Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 66
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54
KÖRFUBOLTI „Við erum enn smærra
liðið í þessu einvígi. Real Madrid
er með hörkulið og möguleikar
okkar eru litlir. Við ætlum ofar öllu
að njóta þess að spila gegn þessu
góða liði og gera okkar besta,“
segir Jón Arnór Stefánsson, leik-
maður CAI Zaragoza. Þriðjudags-
kvöldið verður lengi í minnum
haft hjá Jóni Arnóri. Zaragoza
vann dramatískan úti sigur á liði
Valencia í þriðja leik liðanna í átta
liða úrslitum og tryggði sér óvænt
sæti í undanúrslitum.
„Mér líður eins og ég hafi verið
að vinna titil og tímabilið sé búið.
Við þurfum einhvern veginn að
koma okkur niður á jörðina fyrir
leikinn gegn Real Madrid,“ sagði
Jón Arnór í sigurvímu á þriðju-
dagskvöldið. Sigurinn var ekki síst
sætur þar sem Jón Arnór spilaði á
sínum tíma með liði Valencia.
„Þú getur rétt ímyndað þér. Það
eru margar súrar minningar frá
tímanum hjá Valencia en það er
alltaf gaman að koma hingað og
spila,“ segir Jón Arnór. Hann fer
ekkert í felur með það að tíminn
hjá Valencia hafi ekki verið sér-
staklega skemmtilegur.
Mikil keyrsla
Tímabilið hefur verið langt og
strangt hjá Jóni Arnóri. Hann var
við æfingar með íslenska lands-
liðinu síðastliðið sumar og fór í
kjölfarið á kostum í Evrópukeppni
landsliða.
„Þetta er búin að vera massa-
keyrsla. Ég fór beint úr lands-
liðsverkefninu hingað til Spánar,“
segir Jón Arnór. Álagið var mikið
og glímdi Jón Arnór við meiðsli frá
jólum og fram í febrúar. Síðan þá
hefur Zaragoza-liðinu gengið allt í
haginn og Jón farið á kostum.
„Ég hef verið að spila vel eins og
hinir,“ segir landsliðsmaðurinn, en
tímabilið er sögulegt hjá félaginu.
Liðið komst í fyrsta skipti í úrslita-
keppni átta bestu liðanna. Um leið
varð liðið það fyrsta sem komst
í undanúrslit í fyrstu atrennu í
úrslitakeppni í 28 ár. Gleðin er
því eðlilega mikil í borginni, sem
átti síðast lið í undanúrslitum árið
1989. Það félag er ekki starfrækt
í dag.
Frábær andi í liðinu
Óalgengt er að atvinnumenn í fót-
bolta sem körfubolta bindist vina-
böndum hjá liðum sínum. Sam-
keppnin er mikil um stöður og ekki
eiga allir skap saman. Jón Arnór
ber félögum sínum í liðinu afar vel
söguna.
„Þú ert með leikmenn í hveri
stöðu sem skila sínu í sókn sem
vörn. Jafnvægið er til staðar og
menn vega hver annan upp,“ segir
Jón Arnór. Hann segir andann í
liðinu jákvæðan og að menn trúi á
verkefnin sem fyrir hendi eru.
„Ég er mjög heppinn að vera
í kringum þessa stráka og fá að
spila með þeim.“ Jóni Arnóri líður
greinilega vel í Zaragoza, en hann
á eitt ár eftir af samningi sínum
við félagið.
„Við erum allir mjög góðir vinir.
Ég er að segja þér algjörlega satt
og þetta er engin klisja,“ segir Jón
Arnór og segir það mjög sjaldgæft
í bransanum.
„Ég verð örugglega í sambandi
við 75 prósent þeirra í framtíðinni.
Það er frábær andi í klefanum sem
skilar sér út á völlinn. Það sjá allir.
Þetta hefur verið einstakt ár.“
kolbeinntumi@365.is
Við erum allir
mjög góðir vinir. Ég er að
segja þér algjörlega satt
og þetta er engin klisja.
