Fréttablaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 28
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
HELGAR MATURINN SUMARLEGT LAKKRÍSLAMB
Sandra Björg Gunnars-
dóttir viðskiptafræði-
nemi og þjónn á Tilver-
unni er mikill sælkeri
og elskar að búa til
góðan mat. Hún
deilir hér með
Lífi nu skemmti-
legri uppskrift
að lakkrís-
lambi.
Fyrir 6 manns:
900 g lambafilet með fitunni
Lakkríssalt frá Saltverk
Grófmalaður pipar
sólblómaolía
Sumarsalat:
Klettasalat eða annað bragð-
gott kál
1 lítil askja jarðarber
¼ melóna, gul eða rauð
Kartöflusalat:
6 stórar kartöflur
½ rauð paprika
1 klípa fersk basilika
½ tsk. grófmalað salt
10% sýrður rjómi
Dressing:
½ gúrka
Safi úr ¼ sítrónu
Smá sýrður rjómi
Eftir að hafa skellt kartöflunum
í pott (láta sjóða í um 40 mín.)
byrjaði ég á að skera þvert í fit-
una á lambinu og nudda það með
3-4 tsk. af lakkríssalti og skvettu
af sólblómaolíu. Ofninn stilli ég á
200°C. Ég vil líka benda á að nota
ekki ólívuolíu því hún brennur við
mun minni hita en sólblómaolía.
Ég blandaði saman gúrku, sýrðum
rjóma og sítrónusafa með töfrasprot-
anum þar til allt var orðið vel mauk-
að. Því næst skar ég niður soðnar
kartöflur, saxaða basiliku og papr-
iku. Öllu var blandað saman með
sýrða rjómanum og smá salti. Skellti
því svo í kæli.
Lambið var piprað og steikt við full-
an hita í 2-3 mín. á hvorri hlið á
pönnu(fituna niður) og sett svo í ofn
í eldfast mót. Lambið má svo vera í
8-15 mín. í ofninum.
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Eiginkonu mína rétt
áður en ég steig upp í rútu
með blikaliðinu þar sem
haldið er til Andorra (ég er
mikill faðmari).
En kysstir? Sömuleiðis
eiginkonu mína, Hildi
Einarsdóttur. Ég fékk
langan og góðan.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig? Vinir
mínir og fjölskylda vita að
mér þykir óþægilegt að láta
koma mér á óvart. Þannig
að það er lítið um það og
svo langt síðan að ég man
það ekki.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búinn að umbera
allt of lengi? Ég hef fullt
af göllum, en sá stærsti má
ekki líta dagsins ljós hér.
Ertu hörundssár? Nei,
ekki lengur. Var mjög hör-
undssár þegar ég var yngri.
Dansarðu þegar eng-
inn sér til? Alls ekki. Dans
er er stórlega ofmetið fyrir-
bæri. Konan reynir að
draga mig út á gólfið stund-
um. En nei, ég dansa helst
aldrei.
Hvenær gerðirðu þig
síðast að fífli og hvern-
ig? Síðast þegar ég dans-
aði í vetur.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Aldrei. Stað-
fastur í að væla ekki.
Tekurðu strætó? Nei. Hef
ekki notað strætó síðan ég
fór með bakpoka í bæinn
sem unglingur.
Hvað eyðirðu mikl-
um tíma á Facebook á
dag? Sennilega 30 mínút-
um að meðaltali sem er allt-
of mikið. Fæ alltaf samvisku-
bit ef ég er lengur en hálf-
tíma í senn.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Fer eftir hvort
ég þekki þá persónulega.
Annars fer ég ekki hjá mér
við neitt nema þegar ég
dansa.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir vita
um þig? Tja – ég hlusta
mikið á Michael Buble og
finnst líka Nosa-lagið gott.
Er annars grjótharður rokk-
ari.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Drekka áfengi. Drekk ekki
áfengi og finnst ekki líklegt
að byrja á því um helgina.
Gunnleifur Vignir
Gunnleifsson
ALDUR: 37
STARF: Knattspyrnumaður,
þjálfari og nemi.
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R