Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 64
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 52
Útilegumaðurinn - Þar sem grasið er grænna
Knaus, þýsk
gæðahjólhýsi
í 50 ár
Frí sólarsella fylgir öllum Knaus hjólhýsum til 1. júní
Nú er tíminn að festa sér nýtt
hjólhýsi fyrir sumarið. Sölumenn
okkar í samningsskapi.
Tökum notaða ferðavagna uppí nýja.
Tilboðsvagn:
Knaus Sport 450 UF
Verð aðeins kr. 3.295.000
FÓTBOLTI Bandaríska karlalands-
liðið í knattspyrnu mætir Belgum
í vináttulandsleik í Cleveland í
kvöld. Aron Jóhannsson er ekki í
hópi Bandaríkjanna.
Landsliðsþjálfarinn Jürgen
Klinsmann valdi fimm framherja
í hóp sinn á dögunum fyrir leik-
inn gegn Belgíu og gegn Þýska-
landi á sunnudag. Fram undan
eru leikir í undankeppni HM
2014. - ktd
Klinsmann
valdi ekki Aron
SÁ ÞÝSKI Jürgen Klinsmann ræður
ríkjum hjá bandaríska liðinu.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Fylkir, ÍA og ÍBV tryggðu sér
sæti í 16 liða úrslitum Borgunarbikars
karla í gærkvöldi. Varamaðurinn
Gunnar Már Guðmundsson fór fyrir
liði ÍBV gegn Þrótti en Viðar Örn
Kjartansson og Garðar Gunnlaugs-
son tryggðu Fylki og ÍA sæti í næstu
umferð.
Mesta dramatíkin var á Ísafirði og
í Vesturbæ Reykjavíkur. Vítaspyrnu-
keppni þurfti til að knýja fram sigur-
vegara á báðum stöðum. BÍ/Bolungar-
vík marði Reyni úr Sandgerði og
sömu sögu er að segja um Víking
gegn KV úr Vesturbæ Reykjavíkur.
Úrslitin
Þróttur - ÍBV 1-5
Fylkir - Völsungur 2-0
Sindri - Ýmir 4-0
Leiknir - Ármann 3-0
Magni - Þróttur Vogum 2-0
Hamar - Tindastóll 1-2
Grótta - Höttur 3-1
BÍ/Bolungarvík - Reynir S. 3-3
BÍ vann eftir vítasp.keppni
ÍA - Selfoss 2-1
KV - Víkingur 0-0
Víkingur vann eftir vítasp. keppni
32 liða úrslitunum lýkur í kvöld.
Víkingur slapp með skrekkinn gegn KV
MARKI FAGNAÐ Ragnar Leósson og
Gunnar Þorsteinsson fagna fyrsta marki
ÍBV í Laugardalnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPORT
MARKMENN
Gunnleifur Gunnleifs., Breiðablik 24 landsleikir
Hannes Þór Halldórsson, KR 11
Ögmundur Kristinsson, Fram Nýliði
VARNARMENN
Birkir Már Sævarsson, SK Brann 34/0 mörk
Ragnar Sigurðsson FCK 26/0
Kári Árnason, Rotherham United 24/2
Sölvi Geir Ottesen Jónsson, FCK 21/0
Hjálmar Jónsson, IFK Gautaborg 21/0
Ari Freyr Skúlason, Sundsvall 10/0
Hallgrímur Jónasson, SønderjyskE 6/3
MIÐJUMENN
Emil Hallfreðsson, Hellas Verona 36/1
Aron Einar Gunnarsson, Cardiff 34/0
Helgi Valur Daníelsson, AIK 26/0
Rúrik Gíslason, FCK 21/1
Birkir Bjarnason, Pescara Calcio 19/2
Ólafur Ingi Skúlason, Zulte Waregem 17/1
Þórarinn I. Valdimarsson, Sarpsborg 1/0
SÓKNARMENN
Eiður S. Guðjohnsen, Club Brugge 70/24
Gunnar H. Þorvaldsson, Norrköping 23/2
Arnór Smárason, Esbjerg fB 15/1
Kolbeinn Sigþórsson, Ajax 13/8
Alfreð Finnbogason, Heerenveen 13/3
Landsliðshópurinn
FÓTBOLTI Landsliðsþjálfarinn
Lars Lagerbäck kynnti í gær 22
manna landsliðshóp sinn fyrir
leikinn mikilvæga gegn Slóvenum
í undankeppni HM 2014. Ísland
vann fyrri leikinn ytra, 1-2, og er
í öðru sæti riðilsins. Það er því
pressa á liðinu fyrir leikinn að
standa sig vel.
Liðið verður án þeirra Gylfa
Þórs Sigurðssonar og Jóhanns
Bergs Guðmundssonar sem eru í
leikbanni og Grétar Rafn Steinsson
er meiddur. Aðalumræðuefnið á
blaðamannafundinum í gær var
Aron Jóhannsson, framherji AZ
Alkmaar.
Aron er fæddur í Banda-
ríkjunum og getur því bæði spilað
fyrir Ísland og Bandaríkin. Hann
hefur ekki enn spilað A-landsleik
og er því gjaldgengur í bæði lands-
lið.
Lagerbäck sagði á blaða-
mannafundinum í gær að hann
hefði rætt lengi við Aron, sem
hefði ekki gefið kost á sér í hóp-
inn. Leikmaðurinn hefur einfald-
lega ekki gert upp hug sinn um
hvort hann vilji spila fyrir Ísland
eða Bandaríkin, sem hafa sýnt
honum áhuga.
