Fréttablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 60
6. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
Nýjasta kvikmynd leikstjórans
M. Night Shyamalan er komin
í bíó. Þar leika aðalhlutverkin
feðgarnir Will og Jaden Smith.
Söguþráðurinn er á þann veg
að Cyper Raige (Will Smith) er
fremur styggur faðir og harður
í horn að taka. Hann brotlendir
ásamt syni sínum Kitai (Jaden
Smith) á jörðinni, þúsund árum
eftir að hún var skilin eftir í
rústum. Jörðin hefur þá feng-
ið að dafna algerlega óáreitt og
óþekktar dýrategundir ráða þar
ríkjum. Cyper og Kitai þurfa að
læra að vinna saman og treysta
hvor öðrum til að eiga minnstu
möguleika á að sleppa í burtu og
snúa til heimaplánetunnar sinn-
ar, Nova Prime, á ný.
M. Night Shyamalan er ind-
versk-amerískur leikstjóri sem
sló í gegn með draugamyndinni
The Sixth Sense árið 1999. Hann
fylgdi henni eftir með myndinni
Unbreakable sem fékk fína dóma
og á eftir henni kom Signs með
Mel Gibson í aðalhlutverki.
Segja má að myndir hans hafi
fengið versnandi dóma með
hverju árinu eftir að The Sixth
Sense kom út og verður því
athyglisvert að sjá hvernig After
Earth á eftir að vegna. Allar
umbúðirnar eru að minnsta kosti
til staðar, stórstjarna í aðalhlut-
verkinu og tölvubrellurnar eins
og þær gerast bestar.
Will Smith hefur getið sér gott
orð fyrir geimverumyndirnar
þrjár Men In Black. Hann lýsti
því nýlega yfir að hann hefði ekki
áhuga á að leika í þeirri fjórðu,
sem er í undirbúningi.
Smith þarf ekki að kvarta
undan verkefnaskorti. Þessa
dagana er að hann við upptökur
á Winter´s Tale ásamt Russell
Crowe og Colin Farrell. Þrjár
framhaldsmyndir eru einnig á
teikniborðinu, eða I, Robot 2,
Hancock 2 og Bad Boys 3 og því
ljóst að Smith hefur langt í frá
sagt skilið við slíkar myndir þótt
hann muni líklega ekki leika í
Men In Black 4.
Sonur hans Jaden Smith lék
síðasta á móti pabba sínum í The
Pursuit of Happyness en vakti
enn meiri athygli fyrir frammi-
stöðu sína í endurgerð The
Karate Kid.
Feðgar brotlenda á
jörðinni í Aft er Earth
Feðgarnir Will og Jaden Smith leika aðalhlutverkin í glænýrri hasarmynd.
AFTER EARTH Jaden Smith leikur á móti pabba sínum Will Smith í
hasarmyndinni After Earth.
Sigurmynd Cannes-kvikmynda-
hátíðarinnar Blue Is the Warmest
Color, eða La Vie D‘Adèle Chapi-
tres 1 et 2, verður sýnd á vegum
Græna ljóssins í haust. Kvikmynd-
in hlaut mikla athygli á hátíðinni
en sagan segir frá hinni 15 ára
gömlu Adèle, sem langar að verða
kennari. Líf hennar gjörbreytist
þegar hún kynnist hinni bláhærðu
Emmu sem nemur við listaskóla í
nágrenninu. Leikstjórinn Steven
Spielberg fór fyrir dómnefndinni
á Cannes að þessu sinni og þótti
taka óvenjulega ákvörðun þegar
hann veitti leikstjóra myndarinn-
ar og aðalleikkonunum tveimur
Gullpálmann eftirsótta. Að mati
Spielbergs er kvikmyndin „stór-
kostleg ástarsaga um djúpstæða
ást og nístandi hjartasorg sem
áhorfendur fylgjast með, líkt
og flugur á vegg, frá upphafi til
enda“.
Sigurmynd Cannes-
hátíðarinnar í bíó
Myndin fj allar um ástarsamband tveggja stúlkna.
HLUTU GULLPÁLMANN EFTIRSÓTTA Aðalleikkonur myndarinnar, Adèle
Exarchopoulous og Léa Seydoux, sælar eftir Cannes-hátíðina.
■ 1999: Sixth Sense 8,2
■ 2000: Unbreakable 7,2
■ 2002: Signs 6,7
■ 2004: The Village 6,5
■ 2006: Lady in the Water 5,6
■ 2008: The Happening 5,1
■ 2010: The Last Airbender 4,4
Heimild: Imdb.com.