Jón Arnór Stefánsson
Vinir fyrir lífstíð í Zaragoza
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza mæta stórliði Real Madrid í fyrsta leik liðanna í undan-
úrslitum efstu deildar spænska körfuboltans í kvöld. Jón Arnór og félagar ætla að njóta augnabliksins.
FLOTTUR Á VELLI Landsliðsmaðurinn 31 árs er í lykilhlutverki hjá CAI Zaragoza. MYND/RAMÓN CORTÉS WWW.CAISTAS.NET
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson hefur fjór-
um sinnum áður komist í undanúrslit í úrslita-
keppni á atvinnumannaferlinum en þetta er
í fyrsta sinn sem hann kemst svona langt í
spænsku ACB-deildinni.
Jón Arnór komst fjórum sinnum í undan-
úrslit í ítölsku deildinni og það með þremur
liðum; Carpisa Napoli (2005-06), Lottomatica
Roma (2006-07, 2007-08) og Benetton Treviso
(2008-09).
Jón Arnór fór alla leið í lokaúrslitin með
Lotto matica Roma vorið 2008 en liðið tapaði
þá fyrir Montepaschi Siena. Jón Arnór varð
reyndar þrisvar sinnum í röð að sætta sig við
að detta út fyrir Montepaschi-liðinu, sem varð
ítalskur meistari í öll skiptin.
Það munaði líka litlu að Jón Arnór færi í
lokaúrslitin á Ítalíu árið 2006 með nýkrýndum
bikar meisturum Carpisa Napoli en liðið tap-
aði þá í oddaleik í undanúrslitum.
Jón Arnór tók líka þátt í úrslitakeppni með
Dynamo St. Petersburg veturinn sem liðið
vann FIBA Europe League. Liðið tapaði þá í
oddaleik í átta liða úrslitum og komst því ekki
í undanúrslitin.
Jón Arnór hefur auk þessa spilað fjórum
sinnum í undanúrslitum á Íslandi með liði KR
eða vorin 2000, 2001, 2002 og 2009.
Jón Arnór er að spila fjórða tímabilið í röð
á Spáni en þetta er í fyrsta sinn sem hann
kemst í úrslitakeppnina. CB Granada varð
í 10. (2009-10) og 17. sæti (2010-11) og CAI
Zaragoza endaði í 10. sæti á síðasta tímabili.
-óój
Jón Arnór í undanúrslitum í fi mmta skipti
Íslenski landsliðsmaðurinn hefur spilað marga stóra leiki á ferlinum og þekkir vel að spila í undanúrslitum.
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leik-
maður Norrköping, hefur heldur
betur náð sér á strik á tímabilinu,
en hann hefur skorað sex mörk
í síðustu níu umferðum sænsku
úrvalsdeildarinnar.
„Þetta er það sem maður vill
upplifa sem knattspyrnumaður,
að spila fyrir landsliðið,“ sagði
Gunnar Heiðar í samtali við
Frétta blaðið í gær.
„Ég er löngu kominn í gang og
hef verið að bíða eftir kallinu.
Síðasta tímabil var frábært fyrir
mig persónulega og skoraði ég 17
mörk. Þetta tímabil byrjar enn
betur og því kom það mér ekkert
sérstaklega á óvart að vera valinn.
Ég er búinn að æfa eins og skepna
í allan vetur og það er greinilega
að borga sig.“
Gunnar Heiðar lék síðast fyrir
landsliðið í febrúar 2012 þegar liðið
tapaði illa fyrir Japan í vináttuleik.
„Það að vera ekki valinn hefur
ekki farið neitt sérstaklega í
taugarnar á mér, það eru aðrir
menn sem ráða hverjir eru í lands-
liðshópnum, en ég tel mig fyllilega
eiga heima þar. Það er kominn tími
á endurkomu frá mér og vonandi
fæ ég einhverjar mínútur til að
sanna mig.“
Gunnar Heiðar hefur leikið 23
landsleiki fyrir Íslands hönd og
skorað í þeim fimm mörk. Fyrsti
leikurinn var gegn Ítalíu í mars
2005 en síðasta markið skoraði
hann í sigri á Slóvakíu í mars 2008.
