Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 62
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
Þegar netið kom fyrst til sögunnar voru margir íhaldssamir blaðamenn pirraðir
á því hversu mikil áhersla var lögð á nýj-
ustu fréttirnar hjá netmiðlunum. Nýjustu
fréttirnar eru ekki endilega merkilegastar,
en þær fengu mesta plássið. Í dag er þetta
að breytast en við erum sannarlega að fara
úr öskunni í eldinn. Í dag er það „mest
lesið dálkurinn“ sem allt snýst um.
„HEILBRIGÐARI kynfæri með meira
kynlífi“, „Loftsteinn á leiðinni“, „Á gólf-
inu var allt í viðbjóði“. Þetta voru mest
lesnu fréttirnar á stærstu netfrétta-
miðlum landsins síðasta þriðjudag.
Þetta eru allt ágætlega skrifaðir
textabútar en langt frá því að vera
merkilegar fréttir. Fyrsta fréttin
er útdráttur úr lengri grein sem
fjallar um hvernig kynlíf sé góð
grindarbotnsæfing. Önnur frétt-
in er um loftstein sem er ekki
á leið til jarðar heldur framhjá
jörðinni, nánar tiltekið 5,8 millj-
ón kílómetra framhjá, og þriðja
fréttin er um atvik á Akureyri þar
sem börn gengu inn í ólæst hús og
subbuðu þar út matvælum. Þetta
eru fréttirnar sem flestir lásu á þessum
miðlum. Þetta voru aðalfréttir dagsins.
Í ORÐI hljómar teorían vel. Frjálst val ætti
að vera grundvöllur fréttamats. Það sem
flestir hafa áhuga á hlýtur að vera merki-
legast. Ég er hálfpartinn sorgmæddur yfir
því hversu fjarri sanni það er. Þvert á móti
virðist frjálst val fremur versta mögulega
aðferðin til að ákvarða mikilvægi frétta.
Betra væri að láta apa með bundið fyrir
augun velja mikilvægustu fréttirnar. Ef
mest lesið dálkurinn hefði verið uppi fyrr á
öldum hefði fólk frekar lesið um „hest sem
prumpaði í Grosswald“ en mótmælaskjal
Marteins Lúther á kirkjuhurðinni í Witten-
berg, það hefði heldur lesið um „andaglas
sem fór úrskeiðis“ en rússnesku byltinguna,
og bakhár Danny DeVito heldur en fall
Berlínar múrsins.
HVER VEIT? Líklega er það nákvæm-
lega það sem fólk gerði og hefur alltaf
gert. Raunveruleikinn er þungur köggull
og ábyrgðin sem fylgir alvöru fréttum er
íþyngjandi. En við skulum hætta að halda
að mest lesið dálkurinn sé eitthvað annað
en froða.
Mest lesið dálkurinn
Fjölskylduhátíð og ball til styrktar
barnaheimilinu Ósi verða haldin í
Ósi og Þjóðleikhúskjallaranum á
laugardaginn.
Þar verður 40 ára afmæli þessa
einkarekna barnaheimilis fagnað
og fjármunum safnað til að tryggja
áframhaldandi rekstur þess.
„Það er okkur mjög mikilvægt
að ná inn meira fé. Það hefur verið
í gangi fjársöfnunarátak frá ára-
mótum og það hefur gengið mjög
vel að snúa erfiðri stöðu upp í
mögulega en engu að síður eigum
við svolítið í land. Þess vegna
erum við að standa fyrir þessari
glæsilegu hátíð,“ segir Eldar Ást-
þórsson, einn af skipuleggjendun-
um, sem á einnig barn á heimilinu.
Á fjölskylduhátíðinni verður
„lunch beat“-krakkadiskó í umsjón
Evu Einarsdóttur, markaður, upp-
boð, myndasýning, hoppukastali
og happdrætti aldarinnar. Meðal
þess sem verður boðið upp eru
tvær vínylplötur áritaðar af hljóm-
sveitinni Of Monsters and Men.
