Fréttablaðið - 06.06.2013, Blaðsíða 2
6. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STANGVEIÐI Veiðifélag Norðurár
ræddi að kaupa opnunarhollið í
ánni og gefa það stjórn Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, sem
opnað hefur ána síðustu 67 árin
en er nú í vanskilum við veiði-
félagið.
Stjórn SVFR ætlaði að selja frá
sér opnunarhollið í ljósi bágrar
fjárhagsstöðu
félagsins. Engin
viðunandi tilboð
bárust að sögn
stjórnarinnar,
sem opnaði því
ána á fyrstu
tveimur vöktun-
um í gær. Næstu
dagar ruku hins
vegar á 40 þús-
und krónur dagurinn þegar þeir
voru settir í vefsölu SVFR í gær.
Þótt ekki hafi náðst áfram-
haldandi samningar milli Veiði-
félags Norðurár og SVFR um
leigu árinnar vildi stjórn veiði-
félagsins að haldið yrði í þá hefð
að stjórnarmenn SVFR opnuðu
ána. Birna G. Konráðs dóttir, for-
maður veiðifélagsins, stakk því
upp á félagsfundi um miðjan maí
að félagið keypti opnunarhollið af
SVFR til að bjóða stjórnarmönn-
um þess til veiða.
Fram kom það sjónarmið á
félagsfundinum að slíkt gæti
verið góð auglýsing fyrir
Norðurá en einnig að þetta gæti
verið niðurlægjandi fyrir SVFR.
Einn benti á að útlit væri fyrir
að veiðifélagið fengi hvort eð er
ekki peninga frá SVFR og gæti
því allt eins keypt opnunina. Ekk-
ert varð úr málinu.
Helsta fundarefnið var einmitt
uppnámið í útleigu árinnar. Um
miðjan maí námu vanskil SVFR
við veiðifélagið um 25 milljón-
um króna. Nefnt var á fundin-
um að vanefndir SVFR gagnvart
veiðifélaginu væru ástæða fyrir
því að útleiga árinnar væri ófrá-
gengin.
Sumir fundarmanna lýstu
áhyggjum af því að greiðslur
sem þeir treystu á myndu ekki
skila sér. Tillaga kom um að
semja áfram við SVFR en ekki
voru greidd atkvæði um hana
því meirihlutinn samþykkti að
fela Einari Sigfússyni, sem verið
hefur með Haffjarðará, að selja
leyfi í ána næsta sumar í umboðs-
sölu.
Birna formaður gaf á félags-
fundinum yfirlýsingu varðandi
neyðarlegt mál sem útspilaði sig
eftir næsta fund þar á undan.
Kvaðst Birna hafa talið að Þórir
Örn Þórisson, fulltrúi Lífsvals
ehf., á félagsfundinum hefði lekið
upplýsingum þaðan í formann
SVFR. Hún hefði því óskað eftir
að fulltrúi Lífsvals mætti ekki á
næsta fund. Kvaðst Birna hafa
haft Þóri fyrir rangri sök og bað
hann innilega afsökunar.
gar@frettabladid.is
Vildu kaupa opnun
Norðurár fyrir SVFR
Stjórn Veiðifélags Norðurár íhugaði að kaupa opnunarhollið af Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur svo stjórn þess gæti opnað Norðurá þrátt fyrir vanskil við landeigend-
ur. Fyrir óstaðfestan trúnaðarbrest átti að útiloka fulltrúa Lífsvals frá félagsfundi.
VEITT VIÐ NORÐURÁ Stjórnarmenn í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur hófu veiðar í
Norðurá í gær en létu sér nægja fyrsta veiðidaginn í stað þess að vera tvo og hálfan
dag eins og tíðkast hefur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BIRNA G.
KONRÁÐSDÓTTIR
ALÞINGI Alþingi verður sett í dag og
reiknað er með því að fundað verði
í tvær til þrjár vikur. Dagskráin
liggur ekki enn fyrir en Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra mun flytja stefnuræðu
sína á mánudag. Fyrsti vinnudagur
þingsins verður síðan á þriðjudag.
Vinna stendur yfir í ráðuneyt-
unum um þau mál sem tekin
verða fyrir á sumarþinginu. Áður
hefur komið fram að líklegast sé
að tekið verði á tryggingargjaldi
á fyrirtæki. Ákveðið var í gær
að stjórnarandstaðan fengi for-
mennsku í tveimur fastanefndum
þingsins. Til fastanefnda teljast
allsherjar- og menntamálanefnd,
atvinnuveganefnd, efnahags- og
viðskiptanefnd, fjárlaganefnd,
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd,
umhverfis- og samgöngunefnd,
utanríkismálanefnd og velferðar-
nefnd.
Þá mun stjórnarandstaðan fá
fyrsta varaformann í þremur
fastanefndanna og annan vara-
formann í öðrum þremur. - kóp
Stjórnarandstaðan mun fá formennsku í þingnefndum:
Óljóst með dagskrá þingsins
ALÞINGI Þing verður sett klukkan 13.30
í dag. Einar K. Guðfinnsson stýrir fundi
sem starfsaldursforseti, í fjarveru Stein-
gríms J. Sigfússonar, en Einar verður
síðan kjörinn forseti Alþingis.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hilmir, er þetta söngleikur um
mikið magn ruslpósts?
„Ekki alveg, það má segja að hann
fjalli um grínista hringborðsins.“
Hilmir Snær Guðnason mun leikstýra
uppfærslu Þjóðleikhússins á söngleiknum
Spamalot í lok árs. Söngleikurinn byggir á
kvikmyndinni vinsælu Monty Python and the
Holy Grail.