Versnandi dómar hjá Shyamalan
Á laugardaginn ætlar Bíó Paradís
að breyta út af vananum og efla
til markaðar í húsnæðinu á milli
klukkan 12 og 17. Þar verður hægt að
kaupa föt, vínylplötur, DVD-myndir,
spólur eða enn aðrar gersemar.
Einnig ætla starfsmenn bíóhússins
að bjóða til sölu brakandi ferskt bíó-
popp, sælgæti og kaffi og er bjórinn
á tilboðsverði. Leynigestir láta sjá
sig og tónlist frá kunnum tónlistar-
mönnum fær að hljóma. Nú þegar
eru öll pláss seld í Bíó Paradís og því
verður eflaust nóg að gera í bíóhús-
inu á laugardaginn.
Markaður í Bíó Paradís
Bíópopp og bjór verður í boði á tilboðsverði. Mynddiskar og vínylplötur seldar.
EKKI BARA BÍÓ
Á laugardaginn
verður eflt til
markaðar í Bíó
Paradís.
Tvær stórmyndir voru frum-
sýndar í íslenskum kvikmynda-
húsum í vikunni.
Kvikmyndin Now You See Me
var frumsýnd á þriðjudaginn.
Myndin fjallar um hóp töfra-
manna sem fremur magnað
bankarán á miðri sýningu í Las
Vegas og dreifir ránsfengnum
á meðal áhorfenda. FBI kemst
fljótlega á bragðið en getur með
engu móti sannað neitt, til að
byrja með að minnsta kosti.
Það er Louis Leterrier sem
leikstýrir myndinni en hann er
maðurinn á bak við Clash of the
Titans, The Incred ible Hulk og
Transformers-myndirnar. Leik-
arar myndarinnar eru heldur
ekki af verri endanum en Jesse
Eisenberg, Mark Ruffalo, Woody
Harrelson, Michael Caine og
Morgan Freeman eru þar á
meðal.
Kvikmyndin After Earth var
frumsýnd í gær en myndin skart-
ar feðgunum Will og Jaden Smith
í aðalhlutverkum. Í myndinni
er saga feðganna Cyper Raige
og Kitai sögð. Feðgarnir búa á
plánetunni Nova Prime og sam-
band þeirra feðga er erfitt. Þegar
geimfar þeirra brotlendir á plán-
etunni Jörð verða þeir að vinna
saman til þess að komast af. Á
jörðinni ráða nefnilega óþekkt-
ar dýrategundir ríkjum og því
reyna þeir feðgar allt hvað þeir
geta til þess að snúa til heima-
plánetunnar á ný. Myndinni leik-
stýrir M. Night Shyamalan en
hann leikstýrði The Sixth Sense
og Unbreakable.
Heimildarmyndin Sirius er
frumsýnd í Bíó Paradís á föstu-
daginn en myndin fjallar um
agnar smáa veru sem fannst í
Atcama eyðimörkinni í Síle.
Myndin er innblásin af bók Dr.
Steven Greer, Hidden Truth,
Forbidden Knowledge, en hann
hefur um langt skeið reynt að fá
bandarísk stjórnvöld til að birta
upplýsingar um líf geimvera. Í
myndinni er því haldið fram að
ákveðin leynd hvíli yfir tilvist
geimvera. - ka
Geimverur og galdrakarlar
Stórmyndirnar Aft er Earth og Now You See Me voru frumsýndar í vikunni.
TRYLLT TÖFRABRÖGÐ Hópur töframanna fremur bankarán á miðri sýningu en það
reynist þrautin þyngri fyrir FBI að komast að hinu sanna.
Al Pacino segist hafa hafnað mörg-
um stórum hlutverkum í gegnum
tíðina. Hann segir til að mynda að
honum hafi verið boðið hlutverk
Han Solo í Star Wars. „Ég mátti fá
Star Wars ef ég vildi en ég skildi
bara ekkert í handritinu.“ Leikar-
inn segist einnig hafa neitað hlut-
verki Bruce Willis í Die Hard-
myndunum og aðalhlutverkinu í
Pretty Woman, sem Richard Gere
hneppti. Hann tekur þessu þó öllu
með stóískri ró. „Ég er bara ekki
nógu góður í að sjá hvaða hlutverk
eru góð og hver eru það ekki.“
Vildi ekki Han Solo
Al Pacino kann ekki að velja sér hlutverk.
HAFNAÐI STAR WARS OG DIE HARD
Stórleikarinn Al Pacino hefur hafnað
mörgum góðum hlutverkum.
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU