Fréttablaðið - 30.05.2013, Síða 70
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 58
„Það er hiklaust íslenska vatnið.
Það eina sem ég drekk fyrir utan
kaffibollann á morgnana.“
Védís Hervör Árnadóttir söngkona
DRYKKURINN
Hátíðin Icelandic Tattoo Convention verður haldin í
áttunda sinn 6. til 8. júní.
„Hátíðin er búin að skapa sér góðan sess. Mikið af
Íslendingum hefur komið og svo erum við alltaf að
sjá fleiri og fleiri erlenda ferðamenn sem koma sér-
staklega á hátíðina. Þetta verður góður menningarvið-
burður,“ segir Össur Hafþórsson, annar af eigendum
Reykjavík Inc. sem skipuleggur hátíðina. Aðspurður
telur hann að um tvö þúsund manns hafi sótt hátíðina
í fyrra en í ár verður hún haldin í portinu hjá Bar 11,
Hverfisgötu 18.
Sem fyrr er um alþjóðlega hátíð að ræða og koma
húðflúrarar víðs vegar að úr heiminum og skapast
því gott tækifæri fyrir húðflúrsunnendur til að kynna
sér ýmsar stefnur og strauma í húðflúrsmenningunni
í dag. „Það er 21 erlendur listamaður að koma. Þetta
eru öll stóru nöfnin úr bransanum og einhverjir nýir
líka,“ segir Össur.
Fulltrúar frá hinu virta tímariti Tattoo Artist mæta
einnig á svæðið. - fb
Öll stóru nöfnin úr bransanum
Hátíðin Icelandic Tattoo Convention verður haldin í áttunda sinn í byrjun júní.
HALDA
TATTÚHÁTÍÐ
Össur Hafþórs-
son og Linda
Mjöll Þorsteins-
dóttir, eigendur
Reykjavík Ink
sem skipuleggur
hátíðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
➜ Hljómsveitirnar Dimma, Sykur og Noise
spila á hátíðinni. Dagpassi kostar 700 krónur og
helgarpassi 1.500 krónur.
„Þetta var bara alveg hræði-
lega erfitt val,“ segir leikstjórinn
Gunnar Helgason, sem stýrir upp-
færslu Þjóðleikhússins á leikritinu
Óvitunum sem verður frumsýnt í
haust.
Verkið er byggt á skáldsögu
Guðrúnar Helgadóttur, þar sem
börn leika fullorðna og öfugt.
Tæplega 1.300 krakkar sóttust
eftir því að komast á svið og í vik-
unni var gengið frá ráðningu 30
krakka sem skipta 15 hlutverkum
á milli sín.
„Þetta var gríðarlega erfiður
prósess sem stóð yfir í mánuð.
Við enduðum með því að bæta við
tveimur hlutverkum til að koma
fleirum að en upphaflega voru
hlutverkin 28,“ segir Gunnar og
bætir við að hann hafi misst svefn
yfir leikaravalinu.
„Það var mjög leiðinlegt að
þurfa að vísa hæfileikaríkum
krökkum frá og maður var enda-
laust að velta fyrir sér hvort
maður hefði valið rétt.“
Hópurinn hittist í fyrsta sinn
á mánudaginn þar sem þau lásu
saman leikritið. „Þá sáum við að
við höfðum valið rétt, allir smell-
pössuðu í sín hlutverk.“ Með önnur
hlutverk í verkinu fara meðal ann-
arra Jóhannes Haukur Jóhannes-
son, Ágústa Eva Erlendsdóttir og
Örn Árnason. - áp
30 krakkar ráðnir í Óvitana
Gunnar Helgason missti svefn er hann þurft i að fækka 1.300 umsækjendum niður í 30.
BÚIÐ AÐ RÁÐA Gunnar Helgason leik-
stjóri hefur valið 30 börn sem fara með
hlutverk á Óvitunum í Þjóðleikhúsinu.
6 ár eru síðan
Óvitarnir voru síðast settir
upp af Leikfélagi Akureyrar.
„Þetta er auðvitað mjög ánægjulegt fyrir okkur sem að hátíðinni stönd-
um, sérstaklega þar sem þessir aðilar höfðu samband við okkur að fyrra
bragði. Þetta lýsir mjög þeim áhuga sem er fyrir hátíðinni, en þessir
miðlar og fleiri hafa skrifað um hátíðina undanfarnar vikur. Tímaritið
Pitchfork hefur til dæmis fjallað mikið um hátíðina og taldi hana með á
lista sínum yfir áhugaverðar tónlistarhátíðir í sumar,“
segir Tómas Young, skipuleggjandi tónlistarhátíðar-
innar All Tomorrow‘s Parties sem fram fer á Ásbrú
dagana 28. og 29. júní.
Mikill fjöldi erlendra blaðamanna hefur staðfest
komu sína á hátíðina, þar á meðal fjölmiðlafólk frá
MTV í Bretlandi, NME, vefsíðunni Drowned in Sound
og Spin. Þá hafa nokkrar kvikmyndastjörnur haft sam-
band við Tómas og lýst yfir áhuga á að sækja hátíð-
ina.
