Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 18

Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 18
Verið er að breyta merkingum á umbúðum með skelbrotnum humri frá Skinney-Þinganesi hf. Ábending barst frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um að merkingar væru ófullnægjandi. Um er að ræða Hornafjarðarhumar í 2 kg öskju. Á öskjunni kemur fram að varan innihaldi aukefnið E-223 en flokks- heitið natríummetabísúlfít vantar. Þar sem flokksheiti aukefnisins kemur ekki fram á umbúðum er því ekki um skýra merkingu með tilliti til ofnæmis- og óþolsvalda að ræða, að því er segir í fréttatilkynningu frá Skinney- Þinganesi hf. Þeir sem kunna að eiga þessa vöru geta haft samband við Humarsöluna ehf., Básvegi 1 í Reykjanesbæ (sími 8676677), og fengið að skila henni. Ófullnægjandi merkingar 30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18 Neytendur fylgjast illa með reikn- ingum sínum og vita ekki fyrir hvað þeir eru að borga, að sögn Ingibjargar Magnúsdóttur, full- trúa Neytendasamtakanna í fjar- skiptamálum. „Það er með ólíkindum hversu mikið tómlæti fólk sýnir. Það bara borgar og borgar og hringir svo til okkar mörgum mánuðum eftir að það hélt að áskriftinni væri lokið. Þá vill það fá allt endurgreitt og stundum er aðeins komið til móts við fólk. Því er til dæmis boðin frí áskrift í tvo til þrjá mánuði ef um sjónvarpsstöð er að ræða en það á í raun ekki rétt á neinu. Það er algjörlega því sjálfu að kenna að hafa ekki sagt upp þjónustunni.“ Margir hafa lent í því að halda áfram að greiða mánaðarlega til sjónvarpsstöðvar mörgum mánuð- um eftir að myndlykli er skilað, að því er Ingibjörg greinir frá. „Neyt- endur halda að það sé nóg að skila myndlykli til fjarskipta fyrirtækis og þá hafi sjónvarpsáskriftinni sjálfkrafa verið sagt upp en svo er ekki.“ Ingibjörg segir Neytenda- samtökin ráðleggja fólki að skrá hjá sér allar áskriftir sem það hefur og reyna að fá yfirsýn yfir hvaða þjón- ustu er verið að kaupa. „Fjarskipta- markaðurinn er flókinn og neyt- endur virðast hafa litla yfirsýn yfir bestu kjör og hvaða áskriftarleiðir henta best. Á flestum heimilum eru nokkrar tölvur, símar og sjónvörp og mánaðarlegur kostnaður vegna fjarskipta skiptir tugum þúsunda. Leiga á routerum og myndlyklum er hluti af þessum kostnaði, auk áskrifta af vefmiðlum og tónlist. Þar við bætist leiga á bíómyndum.“ Fjarskiptaþjónusta er stór mála- flokkur hjá leiðbeiningar- og kvört- unarþjónustu Neytendasamtakanna. „Það hafa komið upp nokkur mál þar sem stendur bara „virðis aukandi þjónusta“ á síma reikningum neyt- enda og engin nánari skýring. Eftir margra mánaða skuldfærslu áttar fólk sig á að þetta er kannski áskrift að tonlist.is sem það hefur skráð sig í í bríaríi án þess að gera sér grein fyrir að samþykktar voru mán- aðarlegar úttektir af símareikn- ingi,“ segir Ingibjörg og bætir við að skilmálar séu oft mjög flóknir og ógagnsæir. Neytendur verði að krefjast skýringa á þjónustuliðum og skoða reikningana sína í hverjum mánuði. ibs@frettabladid.is Fólk fylgist illa með reikningunum sínum Neytendur fylgjast illa með reikningum sínum. Segja ekki upp þjónustunni en vilja fá allt endurgreitt. Fólki sjálfu að kenna, segir fulltrúi Neytendasamtakanna. Í Malmö í Svíþjóð koma um 500 manns reglulega í fataleiguna Klädoteket til að leigja sér fatnað til að klæðast í vinnunni eða frítímanum. Margir viðskipta- vinanna eru konur á aldrinum 16 til 35 ára, að því er segir á fréttavef Svenska Dagbladet. Mest er spurt eftir bolum og öðrum hversdagsfatnaði sem aðrir hafa gefið. Hægt er að taka fatnaðinn á leigu í þrjár vikur. Hversdagsfatnaður til leigu Meðalverð á lausasölulyfjum og hinum ýmsu vörum apótekanna hefur hækkað töluvert síðastliðið