Fréttablaðið - 30.05.2013, Síða 60

Fréttablaðið - 30.05.2013, Síða 60
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48 Hún yrði sannarlega ekki fyrsta unga stjarnan til að tapa glórunni ef það er það sem er að koma fyrir leikkonuna Amöndu Bynes, sem hefur farið ham- förum á samskiptasíðunni Twitter undanfarna daga og ráðist þar harkalega á söngkonuna Rihönnu, rokkar- ann Courtney Love og nú síðast fyrirsætuna Chrissy Teigen. Leikkonan er 27 ára gömul og hefur verið í sviðs- ljósinu frá 13 ára aldri. Hún er þekktust fyrir hlut- verk sín í myndunum She‘s the Man og Hairspray en hefur ekki tekið að sér nein verkefni frá því hún lagði leiklistina á hilluna, og hætti svo við, árið 2010. Nú síðustu mánuði hefur hún þó verið töluvert til umfjöllunar vegna misjafnra uppátækja sinna. Síðastliðinn fimmtudag var hún handtekin og sökuð um vörslu á fíkniefnum og hefur síðan þá látið öllum illum látum á Twitter. Á milli þess sem hún reynir að sannfæra fylgjend- ur sína um að hún sé saklaus af öllum ásökunum, meðal annars þeim að hún eigi við geðræn vanda- mál eða fíkniefnavanda að stríða, ver hún tíma sínum í að rakka aðrar stjörnur niður. Bynes tapar glórunni á Twitter Leikkonan hefur farið hamförum að undanförnu og ráðist á hverja stjörnuna á fætur annarri. FERILL AMÖNDU BYNES Í TÍMARÖÐ Kalla þarf á slökkviliðið þegar Bynes neitar að koma út af klósetti í bakaríi. Opinberar þráhyggju sína fyrir Chris Brown með innleggi á Twitter. Kærir fjölskylduna sína fyrir að hafa stolið af sér peningum svo árum skiptir og fer af stað með hatursáróður gegn henni á Twitter. Gómuð við að reykja maríjúana á klósettinu í líkamsræktinni sinni. Hún neitar ásökununum. Britney-æði grípur Bynes og hún rakar á sér höfuðið. 1999 2001 2010 2012 september 2012 janúar 2013 mars 2013 apríl 2013 Fær sinn eigin sjónvarpsþátt, The Amanda Show, þá 13 ára. Vinnur Nickel- odeon-barna- verðlaunin. Gefur út yfirlýsingu þess efnis að hún sé hætt að leika. Yfirlýsingin er dregin til baka nokkrum mánuðum seinna. Átta sinnum stöðvuð vegna umferðarlagabrota á tímabilinu mars til september. Setur sjálfsmynd inn á Twitter þar sem hún er ber að ofan og heldur fyrir brjóst sín með annarri hendinni. Tilkynnir á Twitter að hún sé með átröskun og hótar að kæra alla þá sem halda því fram að hún eigi við geðræn vandamál að stríða. Segjum sögur á stærsta farsímaneti landsins Tímalaus klassík fer aldrei úr tísku Ég var að landa samningi við verslunareiganda, ótrúlegan spaða. Eftir fundinn gerði hann mér tilboð í gamla farsímahlunkinn minn sem var svo retró að menn höfðu ekki séð svoleiðis í langan tíma, enginn litaskjár, bara pláss fyrir tíu SMS og eini leikurinn var Snake. Kaupmannahöfn 2011, Steinunn Vala segir sögu af flottum síma Bynes hefur farið hamförum á Twitter allan mánuðinn. Hér eru nokkur dæmi um tíst sem hún hefur sent út á fræga einstaklinga, en það er engin glóra í sumum þeirra. Flestum tístunum hefur nú verið eytt út af síðu leikkonunnar. Fórnarlömb maímánaðar hafa fengið slæma útreið EITT- HVAÐ Í GANGI Hvort Amanda Bynes er að nota fíkniefni eða einfald- lega búin að missa vitið er ekki vitað, en það hlýtur að vera annað hvort. ■ Jenny McCarthy, 1. maí „Þarfnast ég hjálpar? Hvað ertu að tala um? Ert þú ekki 50 ára gömul? Ég er 27 ára og þú lítur út fyrir að vera áttræð í samanburði við mig. Af hverju ertu að tala um mig? Þú ert ljót! Lög- reglan var ekki heima hjá mér, gamla kona! Haltu kjafti!“ ■ Rihanna 26. maí „Ólíkt ljótu þér þá nota ég ekki eiturlyf! Þú þarft á íhlutun að halda sjálf, hundurinn þinn! Ég hef séð ljóta andlitið á þér í eigin persónu! Þú ert ekkert falleg, veistu það! Chris Brown barði þig af því að þú ert ekki nógu falleg. Enginn vill vera elsk- hugi þinn svo þú hringir í alla og mæður þeirra.“ ■ Courtney Love, 28. maí „Courtney Love er ljótasta kona sem ég hef séð. Að hún skuli yfir höfuð minn- ast á mig fær mig og alla vini mína til að springa úr hlátri!“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.