Fréttablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 72
6. júní 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 60
HANDBOLTI „Hér í dag voru bara
bestu vinir Einars Jónssonar,
þjálfara Fram, að dæma. Dómar-
arnir og Einar eru bestu vinir og
sjást ótt og títt saman.“
Þetta sagði Aðalsteinn Eyjólfs-
son eftir mikinn hitaleik Stjörn-
unnar og Fram í N1-deild kvenna
þann 6. desember árið 2007. Aðal-
steinn var dæmdur í þriggja mán-
aða bann fyrir ummælin, sem voru
sögð vega að æru dómaranna og
þóttu saka HSÍ og dómaranefnd
sambandsins um spillingu. Slíkt
bann átti sér engin fordæmi og
annað sambærilegt hefur ekki
sést síðan.
„Ég var kominn með nóg heima
á Íslandi. Ég fékk þetta bann
og ætlaði að hætta,“ sagði Aðal-
steinn við Fréttablaðið í gær
en hann hætti hjá Stjörnunni í
lok þessa tímabils, eftir að hafa
komið til baka í febrúar og stýrt
liðinu til sigurs á Íslandsmótinu.
Hann hætti svo hjá Stjörnunni og
hálfu ári síðar var hann fluttur til
Þýskalands.
Frá því að þessi ummæli voru
látin falla eru liðin fimm og hálft
ár. Í haust mun Aðalsteinn stýra
karlaliði í bestu handknattleiks-
deild heims eftir að hafa verið í
aðalhlutverki hjá ótrúlegum upp-
gangi Eisenach – verkefni sem
hann hefur nú leitt í þrjú ár.
Sendi ferilskrána út
Eftir að Aðalsteinn hætti hjá
Stjörnunni tók hann við Fylki.
Ætlun in var að byggja upp hand-
boltaveldi í Árbænum en allar
áætlanir fóru í vaskinn þegar
íslenska fjármálakerfið hrundi
um haustið.
„Ég var líka með fyrirtæki sem
ég var að byggja upp. Reksturinn
gekk út á erlendan gjaldeyri og var
því sjálfhætt eftir hrunið,“ rifjar
Aðalsteinn upp.
„Eftir að Geir Haarde bað
guð um að blessa íslensku þjóð-
ina ákvað ég að koma mér út. Ég
sendi ferilskrána á 6-7 umboðs-
menn í Evrópu og stuttu síðar var
ég kominn með svar frá dönskum
umboðsmanni að lið í neðri deild-
um Þýskalands, karla- og kvenna-
lið, vantaði þjálfara og höfðu
áhuga. Eitt þeirra var Kassell. Ég
flaug út og skrifaði undir sam-
dægurs. 1. nóvember 2008 flutti
ég svo út,“ segir Aðalsteinn.
Enn settu fjármálin svip sinn
á störf Alfreðs. Kassel var í eigu
þýsks auðmanns sem lofaði gulli
og grænum skógum.
„Það gekk mjög vel hjá Kassel.
Félagið var í þriðju deild en hafði
metnað til að ná langt. Ég vildi sjá
hvort ég gæti byrjað á núlli í nýju
landi og látið að mér kveða. En svo
fór Kassel á hausinn. Það var orðið
hálfkjánalegt að hver fjármála-
krísan á eftir annarri elti mig,“
segir hann í léttum tón.
Fékk að byggja góðan grunn
Aðalsteinn verður 36 ára síðar
í mánuðinum en hann byrjaði
að þjálfa samhliða leikmanna-
ferlinum fyrir tveimur áratug-
um. Skórnir fóru á hilluna vegna
meiðsla þegar hann var 21 árs
en Aðalsteinn gerðist þjálfari
í meistaraflokki fyrir þrettán
árum. Hann naut mikillar vel-
gengni í kvennaboltanum og vann
titla með bæði ÍBV og Stjörnunni.
Hann þjálfaði einnig TuS Weibern
í úrvalsdeild kvenna í Þýskalandi
veturinn 2004-5.
En Kassel var hans fyrsta karla-
lið. Góður árangur hans þar kom
nafni hans í umræðuna þegar B-
deildarlið Eisenach vantaði þjálf-
ara vorið 2010.