UMHVERFISMÁL Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, afhjúpaði í gær skjöld til staðfestingar því að Surtsey er á
heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Skjöldurinn er á Breiðabakka á Heimaey, þar sem Surtsey er í sjón-
máli. Í næsta mánuði eru fimm ár liðin frá því að eyjan var samþykkt
inn á listann. Fimmtíu ár eru á þessu ári frá því að gosið hófst og 46
ár síðan því lauk.
Eftir að ráðherra hafði ávarpað gesti voru framkvæmdir við Eld-
heima skoðaðar, en það er nýtt sýningarhús um minjar frá gosinu í
Heimaey. Að því loknu var boðið til móttöku í Surtseyjarstofu. - þeb
Fimmtíu ár liðin frá því að gosið í Surtsey hófst:
Nýr minnisvarði um Surtsey
STEINNINN AFHJÚPAÐUR Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, og
Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra afhjúpuðu skjöldinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
AKUREYRI Metanstöðin á Akureyri
getur ekki hafið vinnslu hauggass
frá urðunarstaðnum á Glerárdal
á Akureyri sökum seinkunar á
afhendingu hreinsistöðvar frá
framleiðanda hennar.
Áætlað var að Norðurorka keypti
hreinsistöð sem þegar var hafin
smíði á en niðurstaða framleiðand-
ans var sú að stöðin mætti ekki
umræddum kröfum og óskaði hann
eftir því að hafin yrði smíði nýrrar
stöðvar.
Áætlanir gera ráð fyrir að sala
metangass geti hafist fyrir ára-
mótin en Metanstöðin segir taf-
irnar þó óþægilegar vegna þess
að verktíminn á Íslandi sé erfiður
með tilliti til veðurs. - le
Segja tafir óþægilegar:
Vinnsla haug-
gass frestast
LÖGREGLUMÁL Hlynur Hallsson,
myndlistarmaður á Akureyri,
telur sig hafa fundið þann sem
framdi náttúruspjöll í Mývatns-
sveit á dögunum. Það er Akureyri
vikublað sem greinir frá þessu.
Hlynur var á sýningarrölti í
Berlín þegar hann rakst á lista-
verk eftir listamann að nafni
Julius von Bismarck, en þar komu
náttúrufyrirbrigðin við Mývatn
við sögu eftir að búið var að mála
á þau orð.
Myndir sem Hlynur tók benda
til þess að fleiri náttúruspjöll hafi
verið framin en greint hefur verið
frá. Umhverfis stofnun hefur
kallað gjörninginn „náttúru-
terrorisma“ og stangast hann á
við íslensk lög.
Listamaðurinn sem spjót-
in beinast að er sagður hafa
margvís leg tengsl við Ísland og
hefur samkvæmt heimildum
Akureyrar vikublaðs haldið sýn-
ingar hér á landi. Von Bismarck
nemur við rýmisstofnun Ólafs
Elíassonar í Berlín og kvað heill-
aður af Ólafi.
Spjöllin vöktu mikla athygli og
umtal þegar greint var frá þeim,
en meðal annars var búið var að
mála orðin CRATER á Hverfjalli,
LAVA við Kálfaströnd og CAVE
í Grjótagjá. Lögreglan á Húsa-
vík fer með rannsókn málsins
en hefur orðið einskis vísari þar
til nú. „Mér finnst ekki ólíklegt
að tekin verði skýrsla af Hlyni,“
segir tals maður lögreglunnar á
Húsavík. Hann segir vísbending-
ar hafa komið um hóp listamanna
sem staddur var í Mývatnssveit á
þeim tíma sem skemmdar verkin
voru unnin, en þær hafi ekki
skilað neinu.
„Með tilkomu nýrra vísbend-
inga finnst mér líklegt að farið
verði í málið af fullum þunga.“
- hva
Hlynur Hallsson myndlistarmaður rakst á listaverk með náttúruspjöllunum:
Telur náttúruníðing fundinn
HVERFJALL Skemmdarverkin vöktu
mikla athygli, enda mjög áberandi.
Sigfús Jóhann Johnsen pró-
fessor lést miðvikudaginn 5.
júní á hjúkrunarheimilinu
Slottet í Kaupmannahöfn.
Hann fæddist 27. apríl árið
1940.
Sigfús starfaði bæði við
Kaupmannahafnarháskóla og
Háskóla Íslands, lengst af við
margvíslegar rann sóknir á
djúpkjörnum úr Grænlands-
jökli. Hann hlaut fjölda alþjóð-
legra viðurkenninga. Hann
var heiðursdoktor við Háskóla
Íslands og heiðursfélagi í
Jöklarannsóknafélagi Íslands.
Sigfús lætur eftir sig eigin-
konu og þrjú uppkomin börn.
Sigfús Jóhann
Johnsen látinn
FJÁRMÁL Eygló Harðardóttir
félagsmálaráðherra segist vænta
þess að fjármálastofnanir muni
nú hefja endurreikninga á gengis-
lánum tafarlaust og gera það vel.
Þetta kemur fram í tilkynningu
vegna gengislánadóms Hæstarétt-
ar í síðustu viku. Umboðs maður
skuldara gaf álit sitt á dómnum og
telur fordæmisgildi hans skýrt.
Samkvæmt dómnum megi ekki
endurreikna lán til skemmri tíma
með vöxtum Seðlabankans aftur í
tímann. - þeb
Ráðherra um gengislán:
Hefji útreikn-
inga tafarlaust
miljónir króna eru
vanskil Stangaveiði-
félags Reykjavíkur við
Veiðifélag Norðurár.
25
SPURNING DAGSINS