann 15. júní næstkomandi verða haldin inntöku- próf fyrir stúdenta sem útskrifast nú í vor. - hó Fjöldi fólks þreytti inntökupróf í læknisfræði við háskóla í Slóvakíu: 23 á leið í læknanám í Slóvakíu LÆKNAR FRAMTÍÐARINNAR Páll Kaarel Laas Sigurðsson, Viktor Franksson og Herbert Vilhjálmsson stóðust prófið. Þeir munu flytja til háskólabæjarins Martin í Slóvakíu næsta haust og hefja nám í læknisfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FRAKKLAND Aqutiaine, nýjasta skip franska sjóhersins, mun hafa stutta viðdvöl í Reykjavíkurhöfn og verður við Miðbakka dagana 3.-6. maí. Aquitaine var sjósett í nóvem- ber 2012 og tilheyrir annarri kynslóð skipa sem sjást ekki á ratsjá. Skipið þykir mikil meist- arasmíð og nær allt að 27 hnúta hraða. Skipið hélt úr höfn þann 8. febrúar síðastliðinn í þriggja mánaða prófunarferð sem nauð- synleg er áður en það telst full- gilt til verkefna innan franska sjóhersflotans. - mlþ Franskt herskip í Reykjavík: Aqutiane sést ekki á ratsjám LÖGREGLUMÁL Mörg mál á borði lögreglu Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær en tilkynnt var um þrjá þjófnaði úr verslunum auk þess sem lögreglan stöðvaði ræktun á fíkniefnum í Kópavogi. Þá var tilkynnt um innbrot í bifreið og um eignaspjöll í skógi. DÓMSMÁL Sýknaður af kynferðisbroti Héraðsdómur Vesturlands sýknaði í vikunni föður af ákæru um gróf kynferðisbrot gegn tíu ára dóttur sinni. Maðurinn var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í mars í fyrra en Hæstiréttur ómerkti þann dóm og vísaði málinu aftur í hérað. STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í gær að engir fundir hefðu verið tímasettir í dag um hugsanlega stjórnarmyndun. „Menn eru að skoða málin og munu eflaust heyrast í framhaldi af því,“ sagði Sigmundur í svari til Fréttablaðsins. Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarkona Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að Bjarni hefði ekki fastbókað neina fundi í dag. Sigmundur og Bjarni funduðu öðru sinni í gær og ræddu þeir meðal annars, að því er Sig- mundur sagði í viðtali á Bylgjunni í gær, nánari útfærslur á hugmyndum Framsóknarmanna um úrlausn í skuldamálum heimilanna. Sigmundur hefur hitt alla forvígismenn flokkanna á þingi með það að markmiði að kanna viðræðugrundvöll um skuldamálin, „vegna þess að það er til lítils að fara í langar og miklar viðræður ef það er engin sam- staða um skuldamálin“, eins og hann sagði á Bylgjunni. - þj Enn bólar ekkert á formlegum viðræðum formanna stjórnmálaflokkanna um myndun ríkisstjórnar: Sigmundur segir enga fundi tímasetta SKOÐA MÁLIN Formenn Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins hafa ekki ráðgert fundi í dag en þeir hafa fundað tvisvar síðan Sigmundur Davíð fékk stjórnar- myndunarumboðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SPURNING DAGSINS Ólafur, þarf að þinga um fjölmennið á Þingvöllum? „Já, það er fullþröngt á þingi miðað við sætafjölda.“ Ólafur Örn Haraldsson er þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Fréttablaðið greindi frá því í gær að ágangur ferðamanna utan háannatímans hefði aukist mikið í vetur og vor. Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • fiskikongurinn.is Opið laugardag 10–15 Stærð 9-12 Millistærð Humarhalar . . . . . . . . . . . . . . . . 6.900 kr.kg Smáir Humarhalar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.900 kr.kg Humarklær . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 990 kr.kg Humarsúpa 1. líter . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.490 kr.kg Fiskisúpa 1.líter . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.490 kr.kg Stærð 24-30 Stærð 15-18 MENNINGARMÁL „Okkur langar að setja minnismerki í þennan heim til marks um þann heim sem við höfum verið að byggja upp á síð- ustu tíu árum,“ segir Ívar Krist- jánsson, einn stofnenda CCP sem býður borginni útilistaverk að gjöf í tilefni tíu ára afmælis tölvuleiks- ins Eve Online. Ívar segir CCP hafa fengið lista- manninn Sigurð Guðmundsson til að vinna tillögur. Ein hugmyndin hafi orðið ofan á og af henni hafi Sigurður gert módel sem sett var upp í Hörpu á Fanfest Eve Online um liðna helgi. Tillagan var send borginni með ósk um að fá að setja verkið upp í fullri stærð á Slipp- svæðinu. Ekki reyndist unnt að finna verkinu stað á Slippsvæðinu þar sem deiliskipulagningu þess er ólokið. „Þetta er mjög fallegt verk en það hlaut ekki einróma hljóm- grunn hjá borginni,“ segir Ívar sem kveður Sigurð nú reyndar vera að vinna tillögu að nýju verki. „Listamaðurinn var hér á Fan- fest um síðustu helgi og þar fædd- ist ný tillaga sem við erum mjög hrifnir af,“ segir Ívar sem kveður verkið munu verða unnið í granít, ál og kopar. Sigurður sé farinn aftur til Kína, þar sem hann er búsettur, og vinni þar módel eftir nýju hugmyndinni. Að sögn Ívars mun stærð þess taka mið af staðsetningunni. „Einkafyrirtæki geta auðvitað ekki bara komið fyrir listaverkum þar sem þeim sýnist – enda ætluð- umst við aldrei til þess og erum til í að skoða hvaða stað sem er. Þegar módelið kemur eftir tvær eða þrjár vikur munum við leggja það inn á borð hjá borginni og fá þeirra hugmyndir um staðsetn- ingu,“ segir hann. Eina ósk CCP varðandi stað fyrir verkið er að sögn Ívars sú að það sé aðgengilegt frá miðbæ Reykjavíkur af tilliti til árlegra gesta á Fanfest fyrirtækisins. „En það er alveg klárt að verkið á að standa eitt og sér sem lista- verk fyrir hvern sem er að njóta,“ segir Ívar, sem kveður mark miðið að verk Sigurðar verði komið á sinn stað áður en tíu ára afmælis- ár Eve Online er á enda. gar@frettabladid.is Borgin fær höggmynd frá tölvurisanum CCP Listamaðurinn Sigurður Guðmundsson í Kína vinnur að útilistaverki sem fyrir- tækið CCP vill gefa Reykjavíkurborg í tilefni tíu ára afmælis og velgengni tölvu- leiksins Eve Online. Fyrsta tillaga Sigurðar hlaut ekki hljómgrunn hjá borginni. TÍU ÁRA AFMÆLISVERK EVE ONLINE Módel af útilistaverki Sigurðar Guðmunds- sonar var sett upp í Hörpunni. Það hlaut ekki náð fyrir augum forstöðumanns Lista- safns Reykjavíkur. Sigurður vinnur nú að nýrri hugmynd. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SIGURÐUR GUÐMUNDSSON ÍVAR KRISTJÁNSSON Verkið á að standa eitt og sér sem listaverk fyrir hvern sem er að njóta. Ívar Kristjánsson, einn stofnenda CCP INDLAND, AP Mikil reiði braust út á Indlandi í gær í kjölfar þess að ind- verskur maður lést eftir árás í pakistönsku fangelsi. Sarabjit Singh hafði setið á dauðadeild í Pakistan í rúm tuttugu ár fyrir njósnir og aðild að mannskæðum sprengjuárásum. Pakistönskum stjórnvöldum er legið á hálsi fyrir að hafa ekki tryggt öryggi Singhs betur, en hann var barinn í höfuðið með grjóti í síðustu viku, en lá í dái þar til hann skildi við. Singh hafði áður lýst yfir áhyggjum af öryggi sínu eftir að pakist- anskur hryðjuverkamaður var tekinn af lífi á Indlandi í febrúar. Salm- an Kurshid, utanríkisráðherra Indlands, sagði atvikið hafa neikvæð áhrif á samskipti ríkjanna, en þau hafa alla tíð verið afar stirð. - þj Illdeilur Indlands og Pakistans harðna enn: Harma lát dauðadæmds fanga TRYLLTIR AF REIÐI Indverjar fóru út á göturnar í gær og brenndu meðal annars eftirmyndir af Asif Ali Zardari, forseta Pakistans. NORDICPHOTOS/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.