Fréttablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
30
HÖNNUÐUR TJÁIR SIGFyrsta viðtalið við John Galliano eftir að honum var sagt upp með skömm hjá Dior birtist nýlega í Vanity Fair. Þar lýsir hann eiturlyfjafíkn sinni og eftirsjá.
vel fylltur í B,C skálum á kr. 5.800,- buxur í stíl á kr. 1.995,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Laugardaga frá kl. 10-14
NÝR SUMARLITUR !
www.tk.is
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
6. júní 2013
131. tölublað 13. árgangur
Áfangasigur Assads
Stjórnarherinn í Sýrlandi náði undir
sig mikilvægri borg í fyrrinótt þegar
Quasair féll í hendur hans eftir
þriggja vikna umsátur. 8
Vildu veiða fyrstir Stjórn Veiði-
félags Norðurár íhugaði að kaupa
opnunarhollið af Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur svo að stjórn þess gæti
opnað Norðurá þrátt fyrir vanskil við
landeigendur. 2
Unglingaball tekjuleið Forvarnar-
hópur segir „flöskuböll“ með 16
ára aldurstakmarki í reiðhöllinni
Faxaborg í Borgarnesi ávísun á
unglingadrykkju. 4
Verðið skiptir ekki öllu Ódýr
sólgleraugu vernda augun jafn vel
fyrir útfjólubláum geislum og dýr
sólgleraugu. 22
SPORT Fyrsti lax sumarsins veiddist
í Norðurá í þriðja kasti eldsnemma í
gær morgun. 62
Heilsubúð í Smáralind
MIKIÐ ÚRVAL • FRÁBÆR GÆÐI • BETRI VERÐ
Holland and Barrett ÍslandSími 534-1414 • w w w.hollandandbarrett.is •
15%
afsláttur af öllu í dag
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
Miðnætur-
opnun
í kvöld
Frábær
tilboð
sjá bls. 14-17
REYKJAVÍK „Það er einfaldlega líf-
seig mýta að Breiðholtið sé eitthvað
hættulegra en önnur hverfi. Það þarf
ekki annað en að skoða tölfræðina til
að sjá það,“ segir Heimir Ríkharðs-
son, rannsóknarlögreglumaður í
Breiðholti og Kópavogi.
Afbrotum í hverfinu hefur fækkað
ár frá ári síðan 2007 og er hlutfallið
orðið sambærilegt öðrum hverfum
borgarinnar.
Lögregla og íbúar hverfisins eru
sammála um að nauðsynlegt sé að
„afglæpavæða“ ímynd hverfisins en
fordómar og gamlar sögur lifa enn
góðu lífi. Hann segir svæðið lengi
hafa einkennst af hópamyndun barna
og unglinga, sem oft hafi endað illa,
en slíkt heyri nú sögunni til.
„Það voru notaðir hnífar, vopn og
steinar, það voru barsmíðar og það
var setið fyrir mönnum. En þetta
verður maður mun minna var við,
enda náðum við á endanum trausti
strákanna sem voru í þessu og þeir
áttuðu sig á því að maður var með
þeim en ekki á móti þeim,“ segir
hann. - sv / sjá síðu 18
Gengjastríðunum í Breiðholti er lokið og hverfið er orðið mun öruggara:
Há glæpatíðni er lífseig mýta
SKOÐUN Við getum ef til vill
orðið ríkari en Norðmenn, skrifar Jón
Steinsson. 29
MENNING Svala Björgvinsdóttir
giftist Einari Egilssyni í sumar eftir
nítján ára samband. 66
Það voru notaðir hníf-
ar, vopn og steinar, það
voru barsmíðar og það var
setið fyrir mönnum.
Heimir Ríkharðsson
rannsóknarlögreglumaður
VIÐSKIPTI Zhongkun, fjárfestingar-
félag Huangs Nubo, mun á næstu
mánuðum gera aðra tilraun til að
fá leyfi frá iðnaðarráðherra til
langtímaleigu á Grímsstöðum á
Fjöllum. Félaginu var í fyrstu til-
raun neitað um ívilnunarsamning,
þar sem fullnægjandi upplýsingar
um áform Huangs þótti skorta.
„Við höfum verið að vinna að
frágangi á málum með sveitar-
félögunum á svæðinu og þeirri
vinnu hefur miðað mjög vel,“ segir
Halldór Jóhannsson, arkitekt og
talsmaður Huangs Nubo á Íslandi,
en hann vonast til að ný umsókn
verði lögð inn nú í sumar.
