Fréttablaðið - 30.05.2013, Síða 33

Fréttablaðið - 30.05.2013, Síða 33
 | FÓLK | 3TÍSKA Boðið er upp á gönguferðir um þjóðgarðinn á Þingvöllum með leiðsögn á morgnana, og um helg- ar eru gönguferðir um hraunið þar sem áður voru bæjarstæði. Gönguferðirnar á morgnana eru vinsælar hjá erlendum ferða- mönnum en Íslendingar koma gjarnan um helgar. Fimmtudags- göngur á sumrin hafa verið ein- staklega vinsælar í ellefu ár, en þá koma fræðimenn og fróðleiksfólk með ákveðið þema, hvort sem það er jarðfræði, þættir úr forn- sögum eða annað. Fimmtudags- ferðirnar hefjast 6. júní. Gönguferðirnar hefjast klukkan 20.00 frá fræðslumiðstöðinni við Hakið og er gengið niður Almanna gjá að Lögbergi og síðan í þá átt sem viðfangsefninu hent- ar. Léttar gönguferðir þar sem fræðslan er í fyrirrúmi og þekking og skoðanir leiðsögumanns fá að njóta sín. FYRIRLESARAR SUMARSINS ERU SEM HÉR SEGIR: ■ 6. júní Ólafur Örn Haraldsson ■ 13. júní Vala Garðarsdóttir ■ 20. júní Andri Snær Magnason ■ 27. júní Sigurður Hróarsson ■ 4. júlí Hilmar Örn Hilmarsson ■ 11. júlí Þórarinn Eldjárn ■ 18. júlí Vilborg Davíðsdóttir ■ 25. júlí Þórunn Erlu Valdimars- dóttir FERÐAMENN Það er gaman að ganga um þjóðgarðinn. Samkeppnin er haldin í samvinnu við Ístex og Landssamtök sauðfjár- bænda. Henni er ætlað að vera til heiðurs íslensku sauðkindinni. Upphaf keppninnar má rekja til 10. september 2012 þegar aftaka- veður skall á Norður- og Norð- austur landi með þeim afleiðing- um að tíu þúsund fjár urðu úti. Þetta hafði vissulega slæm áhrif á bændur. Ljósi punkturinn var þó sá að langt fram eftir hausti fannst sauðfé á lífi sem grafist hafði í fönn. Þar sannaðist það sem margir vissu, að íslenska ullin er einstök; hlý og einangrandi. Í kjölfar óveðursins hrintu Landssamtök sauðfjárbænda af stað söfnunarátaki „Gengið til fjár“ vegna þess tjóns sem sauðfjár- bændur á Norðurlandi urðu fyrir í óveðrinu. Fljótlega komu upp hugmyndir um að efna til ritgerða- samkeppni um vitsmuni íslensku forystukindar- innar og hönnunar- samkeppni um peysu úr íslensku ullinni. Þema hönnunar- samkeppninnar er óblíð veðrátta og á hönnun peysunnar að endurspegla það. Þá er skilyrði að peysan sé úr íslenskri ull en ekki skiptir máli hvort notað er band eða lopi, sauðalitir eða aðrir litir. Peysunum á að skila til Ístex, Völuteigi 6, 270 Mosfellsbæ fyrir 1. október 2013 merktum með dul- nefni en nafn, heimilisfang og síma- númer látið fylgja með í lokuðu umslagi merktu dulnefninu. Peys- unum verður skilað að lokinni keppni. Í dómnefnd sitja Gísli Einarsson, rit- stjóri Landans, Hulda Hákonardóttir, mark- aðs- og kynningar- stjóri Ístex, og Jóhanna E. Pálma- dóttir, bóndi og framkvæmda- stjóri Textílset- urs Íslands. Verðlaun eru vegleg en afhending þeirra fer fram fyrsta vetrardag, laugardag- inn 26. október 2013. Þá stendur til að halda sýningu á öllum peysum sem sendar verða í keppnina. KEPPT Í HÖNNUN Á ÓVEÐURSPEYSU Verkefnastjórn söfnunarinnar „Gengið til fjár“ efnir til hönnunarsamkeppni um gerð peysu úr íslenskri ull þar sem þemað er óblíð veðrátta. SAUÐKINDIN Íslenska kindin er harðger og þrautseig, eins og sannaðist í óveðrinu sem gekk yfir Norður- og Norðaustur- land síðastliðið haust. MYND/VILHELM DÓMARI „Ég ætla að nýta hyggjuvitið við dómarastörfin og glugga í prjónablöð til að standa mig í stykkinu,” segir Gísli Einars- son, sem verður enn af dómurunum. VINSÆLAR GÖNGU- FERÐIR UM ÞINGVÖLL Við erum á Facebook FRÚIN Í FLASH TEKUR TIL 50-70% afsláttur af völdum vörum • Kjólar áður 19990 nú 5000 • Allar buxur 5000 • Allar peysur 5000 • Mussur áður 14990 nú 6990 • Skokkar áður 16990 nú 7990 • Og margt, margt fleira Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar núna á www.stod2.is/vild ENN MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR Sækja þarf um Olís greiðslulykil til að fá afs látt 25% afsláttur af matseðli hjá Rizzo Pizzeria. AFSLÁTTUR-7KR.AFSLÁTTUR F ÍT O N / S ÍA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.