Fréttablaðið - 03.05.2013, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.05.2013, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 3. maí 2013 | FRÉTTIR | 11 KOSIÐ Þúsundir nýta upplýsingagjöf stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KOSNINGAR Kosningavefur innan- ríkisráðuneytisins var mikið heimsóttur í aðdraganda alþingis- kosninganna og á kjördaginn 27. apríl. Tæplega 40.000 heimsóttu vefinn síðustu tvær vikurnar fyrir kosningarnar, þar af um 17.000 á kjördag. Mest voru skoðaðar upplýs- ingar um kjördæmi og framboð, kjörskrá, kjörstaði og atkvæða- greiðslu utan kjörfundar. Nýj- ungar á vefnum, eins og ítarlegri tölfræði en áður, upplýsingar fyrir nýja kjósendur og leiðbein- ingarmyndband um atkvæða- greiðslu utan kjörfundar, vöktu einnig mikla athygli. - shá 17.000 heimsóknir 27. apríl: Kosningavefur var vel nýttur Í SUNDAHÖFN Eimskip er með 16 skip í rekstri í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ATVINNULÍF Eimskip hefur náð samkomulagi við skipasmíðastöð- ina Rongcheng Shenfei í Kína um 1,1 milljarðs afslátt á kaupverði tveggja nýrra gámaskipa sem þar eru í smíðum fyrir félagið. Ástæðan er tafir á afhendingu skipanna. Upphaflega var gert ráð fyrir að skipin yrðu afhent á þessu ári. Nú liggur fyrir að afhending á skipunum verði á fyrri hluta árs 2014. Skipin eru hvort um sig 875 gámaeiningar að stærð. Burðar- geta þeirra er um 12 þúsund tonn, lengd 140,7 metrar og breidd 23,2 metrar. - shá Eimskip semur í Kína: Fá 1,1 milljarðs afslátt á skipum ÖRYGGISMÁL 60 ótryggðir á sjó Samkvæmt greiningardeild Landhelgis- gæslunnar voru 60 bátar án lögskrán- ingar á sjó í gær á fyrsta degi strand- veiða. Gæslan brýnir fyrir sjómönnum að hafa þessi mál í lagi enda eru þeir ekki tryggðir nema þeir séu lögskráðir. STANGVEIÐI Tíu sjálfboðaliðar úr röðum stangveiðimanna hafa nú verið útnefndir sem veiðiverðir við Þingvallavatn í sumar. „Við vorum að senda veiðimálastjóra tíu nöfn sem komu frá Landssambandi stang- veiðifélaga og Veiðikortinu,“ segir Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður. „Þeir fá passa upp á það frá veiðimálastjóra. Við erum síðan að stórefla okkar næturvörslu.“ Veiðiverðirnir tíu fá síðan Veiðikortið í þóknun fyrir sitt framlag sem er hluti sam- komulags Þingvallanefndar við stangveiði- menn um að hætta við áður ákveðið bann við næturveiði í landi þjóðgarðsins í sumar. „Saman ætlum við að kveða niður þennan ósóma sem var af hættulegri beitu og skralli sem var þarna á nóttunni,“ segir þjóðgarðs- vörður. Veiðitímabilið í þjóðgarðinum byrjaði 1. maí. Silungurinn hefur verið tregur þessa fyrstu daga enda afar svalt í veðri. Hins vegar hafa að undanförnu borist fréttir af veiddum risaurriðum annars staðar í Þing- vallavatni. - gar Veiðitímabilið á Þingvöllum hafið í sátt stangveiðimanna og þjóðgarðsins: Tíu nýir veiðiverðir útnefndir á Þingvöllum VEITT Í ÞINGVALLAVATNI Allt veiðieftirlit verður hert fyrir landi þjóðgarðsins á nýbyrjuðu veiðitímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR ÖRYGGISMÁL Félagar úr björg- unar sveitinni Lífsbjörg aðstoðuðu í fyrrinótt skipverja á strand- veiðibát sem hafði siglt á innsigl- ingarbaujuna við Rifshöfn. Skemmdist báturinn mikið og tók inn á sig sjó en manninum tókst samt að sigla bátnum í höfn. Var farið með dælu um borð og hélt hún við lekann á meðan báturinn var ferjaður með björgunarskipinu Björg á milli bryggja þar sem hann var hífður á land. - shá Sigldi á við Rifshöfn: Nær sokkinn við ásiglingu E F L A H F . H Ö F Ð A B A K K I 9 1 1 0 R E Y K J A V Í K 4 1 2 6 0 0 0 W W W . E F L A . I S Í S L A N D D U B A I F R A K K L A N D N O R E G U R P Ó L L A N D R Ú S S L A N D T Y R K L A N D Árni Árnason: Árni hefur dýpri þekkingu en flestir aðrir á flóttaleiðum í byggingum og mikilvægi forvarna enda eru öryggis- og brunamál hans sérgrein. Svo er hann líka píanisti og gangandi uppflettirit um klassíska tónlist. Við erum fertug! EFLA verkfræðistofa hefur það að markmiði að skapa lausnir sem stuðla að framförum og efla samfélagið. Starfsfólkið býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á öllu milli himins og jarðar enda dýrmætasta auðlindin. Það eru hæfileikar þess sem gera fjölbreytileg verkefni um allan heim að veruleika á degi hverjum. Guðrún Jónsdóttir: Guðrún er jafnvíg á hægra heilahvel og vinstra þegar kemur að hljóðbylgjum, því hún er ekki bara hljóðverkfræðingur heldur spilar hún líka á fiðlu. Og svo er hún ein af örfáum konum í heiminum sem eiga tvenna eineggja tvíbura.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.