Fréttablaðið - 30.05.2013, Qupperneq 31
Mig langaði til að verða sjálfrar mín herra,“ segir Sigga Foss, sem var
menntaður mjólkur fræðingur
þegar hún ákvað að fylgja
hjartanu og hefja nám við Fóta-
aðgerðaskóla Íslands, þaðan sem
hún útskrifaðist í fyrravor.
„Mér þótti það spennandi
tilhugsun að vinna með fólki og
takast á við áhugavert nám. Það
kom á óvart hversu krefjandi
námið var, skemmtilegt og vel
upp byggt. Mórallinn var góður,
námið metnaðarfullt og gott að
leita til kennaranna,“ segir Sigga
sem nú nýtur sín á nýjum starfs-
vettvangi.
„Fótaaðgerðafræðingar sinna
fótum og fást við vandamál eins
og vörtur, líkþorn, inngrónar
neglur, sigg og fleira. Þá geta
þeir leiðbeint skjólstæðingum
sínum ef auðsýnt er að þeir þurfi
innlegg eða smáhlífar til stuðn-
ings og við hjálpum sykursjúkum
og gigtarsjúklingum að halda
fótum sínum góðum, sem er afar
mikilvægt,“ útskýrir Sigga.
Að námi loknu sækja nem-
endur um löggildingu hjá Emb-
ætti landlæknis og geta þá hafið
störf.
„Ég opnaði draumastofuna;
mína eigin fótaaðgerðastofu í júlí
síðasta sumar. Það var spenn-
andi verkefni og stofan hefur
fengið góðar viðtökur. Mér þykir
alltaf gaman í vinnunni og það
er yndislegt að vinna hjá sjálfri
sér,“ segir Sigga hamingjusöm á
Fótaaðgerðastofu Siggu Foss.
„Það er svo einkennilegt að
öllum finnst þeir hafa ljótar tær
en sjálf hef ég aldrei séð ljóta
fætur í mínu starfi. Fætur okkar
eiga fráleitt að vera feimnismál,
sama hvernig ásigkomulagið er,
og alltaf hægt að laga, bæta og
fegra,“ segir Sigga.
„Með aldrinum fjarlægist
gjarnan sambandið við tærnar
því of langt verður niður til
þeirra til að sinna þeim vel. Þá
er gott og notalegt að fara í fóta-
bað og fótaaðgerð hjá fagfólki og
margir fá sér ljúfan blund á með-
an,“ segir Sigga og brosir sæl.
„Starfið er verulega skemmti-
legt, ég hitti mikið af skemmti-
legu fólki og fæ að sinna því sem
mér þykir gaman; að dúlla mér í
fótum og tám.“
FYLGDI HJARTANU
FÓTAAÐGERÐASKÓLI ÍSLANDS KYNNIR Draumur Siggu Foss rættist þegar
hún opnaði eigin fótaaðgerðastofu eftir útskrift sem fótaaðgerðafræðingur.
SANNUR FÓTAVINUR Sigga Foss er
meðlimur í Félagi íslenskra fótaaðgerða-
fræðinga, sem er aðili að Alþjóðasam-
tökum fótaaðgerðafræðinga. Þau hafa
útnefnt maí sem fótaverndarmánuð og
í ár er maímánuður tileinkaður fótum
aldraðra. MYND/ANTON
TAKTU
EFTIR
ÞESSU!
Fótaaðgerðaskóli Íslands hef-
ur verið starfræktur í sex ár.
Kenndar eru sérgreinar í fóta-
aðgerðafræði. Samvinna er við
Fjölbrautaskólann við Ármúla
um kennslu í almennum grein-
um. Nám í skólanum tekur þrjár
annir og er lánshæft hjá LÍN.
Fótaaðgerðafræðingar sækja um
löggildingu hjá Embætti land-
læknis. Nánari upplýsingar á
www.snyrtiakademian.is
VEKUR ATHYGLI
Breska fyrirsætan Cara Delevingne, sem er tvítug, hefur náð
miklum frama innan tískuheimsins. Hún hefur meðal annars sýnt
fyrir Chanel og Dolce Gabbana. Í fyrra var hún kjörin fyrirsæta
ársins á bresku tískuverðlaunahátíðinni. Eftir henni var tekið á
kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Vertu vinur okkar á Facebook
20%
afsláttur af
ZEITLOS by LUANA
Kjólar - Túnikur
Bolir - Jakkar
Leggins - Pils
FEVER sundbolur
áður kr. 13.850,-
NÚ KR. 9.695.-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
Laugardaga frá kl. 10-14
SUNDFATNAÐUR Á 30 % AFSLÆTTI
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
TÆKIFÆRISGJAFIR
www.tk.is
NÝTT MUNNBLÁSIÐ - HANDUNNIÐ
Fæst eingöngu hjá
IV
V
h
an
du
nn
ið
f
rá
Ít
al
íu