„Ég var heppinn að komast
þar að. Félagið var í erfið leikum
á þessum tíma og hafði verið í
fallbaráttu tvö ár í röð. Það var
einnig í vandræðum með að fá
áframhaldandi keppnisleyfi.
Stjórnendur félagsins vildu byggja
upp til lengri tíma og ég fékk því
tíma og svigrúm til að byggja upp
góðan grunn,“ segir Aðalsteinn, en
fyrsta markmiðið var að tryggja
Eisenach sæti í sameinaðri B-
deild sem var áður skipt í norður-
og suðurriðil.
„Það hafðist á lokasprettinum
og var gríðarlega mikilvægt. Eftir
það var markmiðið að bæta okkur
hægt og rólega – um tvö sæti á ári.
Við enduðum í sjöunda sæti í fyrra
og tókum því enn stærra stökk í ár
en áætlað var. Það var ekki í plön-
unum að fara upp fyrr en á næsta
ári,“ segir Aðalsteinn, sem hefur
haldið sama átta manna kjarna
í leikmanna hópnum öll árin sín
þrjú.
„Ég hef skipt út tveimur leik-
mönnum á hverju ári og reynt
þannig að styrkja hópinn jafnt og
þétt. Fyrir þetta tímabil fengum
við Hannes Jón Jónsson og dansk-
an leikmann sem styrktu liðið
gríðarlega mikið.“
Þéttur hópur í Eisenach
Lífið hefur þó ekki verið dans á
rósum í Eisenach. „Það hefur verið
mótvindur,“ segir Aðalsteinn. „Ég
hef þurft að reka leikmenn og jafn-
vel stjórnarmenn líka. En það er
ákveðinn kjarni í félaginu, leik-
menn og forráðamenn, sem hefur
staðið þétt að baki þessu verkefni.
Ég hef fengið tíma og svigrúm til
að taka þær ákvarðanir sem þurfti
til að halda í ákveðna hugmynda-
fræði sem við lögðum upp með.“
Árangurinn talar sínu máli.
Eisenach spilar í efstu deild á
næsta tímabili og er það afrek,
ekki síst vegna þess að það var
gert með sama kjarna leikmanna
og var í fallbaráttu fyrir örfáum
árum síðan. Fjárráðin voru þar að
auki takmörkuð.
„Þetta tímabilið vorum við með
175 milljónir króna fyrir rekst-
urinn. Átta lið eru með stærri
„budget“ en við í þessari deild og
þau stærstu með um 400 milljón-
ir,“ segir Aðalsteinn en það stend-
ur ekki til að auka fjárhaginn stór-
kostlega fyrir næsta tímabil.
„Það verða að hámarki 240
milljónir. En lið hafa áður sýnt
að það er hægt að fara upp í efstu
deild með takmörkuð fjárráð en
með góðan kjarna leikmanna
sem hafa spilað lengi saman,“
segir Aðalsteinn, sem hefur þegar
gengið frá því að fá þrjá nýja leik-
menn til félagsins í sumar.
„Við vitum að við erum að fara
í harða baráttu um að halda sæti
okkar. Við eigum eftir að fá á
kjaftinn í þessari deild. Við þurf-
um að læra hratt en við erum
engu að síður kokhraustir og
ætlum í baráttuna með kassann
úti. Ætlunin er að koma fram af
stolti fyrir okkar bæjarfélag og
vinna heiðarlega að okkar mark-
miðum. Það er það eina sem við
getum gert.“
eirikur@frettabladid.is
Ég ætlaði að hætta í þjálfun
Aðalsteinn Eyjólfsson er kominn með lið sitt í bestu deild í heimi eft ir að hafa tekið við því í neðri hluta
suðurriðils þýsku B-deildarinnar fyrir þremur árum. Hann er enn með sama kjarna leikmanna og þá.
Á UPPLEIÐ Aðalsteinn Eyjólfsson fer með lið sitt, Eisenach, í bestu handboltadeild í heimi á næstu leiktíð. Þar mætir hann
mörgum af bestu liðum heims. MYND/THSV EISENACH
Ótrúlegir mánuðir hjá Hannesi Jóni
SIGURVEGARI Aðalsteinn fagnar með Stjörnustúlkum eftir að Íslandsmeistara-
titillinn var í höfn vorið 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Hannesar Jóns Jónssonar hjá þýska liðinu
Eisenach, sem vann sér á dögunum sæti í efstu deild. Hannes Jón var kjör-
inn besti leikmaður deildarinnar, þrátt fyrir að hafa misst af stórum hluta
tímabilsins vegna veikinda.
