Fréttablaðið - 12.07.2013, Page 4
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
262 bækur voru þýddar úr ensku á íslensku
árið 2010.
Eflaust kemur það engum á óvart
að flestar erlendar bækur eru
þýddar úr ensku. En færri vita
hvaða tungumál kemur í öðru sæti.
Fyrir áratug deildu danska og sænska
öðru sætinu en Svíar höfðu tekið fram
úr árið 2010. Þá voru 47 bækur þýddar
úr sænsku en einungis tíu úr dönsku.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
3-8 m/s.
TÍÐINDALÍTIÐ Veðrið næstu daga einkennist af hægum vindi og lítilsháttar
vætu. Í dag má búast við rigningu eða skúrum í flestum landshlutum en það verður
úrkomulítið suðaustanlands. Það kólnar heldur í veðri en áfram verður hlýjast A-til.
8°
4
m/s
9°
8
m/s
11°
9
m/s
10°
9
m/s
Á morgun
Yfi rleitt hægur vindur eða hafgola.
Gildistími korta er um hádegi
11°
7°
12°
11°
8°
Alicante
Aþena
Basel
29°
33°
29°
Berlín
Billund
Frankfurt
24°
23°
24°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
24°
21°
21°
Las Palmas
London
Mallorca
26°
24°
31°
New York
Orlando
Ósló
24°
32°
25°
París
San Francisco
Stokkhólmur
25°
19°
23°
12°
7
m/s
10°
14
m/s
13°
2
m/s
9°
4
m/s
11°
5
m/s
12°
7
m/s
6°
7
m/s
12°
8°
8°
13°
11°
DÓMSMÁL Karl og
Steingrímur Wer-
nerssynir, í félagi
við Guðmund
Ólason, forstjóra
Milestone, létu
tryggingafélagið
Sjóvá borga Ing-
unni Werners-
dóttur, systur
þeirra, 600 millj-
ónir árið 2006 af því að Milestone,
móðurfélag Sjóvár, réð ekki við að
inna greiðslunar af hendi. Í staðinn
eignaðist Sjóvá kröfu á Milestone.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í ákæru sérstaks á hendur
þremenningunum fyrir umboðs-
svik og brot á lögum um bókhald og
ársreikninga. Þrír endurskoðendur
hjá KPMG eru jafnframt ákærðir í
málinu.
Ákæran var birt sexmenning-
unum á mánudaginn og greint var
frá henni í Fréttablaðinu á þriðju-
dag. Þar kom fram að hún snerist
um það þegar Karl, Steingrímur og
Guðmundur ákváðu að kaupa Ing-
unni út úr Milestone fyrir rúma 4,8
milljarða árin 2006 og 2007, með
peningum frá Milestone sem voru
lagðir inn á hana mánaðarlega árin
tvö.
Ákæran er 29 blaðsíður og var
gerð opinber í gær. Í henni kemur
meðal annars fram að þegar leið
á árið 2006 hafi Milestone átt „í
nokkrum erfiðleikum með að fjár-
magna greiðslur til Ingunnar sam-
kvæmt greiðsluáætluninni“.
Þá hafi verið brugðið á það ráð að
semja við Ingunni um að fresta fjór-
um 150 milljóna greiðslum, frá sept-
ember til desember 2006, en að hún
fengi í staðinn 600 milljóna kröfu á
Sjóvá.
„Látið var líta svo út að Sjóvá
hefði tekið víkjandi lán hjá Ingunni,
sem Sjóvá skyldi endurgreiða Ing-
unni með vöxtum. Ingunn greiddi
Sjóvá hins vegar aldrei lánsfjárhæð-
ina en þess í stað var færð í bókhaldi
Sjóvár krafa á hendur Milestone án
þess að skriflegir samningar lægju
fyrir um þá kröfu.“
Í ákærunni er jafnframt sérstak-
lega fjallað um það að allar arð-
greiðslur út úr Milestone vegna
áranna 2005 og 2006, og 98,4 pró-
sent af arðgreiðslum ársins 2007,
hafi runnið til Karls og Steingríms
þótt þeir hafi ekki lagt neitt fé til
kaupa á hlutum Ingunnar. Alls
námu arðgreiðslurnar milljarði
króna.