Svíinn segist ekki vera í neinni
fýlu út í Aron þó svo að hann hafi
ekki gefið kost á sér í liðið að þessu
sinni. Hann hefði þó líklega valið
Aron í hópinn ef hann hefði gefið
kost á sér.
„Ég mun halda áfram að hafa
samband við Aron. Síðast þegar ég
talaði við hann fyrir um tveimur
vikum vissi hann ekki að það væri
ekki hægt að prófa að spila með
öðru hvoru liðinu í æfingaleik. Ef
hann spilar fyrir annað hvort liðið
verður hann að gera það áfram,“
sagði Lagerbäck.
„Mitt mat er að það sé betra
fyrir að hann að spila fyrir
Ísland og ég mun koma þeirri
skoðun minni áfram á framfæri
við hann. Maður verður samt að
bera virðingu fyrir fólki og þeim
ákvörðunum sem það tekur. Ég fer
ekki í neina fýlu þó að hann ákveði
að spila fyrir Bandaríkin.“
Það eru tiltölulega kunnugleg
nöfn í hópnum en Þórarinn Ingi
Valdimarsson er reynsluminnsti
maðurinn í honum með aðeins
einn spilaðan landsleik. Enginn
útileikmaður í Pepsi-deildinni er
í hópnum og enginn úr deildinni
kom til greina að þessu sinni.
„Það er alltaf auðvelt að velja
svona 12-16 leikmenn í hópinn
en svo vandast valið með síðustu
mennina. Á maður að velja
leikmenn sem eru lítið að spila
en eru samt reyndir og sterkir
leikmenn? Það erfiðaði líka valið
að við erum án lykilmanns eins
og Gylfa. Ég þurfti því að hugsa
um hvernig væri best að velja í
hópinn þar sem hann er ekki með.
Það var því ýmislegt sem ég þurfti
að hugsa um,“ sagði Lars og bætti
við að það væri líka ákveðinn
hausverkur að velja varnarmenn
þar sem þar væru margir jafnir
leikmenn.
Lagerbäck hefur iðulega þurft
að gera breytingar á vörninni milli
leikja en er hann búinn að gera það
upp við sig hvaða fjórir leikmenn
muni standa vaktina í leiknum
gegn Slóvenum?
„Ég hef nokkuð góða hugmynd
um það. Auðvitað skiptir samt máli
hvernig menn munu standa sig á
æfingum.“
Gengi liðsins í undankeppninni
hefur verið gott og Lagerbäck fer
ekkert leynt með að hann stefnir
á að halda öðru sæti riðilsins og
komast þar með í umspil um laust
sæti á HM.
„Ég býst við því að fólk geri
væntingar til okkar í þessum leik.
Það er að mörgu leyti jákvætt að
fá slíka pressu og að fólki sé ekki
sama um liðið. Það þýðir að við
erum að gera eitthvað gott. Á sama
tíma þurfa leikmenn að gera sér
grein fyrir því að við erum ekki
orðnir neinir heimsmeistarar enn
þá. Við verðum að halda áfram að
leggja gríðarlega mikið á okkur.
Ég býst við erfiðum leik gegn
Slóvenum og ef við spilum ekki vel
þá töpum við.“
henry@frettabladid.is
Lars er ekkert fúll út í Aron
Aron Jóhannsson gaf ekki kost á sér í íslenska landsliðið sem mætir Slóveníu á Laugardalsvelli þann 7. júní
næstkomandi. Aron hefur ekki gert upp hug sinn um hvort hann vilji spila fyrir Ísland eða Bandaríkin.
SPOSKUR Það var létt yfir Lagerbäck landsliðsþjálfara á
fundinum í gær en hann er bjartsýnn á komandi verkefni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Það vakti athygli á blaða-
mannafundi KSÍ í gær að sænski
landsliðsþjálfarinn, Lars Lagerbäck,
var draghaltur.
„Ég fór í aðgerð á mjöðm þannig
að þú mátt ekki gera grín að
mér,“ sagði Svíinn léttur, en
hann fór í aðgerðina í desem-
ber. „Meinið er eitthvað að taka
sig upp aftur þannig að ég
mun haltra að hliðar-
línunni í landsleiknum.
Kannski getur Sveinbjörn
læknir líka gefið mér ein-
hverja sprautu. Við sjáum
hvað gerist.“
Heimir Hallgrímsson aðstoðar-
landsliðsþjálfari hefur alla tíð stutt
vel við bakið á Svíanum. Mun Lars
nýta sér það og láta Heimi styðja sig
að hliðarlínunni þegar hann þarf að
koma skilaboðum til strákanna inn
á vellinum?
„Það kemur ekki til greina. Ef
ég kemst ekki þá mun ég bara
rúlla mér að hliðarlínunni
á hjólastól,“ sagði Svíinn
og hló við en hann var í
góðu skapi á fundinum
í gær og reytti af sér
brandarana.
- hbg
Lagerbäck fór í aðgerð á mjöðm
MARK Á 47 MÍNÚTNA FRESTI Aron Jóhannsson nýtti mínútur
sínar vel með AZ Alkmaar og skoraði 3 mörk í 5 fyrstu leikjum
sínum með liðinu í hollensku deildinni. MYND/NORDICPHOTOS7GETTY