Tómas viðurkennir að umfjöllun sem
þessi geti skipt sköpum fyrir hátíðina. „Öll
umfjöllun er auðvitað mjög mikilvæg svo
að hróður hátíðarinnar berist sem víð-
ast því áætlað er að halda hana aftur á
næsta ári,“ segir Tómas að lokum. - sm
Erlent fj ölmiðlafólk
sýnir ATP áhuga
Fjöldi erlendra blaðamanna mun sækja ATP í júní.
MIKILL ÁHUGI Tómas Young
segir erlent fjölmiðlafólk
áhugasamt um að sækja All
Tomorrow‘s Parties.
„Ég hræddari við samanburðinn þegar
ég var yngri og hugsaði mikið út í það
hvort ég gæti orðið jafn góður söngv-
ari og Eyþór. Ég lít mikið upp til hans
og hef alltaf gert en nú er ég komin
yfir það að bera mig saman við hann.
Ég sé hann frekar sem minn læriföður
og er gríðarlega stolt af því, enda ekki
annað hægt,“ segir Ellen Ýr Gunn-
laugsdóttir.
Ellen Ýr er yngri systir Eurovision-
farans Eyþórs Inga og upprennandi
söngkona. Hún hefur verið að færa sig
hægt og rólega upp á skaftið í tónlist-
inni frá því að hún lenti í þriðja sæti
í söngkeppni Verkmenntaskólans á
Akureyri í fyrra.
Rétt eins og bróðir hennar hefur
hún aldrei lært söng en æfði á þver-
flautu í nokkur ár og er nú byrjuð að
taka upp gítarinn í rólegheitum. „Það
hefur alltaf verið mikil tónlist á heim-
ilinu okkar. Pabbi er algjör rokkari
en mamma meira í Elvis Presley og
honum líkum. Það er mikil tónlist í
þeim en afi okkar í móðurætt er rosa-
legur músíkant. Svo var reyndar afi í
föðurættina líka mikill söngmaður,“
segir Ellen Ýr en Eyþór Ingi hefur ein-
mitt líka sagst hafa tónlistargenin frá
öfum sínum. Yngri systir þeirra, Elísa
Rún, er líka efnileg söngkona þó Ellen
segi hana feimna við að koma fram.
Eyþór Ingi hefur oft verið nefndur
besti söngvari þjóðarinnar og segir
Ellen gott að hafa hann á kantinum.
„Við erum rosalega náin og getum
alltaf talað saman um hvað sem er.
Hann er eiginlega eins og besta vin-
kona mín,“ segir hún og hlær. „Við
erum samt líka mjög gagnrýnin hvort
á annað sem ég met mikið. Þegar
ég prufa eitthvað nýtt í söngnum
þá nýti ég mér það til dæmis óspart
að senda það á hann og hann sendir
mér svo ábendingar til baka,“ bætir
hún við. Ellen útskrifaðist sem stúd-
ent og sjúkraliði á dögunum og fékk
ýmsar tónlistagræjur í útskriftagjöf
svo hún hefur varla hætt að syngja
síðan. Hún stefnir suður til Reykja-
víkur í haust þar sem hún ætlar í
nám í Snyrtiskólanum. „Það er auð-
vitað draumurinn að fá tækifæri til
að syngja meira og aldrei að vita hvað
framtíðin ber í skauti sér,“ segir hún.
tinnaros@frettabladid.is
Eyþór Ingi leiðbeinir
litlu systur í söngnum
Ellen Ýr fær stuðning frá stóra bróður sem er eins og hennar besta vinkona.
Ellen Ýr og restin af fjölskyldunni
hennar fóru með Eyþóri Inga til
Svíþjóðar til að styðja við bakið á
honum í Eurovision. Ellen segist
ekki hafa verið mikill aðdáandi
keppninnar fyrir, þótt hún hafi
horft á keppnina frá því hún
man eftir sér. „Þetta var alveg
ólýsanlegt. Mér datt ekki í hug
að það væri svona mikill glamúr
í kringum þetta og að þetta væri
svona mikil hátíð,“ segir hún og
viðurkennir að hún sé nú smituð
af Eurovision-bakteríunni þótt
hún stefni ekkert sérstaklega að
því að feta í fótspor stóra bróðurs
og syngja á Eurovision-sviðinu, í
það minnsta ekki enn þá.
Stefnir ekki á Eurovision-sviðið
NÁIN SYSTKINI Ellen Ýr og Eyþór Ingi eru náin systkini og hún leitar óspart eftir
aðstoð og stuðningi hjá honum, bæði í tónlistinni og öðru.
MYND/GUNNLAUGUR ANTONSSON
HÚN ER HORFIN EFTIR GILLIAN FLYNN
ÞÝÐANDI: BJARNI JÓNSSON
D
YN
A
M
O
R
E
YK
JA
VÍ
K
1. SÆTI
ÁFRAM Á
TOPPNUM!
Mest selda bókin í öllum flokkum
í verslunum Eymundsson
vikuna 15.05.13 - 21.05.13 og
22.05.13 - 28.05.13
„Frumlegur ogflottur krimmi“ ALÞ, MORGUNBLAÐIÐ
„Þetta er fantaflottur
krimmi, tónninn háðskur
og snarpur, plottið þétt
og frumlegt.“
ALÞ, MORGUNBLAÐIÐ
„Sagan hreinlegahrífur lesandannmeð sér, þetta erhrein og klár fíkn.“WASHINGTON POST
ER ÞAÐ EKKI ALLTAF EIGINMAÐURINN?