Ákæran verður þingfest í sept-
ember.
stigur@frettabladid.is
Rússland, AP Áttu gamla ritvél
einhvers staðar í fórum þínum?
Hringdu þá til Kreml. Þar er eftir-
spurn.
Rússneska leyniþjónustustofn-
unin FSO, ein af arftökum hinnar
alræmdu KGB, hefur auglýst eftir
tuttugu ritvélum og vill borga
rúmlega 90 þúsund krónur fyrir
stykkið.
Rússneska dagblaðið Izvestia
skýrir frá þessu og segir að FSO
telji nauðsynlegt að taka ritvélar
í notkun á ný, nú þegar ljóstrað
hefur verið upp um stórfelldar
fjarskiptanjósnir Bandaríkjanna.
- gb
Kreml bregst við njósnum:
Hafa pantað sér
gamlar ritvélar
GAMALDAGS Svona tæki vilja rúss-
neskir leyniþjónustumenn nýta sér á ný.
NORDICPHOTOS/AFP
Tóku lán hjá Sjóvá
til að borga Ingunni
Wernersbræður og Guðmundur Ólason létu Sjóvá borga Ingunni Wernersdóttur
600 milljónir þegar Milestone lenti í erfiðleikum. Allar arðgreiðslur úr Milestone
runnu til bræðranna þótt þeir hafi ekkert fé lagt til kaupanna á hlut Ingunnar.
KARL
WERNERSSON
GUÐMUNDUR
ÓLASON
STEINGRÍMUR
WERNERSSON
Endurskoðendurnir þrír sem eru ákærðir verða áfram við störf á meðan málið
er fyrir dómstólum, að sögn Jóns S. Helgasonar, framkvæmdastjóra KPMG.
„Ákæran kemur okkur á óvart,“ segir hann. „Annars er bara að bíða og sjá
hverjar lyktir málsins verða fyrir dómi.“
Sérstakur saksóknari fer í ákærunni fram á að endurskoðendurnir þrír,
Hrafnhildur Fanngeirsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir og Sigurþór Charles Guð-
mundsson, verði sviptir réttindum sínum sem löggiltir endurskoðendur.
Í ákærunni segir að endurskoðendunum hafi mátt vera ljósir margir alvarlegir
áhættuþættir við endurskoðun Milestone, „svo sem að stærsti hluthafi félagsins,
þ.e. ákærði Karl, væri starfandi stjórnarformaður félagsins. Hann væri mjög
„dominerandi“ og allar stærri ákvarðanir færu í gegnum hann“. Því hafi þeir átt
að einbeita sér að mögulegri sviksemi sem tengdist ársreikningum félagsins.
„Þrátt fyrir þessa áhættuþætti kusu ákærðu að byggja endurskoðunina að
þessu leyti eingöngu á munnlegum upplýsingum eigenda og stjórnenda Mile-
stone,“ segir í ákærunni.
Endurskoðendurnir áfram við störf
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
fellt niður mál þriggja ungra
kvenna sem Egill Einarsson
kærði fyrir rangar sakargiftir.
Ein kvennanna sakaði Egil um
að hafa nauðgað sér og tvær vin-
konur hennar báru vitni gegn
honum.
Ríkissaksóknari felldi nauðg-
unarmálið niður og í kjölfar-
ið kærði Egill stúlkurnar þrjár
fyrir rangar sakargiftir.
Lögregla felldi það mál niður,
en fékk í kjölfarið skipun frá
ríkis saksóknara um að rann-
saka málið betur. Það var
gert og málið síðan sent
ríkissaksóknara til ákæru-
meðferðar.