Þegar Zhongkun leggur inn
umsóknina mun hún lenda á
borði R ag n-
heiðar Elínar
Árna dóttur,
nýs iðnaðar-
ráðherra, en hún
vildi ekki tjá sig
um málið í gær.
Hún hefur hins-
vegar áður sagst
jákvæð í garð
áformanna.
Eftir að Ögmundur Jónasson,
þáverandi innanríkisráðherra,
hafnaði undanþágubeiðni Zhong-
kun um kaup á Grímsstöðum á
Fjöllum haustið 2011 hófust við-
ræður milli sveitarfélaga á Norð-
austurlandi um að kaupa jörð-
ina og leigja hluta hennar svo til
Zhongkun. Stofnuðu sex sveitar-
félög á svæðinu að lokum félag
utan um verkefnið og sömdu síðan
á síðasta ári við Huang Nubo um
skilyrði leigunnar. Sá samningur
nægir Nuobo ekki því hann þarf
fyrrnefndan ívilnunarsamning
við iðnaðarráðuneyti Ragnheiðar
Elínar Árnadóttur. - mþl
Nubo reynir aftur
Talsmaður Huangs Nubo á Íslandi segir að á næstunni verði sótt í annað sinn um
ívilnunarsamning við iðnaðarráðuneytið vegna leigu á hluta Grímsstaða á Fjöllum.
Bolungarvík 9° SA 6
Akureyri 17° S 2
Egilsstaðir 17° SV 2
Kirkjubæjarkl. 12° SA 2
Reykjavík 11° SA 7
Hlýtt Dálítil riging NV-til fyrri hluta dags
en skúrir V- og N-til síðdegis. Nokkuð bjart
á A-helmingi landsins. Hiti 10-18 stig. 4
Ég vona að þetta
verði í sumar þegar ný
ríkisstjórn er búin að
koma sér fyrir.
Halldór Jóhannsson
talsmaður Huang Nubo
FÓLK Fjöldi fólks kom saman í
Valsheimilinu að Hlíðarenda í
gær til að minnast Hermanns
Gunnarssonar, Hemma Gunn,
sem varð bráðkvaddur í fríi í
Taílandi í fyrradag.
Það var íþróttafélagið Valur
sem stóð fyrir athöfninni í
gær. „Valsmenn minnast eins
af þekktustu og bestu sonum
Knattspyrnufélagsins Vals með
þakklæti og virðingu,“ var sagt
í tilkynningu félagsins. Séra
Vigfús Þór Árnason og Ólafur F.
Magnús son héldu meðal annars
stutt ávörp. Þá var ungt danspar
fengið til að dansa undir lok
athafnarinnar og lagið Valsmenn
léttir í lund var sungið.
Óhætt er að segja að skyndi-
legt andlát Hemma hafi vakið
þjóðarathygli undanfarna daga
og hans hefur verið minnst víða.
Klappað verður fyrir honum í
eina mínútu á landsleik Íslands
og Slóveníu annað kvöld og leik-
menn Íslands munu bera sorgar-
bönd. - þeb / sjá síðu 20
Valsarar syrgja góðan félaga:
Minntust
Hemma Gunn
GLEÐI Í SORG Dætur Hermanns, Björg Sigríður, Sigrún, Edda og Eva Laufey, mættu á minningarathöfnina í Valsheimilinu í
gær. Þar var slegið á létta strengi inni á milli og því brosað í gegnum tárin þegar hans var minnst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HUANG NUBO
LÖGREGLUMÁL Kynferðisbrotadeild
lögreglunnar skoðar tugi mála þar
sem myndir af ungum íslenskum
stúlkum eru birtar á síðu á netinu
án leyfis þeirra. Yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar segir unnið í að
loka síðunni.
„Þetta er bara hræðilegt. Ég
veit ekki hvernig er hægt að gera
svona lagað. Þetta er sjúkt,“ segir
ung stúlka sem Fréttablaðið ræddi
við. „Konurnar geta fundið fyrir
mikilli vanmáttarkennd þar sem
þær geta aldrei verið vissar um
að myndirnar dúkki ekki einhvers
staðar upp aftur,“ segir Guðrún
Jónsdóttir hjá Stígamótum.
Flestar myndirnar á síðunni eru
af stúlkum á aldrinum fimmtán
til átján ára en yngstu stúlkurnar
eru þrettán ára. - mlþ / sjá síðu 6
Nektarmyndir af unglingum:
Stúlkur fórnar-
lömb spjallsíðu