Hannes greindist með krabbamein í október en var
engu að síður byrjaður að spila á ný í janúar. Aðal-
steinn segir það hafa verið ótrúlegt að fylgjast með
honum í baráttunni við veikindin.
„Það var gríðarlega erfitt fyrir mig sem þjálfara að
fylgjast með Hannesi ganga í gegnum allt þetta.
En það fyllti mann eldmóði að sjá hann taka á
sínum veikindum af krafti og æðruleysi. Hann
var fyrirmynd annarra leikmanna og þetta þjapp-
aði hópnum verulega saman.“
Aðalsteinn segir að Hannes Jón hafi svo
verið gríðarlega mikilvægur inni á vellinum.
„Hann tók stórar ákvarðanir á ögurstundu
í leikjum sem við unnum með litlum mun.
Spilamennska hans var frábær og það toppar
svo allt þegar hann var valinn bestur. Það finnst
manni með ólíkindum þegar maður hugsar til þess að
hann lá á sjúkrastofu fyrir sjö mánuðum og fékk þessar
fréttir. Þetta hefur verið mikill rússíbani.“
Eftir að Geir Haarde
bað guð um að blessa
íslensku þjóðina ákvað
ég að koma mér út.
FÓTBOLTI Markmaðurinn Maarten
Stekelenburg gekk í gær í raðir
enska knattspyrnuliðsins Fulham
frá Roma á Ítalíu. Leikmaðurinn
var næstum farinn til félagsins
í janúar síðastliðnum en skiptin
gengu ekki í gegn. Stekelenburg
skrifaði undir fjögurra ára samn-
ing við Fulham en hann hóf feril
sinn hjá hollenska félaginu Ajax,
þar sem hann lék undir stjórn
Martin Jol sem er knattspyrnu-
stjóri Fulham í dag. Hollenska
goðsögnin Edwin van der Sar
var í mörg ár á milli stanganna
hjá Fulham og því hefð fyrir
hollenskum markvörðum hjá
félaginu. - sáp
Stekelenburg
til Fulham
HOLLENDINGURINN Stekelenburg
fetar í fótspor landa síns Edwin van der
Sar. NORDICPHOTOSGETTY
Brasilíski miðjumaðurinn Fern-
andinho fór í gær til Manches-
ter í læknisskoðun og mun skrifa
undir samning við Manchester
City á næstu dögum. Kaupverðið
mun vera um 34 milljónir punda.
Þessi 28 ára leikmaður hefur
lengi viljað yfirgefa Shaktar og
fara til stærra félags í Evrópu og
nú virðist vera komið að því. „Ég
ætla að gera mitt allra besta til að
komast í landsliðið fyrir heims-
meistaramótið í Brasilíu á næsta
ári,“ sagði Fernandinho. „Það
gefur mér mun meiri von þegar
ég veit að ég er að fara að spila
fyrir eitt besta lið í heiminum í
einni sterkustu deild í Evrópu.“
- sáp
Fernandinho á
leiðinni til City
Javier Hernandez hefur ekki í
hyggju að leita annað í sumar
og ætlar sér að berjast fyrir
sæti sínu í liðinu hjá Manchester
United.
Þetta sagði umboðsmaður hans
í samtali við enska fjölmiðla.
Hernandez fékk minna að spila
í vetur eftir að Robin van Persie
kom til félagsins en afrekaði
engu að síður að skora tíu mörk í
22 deildarleikjum.
„Hann er mjög ánægður hjá
Manchester United. Javier hefur
verið þar í þrjú ár og unnið deild-
ina tvívegis. Það eru ekki margir
sem geta stært sig af því,“ sagði
umboðsmaðurinn.
Að auki eru framherjarnir
Wayne Rooney og Danny Welbeck
á mála hjá United en enn er óvíst
hvort David Moyes muni kaupa
sóknarmann til félagsins í sumar.
- esa
Chicharito
verður áfram
HERNANDEZ Sá markheppni frá
Mexíkó hefur reynst United vel.
NORDICPHOTOS/GETTY