Á ballinu í Þjóðleikhúskjallar-
anum koma fram Prins Póló, Hug-
leikur Dagsson, Frímann Gunnars-
son, Bergur Ebbi, DJ Óli Palli og
fleiri. Aðgangseyrir er 1.500
krónur og verða miðar
seldir við innganginn. - fb
Hátíð til styrktar barnaheimili
Fjölskylduhátíð og ball verða á laugardaginn til styrktar barnaheimilinu Ós.
Ós er
staðsett við
Bergþórugötu
20 á móti
Austurbæjarskóla
og Vitabar.
KOMA FRAM Prins Póló,
Hugleikur Dagsson og Eva
Einarsdóttir taka þátt í
styrktarhátíðinni.
STYRKJA ÓS Tónleikar til
styrktar barnaheimilinu
Ósi verða haldin í húsinu
á laugardag. Fram koma
Prins Póló, Hugleikur
Dagsson, DJ Óli Palli,
Bergur Ebbi og fleiri.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fyrirsætan Gisele Bundchen kveðst vera á móti því
að tískuljósmyndum sé breytt í tölvuforritum á borð
við Photoshop. Bundchen sat fyrir á myndum fyrir
sænska fatahönnuðinn Johan Lindeberg og hrósaði
Svíanum fyrir viðmót hans gagnvart tölvuforritinu.
„Mér finnst að konur ættu að fá að vera hráar og
það gerist nánast aldrei í tískumyndatökum. Ófull-
komleiki okkar er það sem gerir okkur fallegar og
einstakar. Johan skilur það og hann reynir ekki að
breyta manni. Hann vill að maður sé maður sjálfur
og fái að tjá sig eins og maður vill fyrir framan
myndavélina,“ sagði fyrirsætan, sem mun birtast í
auglýsingum fyrir fatamerki Lindeberg, BLK DNM.
Gisele er á móti Photoshop
Fyrirsætan Gisele Bundchen vill helst vera náttúruleg á tískuljósmyndum.
VILL VERA
HRÁ Gisele
Bundchen
er á móti
tölvuforritinu
Photoshop.
NORDICPHOTOS/GETTY
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR
ALL ROADS LEAD TO THIS
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS!
5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
FAST & FURIOUS 6 KL. 5 - 8 - 10.45 12
FAST & FURIOUS 6 LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK 3D KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK KL. 8 12
THE CALL KL. 10.45 16
EVIL DEAD KL. 8 - 10.10 18
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
FAST & FURIOUS KL. 6 - 9 12
THE GREAT GATSBY 3D ÓTEXTAÐ KL. 9 12
THE GREAT GATSBY KL. 6 - 9 12
PLACE BEYOND THE PINES KL. 6 - 9 12
FALSKUR FUGL KL. 6 14
FAST & THE FURIOUS 6 KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
MAMA KL. 10.20 16 / OBLIVION KL. 8 16
NUMBERS STATION KL. 6 12
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
H.K. - MONITOR
T.V. - BÍÓVEFURINN
NEW YORK DAILY NEWS
ERNEST OG CELESTÍNA (4) 18:00
VINIRNIR (7) 18:00
BORÐA SOFA DEYJA (7) 20:00
VEGAS, ENSKUR TEXTI (7) 20:00
SIGHTSEERS (16) 18:00, 20:00, 22:10
JAGTEN (12) 22:10
ON THE ROAD (16) 22:00
ERNEST OG CELESTÍNAS I G H T S E E R S BORÐA SOFA DEYJA VEGAS
ÍSLENSK TALSETNING
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
HANGOVER lll 5.50, 8, 10.10
FAST & FURIOUS 4, 7, 8, 10
THE CROODS 3D 4
OBLIVION 5.30, 10.40
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINSVINSÆLASTI GRÍNÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA!
T.K. - Kvikmyndir.is
New York Daily News
H.V.A. - FBL
T.V. - BíóvefurinnH.K. - Monitor
5%