Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 20

Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 20
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20 VIÐSKIPTI Efnahags- og fram- farastofnunin, OECD, spáir því að hagvöxtur á Íslandi muni aukast töluvert á næsta ári og verða 2,6%. Spáð er að hag- vöxturinn í ár verði 1,9%, sem er það sama og Hagstofan gerir ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýju yfir- liti frá OECD um horfur í efna- hagsmálum þeirra þjóða sem eiga aðild að stofnuninni. Hvað Ísland varðar setur OECD fyrir- vara á spá sína um hagvöxtinn árið 2014 og segir að forsendur fyrir þeim vexti séu meðal ann- ars fjárfesting í orkuiðnaði. Þá kemur fram að OECD gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði undir 5% árið 2014 og að verð- bólgan verði að meðaltali um 3,2%. 1,9% hagvöxtur í ár: OECD spáir auknum hagvexti 2013 Samanlagðar tekjur fjarskipta- fyrirtækjanna af fjarskiptastarf- semi á síðasta ári voru rúmir 48 milljarðar, sem er aukning um þrjá milljarða milli ára. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar um fjar- skiptamarkaðinn á Íslandi. Meðal þess sem helst vekur athygli er að tekjur vegna fasta- nets og talsímareksturs stendur í stað eða dregst lítillega saman á meðan tekjur vegna farsíma- reksturs, gagnaflutninga og annarra hluta, til dæmis sölu á farsímum og efni vegna sjónvarps- rekstrar aukast mikið. Þessar tölur eru lýsandi fyrir þróunina á fjarskiptamarkaði þar sem hefðbundin talsímaþjónusta er á hægu undanhaldi en gagna- flutningar á farsímaneti hafa stór- aukist. Til dæmis kemur fram í skýrsl- unni að símtölum innan fastaneta fækkaði um tólf prósent á milli áranna 2010 og 2012, úr tæpum 463.000 símtölum á ári niður í tæp 409.000 símtöl. Á sama tímabili fjölgaði sím- tölum úr farsímum hér á landi lítillega, úr um það bil 399.000 sím tölum árið 2010 upp í tæplega 413.000 símtöl árið 2012. Gagnaflutningar um farsíma- netið hafa hins vegar tvöfaldast og rúmlega það. farið úr 582.000 gíga- bætum árið 2010 upp í rúmlega 1.2 milljónir gígabæta á síðasta ári. Gunnhildur Arna Gunnars- dóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir að markaðurinn sé að taka stakkaskiptum um þessar mundir og viðbúið að þessi þróun haldi áfram næstu ár. „Þótt við búumst við miklum breytingum í notkun farsíma og þróum þjónustu í samræmi við það, gleymum við ekki þeim við- skiptavinum sem hafa ekki fylgt þessari netþróun í gegnum sím- ana. Og við tryggjum þeim að sjálfsögðu gömlu góðu þjónustuna, svo hún er ekki úreld.“ Liv Bergþórsdóttir, fram- k væmd astjór i fja rsk ipt a - fyrirtækis ins Nova, segir að á síðasta ári hafi ákveðið stökk átt sér stað, en það eigi enn eftir að aukast með bættri tækni. „Á þessu ári munum við sjá öfl- uga 4G-snjallsíma koma á markað- inn, sem styðja tíu sinnum meiri hraða en 3G, þannig að hraðinn er alltaf að aukast og efni á net- inu verður í sífellt meira magni lifandi sjónvarpsefni en ekki að megninu til texti eins og er í dag. Símarnir eru svo sífellt að verða öflugri þannig að við erum bara að stíga okkar fyrstu skref í notkun netsins í farsímum.“ thorgils@frettabladid.is Nýir tímar að renna upp Ný skýrsla um íslenska fjarskiptamarkaðinn varpar ljósi á breytta tíma. Á meðan hefðbundin talsímaþjónusta dregst saman er mikill vöxtur í gagnaflutningum um netið og útlit fyrir að sú þróun sé enn á byrjunarstigi. Tekjur eftir fjarskiptastarfsemi ➜ Heildartekjur fjarskiptafyrirtækja vegna fjarskiptastarfsemi 2012: 48 milljarðar 18.000 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Fastanetið Talsíma- rekstur Farsíma- rekstur Gagnaflutn- ingur og internet- þjónusta Aðrar tekjur ■ 2010 ■ 2011 ■ 2012 Í m ill jó nu m k ró na Heimild: Póst og fjarskiptastofnun Í skýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar kemur einnig fram að Íslendingar sendu rúmlega 225 milljónir SMS-skilaboða í fyrra, sem jafngildir því að hvert mannsbarn sendi rúmlega 700 skilaboð. SMS-sendingum hefur fjölgað talsvert síðustu ár, en árið 2010 var 171 milljón skeyta send. Nova er með mikla yfirburði á SMS-markaðnum þar sem sex af hverjum tíu skeytum eru send úr síma frá Nova. Vodafone er í öðru sæti með rúman fimmtung skeyta og Síminn með tæp átján prósent. 700 SMS á hvert mannsbarn GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR LIV BERGÞÓRS- DÓTTIR HS ORKA Uppbygging í orkuiðnaði er forsenda þess að hagvöxtur aukist, segir OECD. Hágæða Fissler pottasett Varanleg brúðkaupsgjöf SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt ht.is ÚTSÖLUSTAÐIR: LAUGAVEGI 178. Sími: 568 9955.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.