Á þriðjudag felldi ríkis-
saksóknari málið svo form-
lega niður. Bréf þess efnis
b a r s t ve r j e nd u m
kvennanna þriggja
í gær. Þar kemur
fram að saksókn-
ari telji að það
sem fram er
komið sé ekki líklegt til sak-
fellingar.
„Þetta er bara eins og við
var að búast,“ segir Guðjón
Ólafur Jónsson, lögmaður
konunnar sem kærði Egil
fyrir nauðgun. - sh
Þrjár konur sem Egill Einarsson kærði fyrir rangar sakargiftir ekki ákærðar:
Mál gegn konunum fellt niður
EGILL EINARSSON
Taldi gróflega að sér
vegið þegar hann
var kærður fyrir
nauðgun.
DÓMSMÁL
Fundnir sekir um þjófnað
Tveir ungir menn voru í gær dæmdir
sekir fyrir þjófnað í Héraðsdómi Suður-
lands. Höfðu þeir brotist inn í sumar-
hús í Grímsnes- og Grafningshreppi
með því að brjóta rúðu í þvottahúshurð
og stálu þar þremur fartölvum. Var
annar þeirra dæmdur til níu mánaða
fangelsisvistar en hinum var ekki gerð
sérstök refsing þar sem hann sætti
þegar refsingu fyrir óskylt brot.
Látið var líta svo út að
Sjóvá hefði tekið víkjandi
lán hjá Ingunni, sem Sjóvá
skyldi endurgreiða Ing-
unni með vöxtum.
Úr ákæru sérstaks saksóknara
FERÐAMÁL Um 90 þúsund erlendir
ferðamenn komu til landsins í
júní samkvæmt talningu Ferða-
málastofu í Leifsstöð. Þetta er
tæplega 21 prósents aukning frá
júní í fyrra þegar þeir voru tæp-
lega 75 þúsund talsins.
Bandaríkjamenn voru stærsti
hópurinn, en fimmti hver erlendi
ferðamaður sem kom til Íslands í
júní var frá Bandaríkjunum. Tæp
14 prósent komu frá Þýskalandi
og tæp átta prósent frá Bret-
landi samkvæmt upplýsingum frá
Ferðamálastofu.
Á fyrri helmingi ársins komu
því rúmlega 311 þúsund ferða-
menn til landsins, litlu færri en
landsmenn allir. - bj
90 þúsund ferðamenn í júní:
Um 21% fleiri
en í júní í fyrra
FERÐAST Þeir ferðamenn sem héldu
sig við höfuðborgarsvæðið og nágrenni
hafa eflaust þurft á regnfötunum að
halda í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LANDHELGISGÆSLAN Mikill viðbún-
aður fór í gang þegar Landhelgis-
gæslunni barst tilkynning um að
tveimur neyðarblysum hefði verið
skotið upp í grennd við Sandgerði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kann-
aði svæðið en fljótlega kom í ljós
að ekki var um alvarlegt ástand að
ræða. Sáu gæslumenn til manna
skjóta síðara blysinu upp á jörðu
niðri. - gb
Mikill viðbúnaður að óþörfu:
Flugeldar taldir
vera neyðarblys
BÚRMA, AP 25 búddistar voru í gær
dæmdir til fimmtán ára fanga-
vistar fyrir fjöldamorð og fleiri
brot sem framin voru í óeirðum í
bænum Meikhtila dagana 20. og 21.
mars á þessu ári.
Til þessa höfðu aðeins múslimar
hlotið dóma fyrir sinn hlut í óeirð-
unum. Dómskerfið í Búrma sætir
áfram gagnrýni fyrir að mismuna
hinum brotlegu, því daginn áður
hlaut múslimi ævilangt fangelsi
fyrir að myrða einn hinna 43 sem
létu lífið í átökunum. - gb
Dómar fyrir fjöldamorð:
Tugir búddista
fá dóm í Búrma