Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 50
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
TÓNLIST ★★★ ★★
Stefnumót við Lutoslawski
Kammersveit Reykjavíkur flutti verk
eftir Lutoslawski í Norðurljósum Hörpu.
Einleikarar: Matthías Birgir Nardeau og
Katie Buckley. Stjórnandi: Petri Sakari.
Pólska tónskáldið Witold Luto-
slawski samdi mörg frábær verk.
Önnur eru tyrfnari; þau byggja
oft á flókinni tónsmíðatækni þar
sem tilviljanir koma við sögu.
Sem dæmi eru sum kammerverk-
in þannig að hljóðfæraleikararnir
vita ekki nákvæmlega hvað þeir
eiga að spila hverju sinni. Aðeins
hljómsveitarstjórinn hefur það í
hendi sér. Og þegar það er enginn
hljómsveitarstjóri, þá spilar hver
hljóðfæraleikari með sínu nefi,
eins og hann sé einn.
Þetta á við um Strengjakvar-
tettinn frá 1964 sem var flutt-
ur á tónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur á Listahátíð á sunnu-
dagskvöldið. Vissulega er ákveð-
inn tímarammi sem strengja-
leikararnir vinna eftir, en frelsið
er engu að síður mikið. Þetta hefur
þau áhrif að það eru ekki endilega
sömu raddirnar sem heyrast á
sama tíma frá flutningi til flutn-
ings. Túlkanir geta verið mjög
ólíkar.
Því miður verður að segjast að
flutningurinn nú var svo lang-
dreginn og leiðinlegur að það hálfa
hefði verið nóg. Óneitanlega voru
góðir sprettir í tónlistinni en það
var of langt á milli þeirra. Upp
kom í hugann það sem Rossini
sagði um Wagner: „Tónlist hans á
góð augnablik en slæma stundar-
fjórðunga.“ Kvartettinn eftir Luto-
slawski var eitt af svona verkum;
það ætlaði aldrei að verða búið.
Svipaða sögu er að segja um
Prelúdíur og fúgu fyrir þrettán
strengjaleikara frá árinu 1972. En
Örforleikur fyrir málmblásara-
kvintett (1982) var hins vegar
frábær. Bæði var tónlistin
skemmtilega fersk, og svo var
hljóðfæraleikurinn nákvæmur,
snarpur og líflegur.
Dansaforleikir fyrir níu hljóð-
færi (1959) voru líka heillandi,
og prýðilega leiknir. Og Tvöfald-
ur konsert fyrir óbó, hörpu og
kammer sveit (1979-1980) var fram-
úrskarandi. Tónlistin sjálf var mun
lagrænni, aðgengilegri og meira
grípandi, og svo var hún snilldar-
lega flutt. Matthías Birgir Nardeau
spilaði einstaklega fallega á óbó, og
Katie Buckley lék svo fagurlega á
hörpuna að það var hrein dásemd.
Petri Sakari stjórnaði svo kamm-
ersveitinni, sem lék eins og einn
maður. Þetta var skemmtileg upp-
lifun. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Sumt var skelfilega
leiðinlegt, annað frábært. En tón-
leikarnir í heild gáfu góða mynd af
hinni miklu breidd í tónlist Luto-
slawskis.
Góð augnablik, slæmir
stundarfjórðungar í Norðurljósum
PETER SAKARI Stjórnaði hljómsveitinni sem lék sem einn maður í Norðurljósasal
Hörpu á sunnudagskvöld.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR
30. MAÍ 2013
Fundir
10.00 Ársfundur UNICEF á Íslandi
fer fram í fundarsal Þjóðminjasafns
Íslands, Suðurgötu 41. Allir áhugasamir
velkomnir.
Leikrit
20.00 Leikritið Blinda konan og þjónn-
inn, eftir Sigurð Pálsson, verður flutt í
Kringlusafni. Leikarar eru Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Valur Freyr Einarsson.
Miðaverð er kr. 2.000.
20.00 Leikkonan Þórunn Clausen sýnir
einleikinn Ferðasaga Guðríðar í Garða-
kirkju. Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
20.00 Bræðurnir Ásgeir Trausti og
Þorsteinn (Steini í Hjálmum) Einars-
synir koma saman fram á tónleikum í
Neskirkju. Ásamt þeim koma þar fram
Stúlknakór Neskirkju, Kór Neskirkju,
Einar Indra og Þórir Georg. Miðaverð
er kr. 2.500 og að tónleikumloknum
verður sumarblómasala til styrktar kór
kirkjunar.
21.00 Hljómsveitin Síðasti bærinn í
dalnum heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da, Frakkastíg 8.
21.00 Hljómsveitin Kælan Mikla spilar
á Volta ásamt dj. flugvél og geimskip,
Knife Fights og Spy kids 3D. Kælan
Mikla vann ljóðaslamm Borgarbóka-
safnsins þetta árið og hefur vakið mikla
athygli fyrir áhrifaríka sviðsframkomu.
Aðgangur er ókeypis.
Listamannaspjall
12.15 Magnús Pálsson og Jón Proppé
taka þátt í spjalli í Hafnarhúsinu, í
tengslum við yfirlitssýningu Magnúsar
sem stendur þar yfir.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is
Síðasta sýningarhelgi á leiksýn-
ingunni Tengdó er um helgina.
Sýningin hlaut fern Grímuverð-
laun í fyrra og var meðal annars
valin sýning ársins. Hún verður
ekki á dagskrá á næsta leikári
svo þetta er síðasta tækifæri til
að berja hana augum. Síðasta
sýning er 7. júní.
Leiksýningin sló óvænt í gegn
er hún var frumsýnd og hefur nú
verið sýnd fyrir fullu húsi á 70
sýningum.
Höfundar verksins eru Ilmur
Stefánsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson,
Davíð Þór Jónsson og Valur Freyr
Einarsson, sem einnig fer með
aðalhlutverk ásamt Kristínu Þóru
Haraldsdóttur. Verkið er byggt
á fjölskyldusögu Vals sem segir
sögu tengdamóður sinnar.
Tengdó kveður
VINSÆL SÝNING Síðasta helgin til að
sjá leiksýninguna Tengdó, sem kveður
eftir 70 sýningar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MYNDARLEGUR
www.landrover.is
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
OPIÐ LAUGARDAG
FRÁ 12-16
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
9
9
0
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.