ár sam- kvæmt verðkönnun ASÍ nú í maí frá því í júní í fyrra. Af þeim 46 vörutegundum sem bornar voru saman á milli ára hafði meðalverð á 30 þeirra hækkað. Sú vara sem hækkaði mest hjá öllum apótekum eru Duroferon forðatöflur (100 stk. 100 mg). Meðalverðið í júní 2012 var 821 kr. en er nú 2.278 kr., sem er 177 pró- senta hækkun. Algengast var að sjá hækkun á bilinu eitt til fimm prósent, að því er segir í frétt á vef ASÍ. Aðeins Reykjavíkur Apótek og Garðs Apótek hafa nánast sama verð og í fyrra, þrátt fyrir einstaka verð- breytingar. Flestar vörurnar hækkuðu hjá Siglu- fjarðar Apóteki, í um 70 prósentum tilvika. Þar á eftir koma Lyfjaver, Austurbæjar Apótek og Lyfja með hækkanir í um helmingi tilvika. Þegar apótekakeðjur eru bornar saman sést að Lyfja hækkar oftast verðið en Lyfjaval lækkar það oftast. Sjá má niðurstöður könnunarinnar í töflu á vef ASÍ. GARÐSAPÓTEK Nánast sama verð var hjá apótekinu og í fyrra. Flestar vörur hækkuðu hjá Siglufjarðarapóteki í nýrri verðkönnun ASÍ: 177 prósenta hækkun á einni vöru „Bestu kaupin eru án efa nýja AFTUR-vestið mitt sem er úr leðri með áföstu kögri. Ég sé mig fyrir mér í blússandi sveiflu í vestinu í sumar,“ sagði Natalie G. Gunnarsdóttir, betur þekkt undir plötusnúðanafninu DJ Yamaho. „Ég hef beðið eftir flíkinni lengi og á eftir að nota hana mikið.“ „Verstu kaupin verð ég að segja að sé einhvers konar rúllukragaúlpa sem ég keypti í Levi‘s-búðinni fyrir mörgum árum. Mér fannst þetta vera geðveik úlpa og sá mig í anda ná hámarksnýtingu úr flíkinni, þar sem íslenskt sumar kallast vetur á sumum stöðum. Viku seinna gaf Bubbi út glænýja plötu. Á plötuumslaginu var einlæg mynd af Bubba, í nákvæm- lega eins úlpu,“ en sögunni fylgdi ekki hvað hefði orðið um úlpuna. Natalie Guðríður Gunnarsdóttir er plötusnúður og nemandi í við- skiptafræði í Háskóla Íslands. NEYTANDINN NATALIE G. GUNNARSDÓTTIR Í blússandi sveiflu í sumar HEIMABANKINN Neytendur verða að krefjast skýr- inga á þjónustu- liðum og skoða reikninga sína í hverjum mánuði. Skynsamlegt er að skrá hjá sér allar áskriftir sem greitt er af, að sögn Ingibjargar Magnúsdóttur hjá Neytenda- samtökunum. Miðevrópu- draumur 15. - 28. ágúst 2013. Hinn sígildi og geysivinsæli Miðevrópudraumur verður nú sennilega farinn í síðasta sinn eftir rúmlega 30 ára sögu. Farið verður um fallegustu fjallasvæði Evrópu, þýsku, austurrísku, ítölsku og svissnesku Alpana. Aðeins nokkur sæti laus. Fararstjóri er hinn þaulreyndi Friðrik G. Friðriksson sem sér um að ferðalangar komi úthvíldir heim úr fríinu. Nánari upplýsingar gefa Silja Rún og Guðný í síma 570 4472 (Vita sport). Sjá myndasafn úr ferðum á Evrópurútur Frissa á www.vita.is Verð í tvíbýli: 289.500 kr. Fyrir einbýli er 55.000 kr. aukagjald. Innifalið: Flug, skattar, sigling, gisting með fæði og skoðunarferðir skv. ferðalýsingu.ÍSL E N S K A S IA .I S V IT 6 28 11 0 1. 20 13 VITA er lífiðVITA Suðurlandsbraut 2 Sími 570 4444 Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.isVITA er í eigu Icelandair Group. Neyt- endur halda að það sé nóg að skila myndlykli til fjarskipta- fyrirtækis og þá hafi sjónvarps- áskriftinni sjálfkrafa verið sagt upp en svo er ekki. Ingibjörg Magnúsdóttir fulltrúi Neytendasamtakanna Íslykillinn, sem er eins konar nafnskírteini á netinu, nær sífellt meiri útbreiðslu. Innleiðing Ís- lykilsins er til þess að fólk geti auðveldlega skráð sig inn á vefi stofnana, sveitarfélaga, félaga- samtaka og fyrirtækja, með einni miðlægri innskráningu í stað fjölda lykilorða. Íslykillinn er nú rúmlega mánaðargamall og um fimmtán þúsund einstaklingar og á annað hundrað lögaðilar hafa þegar tekið Íslykilinn í notkun. Íslykillinn breiðist út

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.