- sáp
Ég hef beðið eft ir kallinu
Gunnar Heiðar Þorvaldsson er mættur aft ur í landsliðið fyrir Slóveníuleikinn.
HEITUR Gunnar Heiðar hefur einnig
lagt upp fjögur mörk í fyrstu níu
leikjum tímabilsins.
MYND/BRITA NORDHOLM
KLÁR Í SLAGINN Jón Arnór og félagar mæta Real
Madrid í fyrstu tveimur leikjunum í höfuðborginni.
Þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrslitum.
MYND/RAMÓN CORTÉS WWW.CAISTAS.NET
KÖRFUBOLTI Benedikt Guðmunds-
son, þjálfari Þórs í Þorlákshöfn,
þjálfaði Jón Arnór Stefánsson í
yngri flokkum KR. Hann segir
um sögulegan viðburð að ræða
þegar Jón Arnór og félagar í CAI
Zaragoza mæta Real Madrid.
„Spænska deildin er næst-
sterkasta deildin í heiminum, á
eftir NBA,“ segir Benedikt. Þótt
spænsk lið verði ekki Evrópu-
meistarar á hverju ári séu liðin
afar jöfn að styrkleika. „Það eru
bara góð lið í spænska körfu-
boltanum,“ segir Benendikt, en
þekktust þeirra eru Barcelona
og Real Madrid sem Jón Arnór
mætir í kvöld.
Benedikt segir Jón Arnór klár-
lega einn af leiðtogum liðsins.
„Þó að hann sé ekki gamall er
hann kominn á fertugsaldurinn,“
segir Benedikt um körfubolta-
manninn, sem er 31 árs. Jón var
þriðji stigahæsti leikmaður CAI
Zaragoza í oddaleiknum gegn
Valencia. Benedikt minnir þó á
að tölfræðin segi aðeins hálfa
söguna.
„Það er ekki alltaf að marka
hvað hann skorar því hann er
liðsspilari fram í fingurgóma.
Hann er ekkert að eltast við ein-
hver skot eða stig,“ segir Bene-
dikt. Þá vilji einnig oft gleymast
að helminginn af leiktímanum
spili lið í vörn.
„Jón er alltaf í lykilhlutverki
varnarmegin og hann er mögu-
lega sterkasti varnarmaður liðs-
ins.“
Varðandi möguleika Jóns Arn-
órs og félaga segir Benedikt að
Valencia sé einnig hörkusterkt
lið. Real Madrid sé þó klárlega
erfiðari andstæðingur. Hann
ætlar að spara yfirlýsingarnar
um möguleika Zaragoza-liðsins
og njóta þess að fylgjast með. - ktd
Besti varnar-
maður liðsins
TVEIR GÓÐIR Jón Arnór og Benedikt á
góðri stundu á æfingu hjá KR.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEITUR Jón Arnór skoraði tæp sjö stig
að meðaltali í leik í deildarkeppninni.
Hann skoraði hins vegar tæp ellefu stig
að meðaltali í leikjunum þremur gegn
Valencia. MYND/RAMÓN CORTÉS WWW.CAISTAS.NET
FÓTBOLTI Til stendur að vera með
fjölskylduskemmtun á Laugar-
dalsvelli fyrir landsleik Íslands
og Slóveníu. Stefnt er á að selja
bjór í sérstöku tjaldi á svæði
Þróttara við Valbjarnarvöll sem
liggur að Laugardalsvelli.
Enn á eftir að fá tilskilin leyfi
til bjórsölunnar og yrði það
aðeins opið frá klukkan 16 til 18.
„Við trúum því að það sé hægt
að gera þetta á jákvæðan hátt,“
segir Jón Kaldal, formaður Þrótt-
ar. Auk bjórtjaldsins á að bjóða
upp á hoppukastala fyrir börnin
og svo munu sérfræðingar spá í
spilin fyrir leik. - ktd
Verður bjór-
sala í Dalnum?