Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 8
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Sigurður Ingi Jóhannsson hafði
aðeins verið nokkra daga í starfi
sem umhverfisráðherra þegar
hann hóf vinnu við að breyta
Rammaáætlun um vernd og nýt-
ingu náttúru svæða. Ramminn varð
að lögum 14. janúar og fyrri ríkis-
stjórn hefur gumað nokkuð af því
að með áætluninni hefði langþráð
sátt náðst um virkjanir og verndun.
Sú sátt var hins vegar alltaf reist
á sandi og Rammaáætlun var mála-
miðlun. Eftir að sérfræðingar höfðu
flokkað fjölda virkjunarkosta í þrjá
flokka, verndar-, nýtingar- og bið-
flokk, tók pólitíkin við. Það varð að
samkomulagi á milli ríkis stjórnar-
flokkanna að færa sex virkjunar-
kosti úr nýtingar- í biðflokk.
Yfirlýst markmið
Ákvörðun Sigurðar Inga á ekki að
koma neinum á óvart. Það var alltaf
umdeilt að hrófla við flokkun sér-
fræðinganna, þó vissulega hafi það
legið skýrt fyrir frá upphafi að það
yrði Alþingi sem á endanum hefði
úrslitavald. Stjórnarandstaðan lá
heldur ekki á þeirri skoðun sinni að
um óheppileg afskipti stjórnmála-
manna væri að ræða.
Sigurður Ingi sagði í samtali
við Fréttablaðið 14. janúar, þegar
Rammaáætlun var afgreidd á
Alþingi, að það væri mikilvægt
að ferlinu lyki á sama hátt og það
hófst; í sátt og samlyndi.
„Í meðförum hæstvirtrar ríkis-
stjórnar hefur þessi friður verið
í sundur slitinn. Hér liggur fyrir
pólitískt plagg sem eru því miður
gríðarleg átök um og ég óttast að
afleiðingin verði sú að það sem hér
verður samþykkt í dag muni ekki
lifa lengi.“
Það stóð heima, því innan við
fjórum mánuðum síðar var vinna
hafin við að endurskoða Ramma-
áætlunina, undir forystu Sigurða
Inga, nú umhverfisráðherra.
Burt með pólitíkina
Þrátt fyrir margítrekaðar tilraun-
ir hefur umhverfisráðherra ekki
gefið færi á sér til umræðu við
Fréttablaðið um Rammaáætlun.
Hann lýsti því yfir í síðustu viku að
vinna við endurskoðun væri hafin,
hún hófst 24. maí.
Það er í samræmi við ræðu Sig-
urðar við eldhúsdagsumræðurnar
í mars: „Fáum við umboð ykkar til
munum við endurskoða hina pólit-
ísku Rammaáætlun í samræmi við
niðurstöðu faghópa sérfræðinga.“
Stefnan er sem sagt sú að breyta
áætluninni til samræmis við útlit
hennar áður en stjórnarflokkarnir
fyrrverandi náðu samkomulagi um
breytta röðun virkjunarkosta, eða
eins og Sigurður Ingi orðaði það við
Fréttablaðið í janúar:
„Við framsóknarmenn munum
greiða atkvæði samkvæmt þeirri
meginstefnu að rammaáætlun sem
vísindamenn skiluðu af sér, hún
muni standa, en ekki það pólit-
íska plagg sem hér er borið fram
af meirihluta umhverfis- og sam-
göngunefndar“
Neðrihluti Þjórsár
Eins og sést hér til hliðar munu sex
virkjunarkostir sem áður voru í bið-
flokki færast yfir í nýtingarflokk.
Þetta eru Urriðafossvirkjun, Holta-
virkjun og Hvammsvirkjun í neðri-
hluta Þjórsár, Skrokkölduvirkjun í
Köldukvísl og Hágönguvirkjun I
og II.
Þá hyggst ráðherra einnig taka
til skoðunar tvo virkjunarkosti
sem hann telur ekki hafa fengið
við lítandi heildarskoðun, Hólms-
árvirkjun neðri við Atley og Haga-
vatnsvirkjun, en báðir lentu í bið-
flokki.
Í þingsályktunartillögunni um
Rammaáætlun, sem þáverandi
iðnaðar ráðherra, Katrín Júlíus-
dóttir, lagði fram og varð að lögum,
segir um Hólmsárvirkjun neðri við
Atley: „Mat faghópa var ekki byggt
á nýjustu gögnum. Óvissa er með
áhrif á skóglendi og hvar línulögn
mun liggja. Vantar frekari upp-
lýsingar.“
Sigurður Ingi sagði í samtali við
fréttastofu Ríkisútvarpsins á dög-
unum að gögn um virkjunina hefðu
týnst.
Hagavatnsvirkjun var sett í bið-
flokk með þeim rökum að borist
hefðu nýjar upplýsingar um jarð-
vegsfok og áhrif virkjunarinnar
á ferðaþjónustu. Því var beint til
næstu verkefnisstjórnar að taka
virkjunarkostinn til nánari skoð-
unar og meta hvort ástæða sé til
að gera tillögu um breytta flokkun
hans. Sú vinna er nú hafin á vegum
umhverfisráðherra.
Fáum við
umboð ykkar
til munum
við endur-
skoða hina
pólitísku
Ramma-
áætlun í samræmi við
niðurstöðu faghópa sér-
fræðinga.
Sigurður Ingi Jóhannsson á Alþingi í
mars.
ASKÝRING | 8
ENDURSKOÐUN RAMMAÁÆTLUNAR
Við tjöldum því besta
Icarus 500 - 5 manna tjald, gott fortjald,195cm
lofthæð, 3000mm vatnsheldni, eldvarinn dúkur
Tempest 200 - 2ja manna göngutjald,
5000mm vatnsheldni, 2,9 kg.
Kirby 400 - 4 manna tjald, gott fortjald, 195cm
lofthæð, 3000mm vatnsheldni, eldvarinn dúkur
kr. 64.995
Tilboð
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Vatnsafl skostir
Jarðhitakostir
Færa virkjunarkosti
í nýtingarflokk
Umhverfisráðherra hefur hafið vinnu við að breyta Rammaáætlun. Líklegast er að
sex virkjunarkostir verði færðir úr biðflokki í nýtingarflokk. Lögformlegt ferli gerir
þó ráð fyrir því að verkefnisstjórn leggi tillögur að breytingum fyrir ráðherra.
Ný verkefnisstjórn um
Rammaáætlun var skipuð í
mars. Formaður hennar er
Stefán Gíslason umhverfis-
verkfræðingur. Eitt megin-
verkefna stjórnarinnar er að
meta þá 32 kosti sem eru í
biðflokki. Samkvæmt lögum
ber verkefnisstjórn inni
síðan að gera tillögu um
það hvort, og þá hvernig,
flokkun þeirra verður breytt, hvort
þeir færast í verndar- eða nýtingar-
flokk. Ráðherra getur breytt þeirri
tillögu, en þó aðeins að höfðu
samráði, en hann leggur síðan fram
þingsályktunar tillögu fyrir Alþingi
sem hefur lokavaldið.
Stefán segir að þeir sex kostir
sem ráðherra hefur nefnt séu í
ákveðnum forgangi.
„Þeir hafa ákveðinn forgang og
annað er svo sem ekki um málið
að segja. Við vinnum þá. Þeir eru í
biðflokki vegna þess að það þóttu
ekki vera nægilegar upplýsingar til
um þá og það er okkar hlutverk að
afla þeirra upplýsinga, leggja mat á
þær og vera í sambandi við fagaðila
á viðkomandi sviðum og komast
að einhverri niðurstöðu þannig
að það sé hægt að taka afstöðu til
þess hvort þeir eigi að fara upp eða
niður.“
Umfangsmikil vinna
Stefán segir töluverða vinnu fram
undan, en verkefnisstjórnin hefur
hist einu sinni og mun funda aftur í
næstu viku. Meta þurfi hvað vantar
af gögnum og hvernig hægt sé að
nálgast þau. Ætlast sé til að skipaðir
séu faghópar á mismunandi sviðum
til að fjalla um kostina og meta
þurfi hvern og einn kost sér.
„Í sumum tilfellum þarf kannski
að vinna einhverjar rann-
sóknir. Þær geta verið
árstíðabundnar. Það getur
þurft að fara í þær að
sumarlagi og þá veltur
það á því hversu langt við
getum verið komin með
þær næsta vetur, meðal
annars á því hvort okkur
tekst að nýta þetta sumar,
sem er náttúrulega að
bresta á og að verða búið. Þá þarf
að finna sérfræðinga sem hafa
sérþekkingu á viðkomandi sviði.“
Hafa frest til 2017
Verkefnisstjórnin á að skila af sér
25. mars 2017, fjórum árum eftir að
hún var skipuð. Stefán segir að skila
eigi áfangaskýrslu á næsta ári. Það
þýði þó ekki að þá verði komnar
tillögur um flutning einstakra
virkjunarkosta á milli flokka.
„Hvað verður í henni verður að
koma í ljós. Það er fyrst og fremst
skýrsla um hvernig þessar athuganir
standa. Það er allt of snemmt að
segja um hvort það verði komnar
einhverjar ákveðnar tillögur um
ákveðna virkjunarkosti þá. Við
höfum ekki sett okkur nein mark-
mið í því.“
Eins og fyrr segir er lögformlega
ferlið þannig að verkefnisstjórnin
skili tillögu til ráðherra sem leggi
málið síðan fyrir Alþingi. Stefán
segir að ef menn hafi vilja til að
hlutirnir þróist í ákveðna átt varð-
andi tiltekna kosti vinni þeir auð-
vitað að því. Það sé hins vegar ekki
gert með því að smella fingrum.
„Auðvitað hafa allir skoðanir á
hverjum kosti fyrir sig, en ég geri
líka ráð fyrir því að það séu allir
sammála um að það þurfi að vanda
þessa ákvarðanatöku.“
➜ Ráðherra bíður tillagna verkefnisstjórnar
1 Urriðafossvirkjun ........................... 130 MW
2 Holtavirkjun ......................................53 MW
3 Hvammsvirkjun ................................82 MW
4 Skrokkölduvirkjun .............................30 MW
5 Hágönguvirkjun 1&2 ........................90 MW
6 Hólmsárvirkjun neðri við Atlaey.......65 MW
7 Hagavatnsvirkjun ..............................20 MW
URRIÐAFOSS Umhverfisráðherra hefur talað
fyrir því að virkjanir í neðrihluta Þjórsár verði
færðar úr biðflokki og í nýtingarflokk. Urriða-
fossvirkjun er ein þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
2 3
4
6
7
5
STEFÁN
GÍSLASON