Fréttablaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Menning. Bóas Kristjánsson. Kúnst og Fegurð. Spjörunum Úr og Helgarmaturinn 2 • LÍFIÐ 12. JÚLÍ 2013 Bragginn var áður kartöflugeymsla fjölskyldunnar. HVERJIR HVAR? Umsjón blaðsins Marín Manda Magnúsdóttir marinmanda@frettabladid.is Umsjón Lífsins á Vísir.is Ellý Ármanns elly@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Jónatan Grétarsson Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid Lífi ð Hamingja, fólk og annað frábært E rna Elínbjörg Skúladóttir er glaðlynd og ævintýragjörn kona en hún hefur meðal annars unnið sem kaffi- barþjónn í Kólumbíu. Fyrir tveimur árum útskrifaðist hún með BA-gráðu í keramikgerð með áherslu á myndlist. Nú stundar hún mastersnám í myndlist í Noregi en yfir sumartímann ræktar hún fjöl- skylduna á Íslandi og býr til postu- lín og kaffi í faldri perlu rétt fyrir utan Flúðir sem heitir Bragginn. „Þetta var sameiginleg hugmynd hjá fjölskyldunni að það væri hægt að nýta þetta húsnæði, gera það upp og nota það sem til væri. Þetta var kartöflugeymsla áður fyrr sem afi minn byggði fyrir 40 árum. Hann keypti gamlan herbragga og byggði hann inn í hólinn og nú rekum við kaffihús og vinnustofu þar,“ segir Erna Elínbjörg Skúladóttir. Fyrir tólf árum hætti fjölskyld- an í Birtingaholti kartöflurækt og leigði út landið undir kornrækt að fleira. Í dag reka mæðgurnar Lára Hildur Þórsdóttir, Ásthildur Skúla- dóttir og Erna Elínbjörg Skúladótt- ir kaffihúsið saman og eru hráefn- in að mestu leyti fengin úr sveitinni um kring. Að öðru leyti eru keypt- ar inn lífrænar vörur. Erna Elín- björg segir að það geti verið erfitt að fá almennilegan kaffibolla úti á landsbyggðinni og því sé kaffið fengið beint frá bónda í Kólumbíu. Innan um kaffiilminn og hráfæð- iskökurnar í Bragganum er unnið að postulíni sem stillt er upp eins og litlu ævintýri. „Ég fann þenn- an litla karl á markaði í Dan- mörku og fannst svo sjarmerandi að setja þennan kúreka með fín- legu postulíni. Ég hef verið að nota gömul leikföng í myndlistina og mér finnst skemmtilegt að blanda saman sögum og ævintýrum. Ég vil helst nota framandi hluti og setja saman með gömlum nostalgísk- um hlutum,“ segir Erna Elínbjörg Skúladóttir. FÓLKIÐ Í BRAGGANUM Mæðgurnar frá Birtingaholti reka huggulegt kaffi hús og leir- vinnustofu í gömlum bragga frá stríðsárunum Erna Elínbjörg Skúladóttir lista- kona hefur úbúið öskjur fyrir leir- munina úr kart- öflupokum Litlir og ævintýralegir karlar eru mikið notaðir í listsköpunni hjá Ernu Elínbjörgu. FRÉTTABLAÐIÐ/MARÍN MANDA Svanabollar fást í ýmsum fallegum jarðlitum. Bragginn er falin perla sem sést örlítið í frá veginum. Í vikunni sem leið sást til Jóns Gnarr borgarstjóra á sirkussýningu Burnt Out Punks ásamt eiginkonu sinni og syni en hann fékk heiðurssæti fremst við sviðið. Síðastliðna helgi var einnig haldin tón- listarhátíð á Rauðasandi þar sem ýmsir tónlistarmenn voru áberandi en má þar nefna Unnstein Manúel úr Retro Stefson. Hannes Jón Jóns- son, atvinnumaður í handbolta, gekk í það heilaga með Hörpu Jóhannsdóttur en brúðkaupið mun hafa verið tveggja daga veisla þar sem margir þekktir landsliðs- menn skáluðu fyrir brúðhjón- unum en þar á meðal var fyrrverandi landsliðsmaður, Markús Máni Mikaelsson. Spektro fjölvítamínið fyrir alla Öll þurfum við vítamín og steinefni sérstaklega þegar ekki er passað að borða rétt. Á sumrin gleymum við oft að taka vítamínin sem er miður, því það er ekki síst þá sem fólk borðar óreglulega og leyfir sér meira í mat og drykk. Spektro er einstök fjölvítamín blanda frá Solaray sem inniheldur öll helstu vítmín og steinefni sem við þurfum á að halda. einning jurtir og ensím sem gefa okkur orku, bæta úthre- insun og halda meltingunni góðri. Spektro er sérstaklega samansett til að halda jafnvægi á vítmínum, steinefnum og jurtum, og að þessi hráefni vinni hárrétt saman. Hylkið leysist upp á 20 mínútum svo upptaka líkamans á bætiefnunum er hröð. Spektro fjölvítamín er þar að auki laust við laktósa, sykur, glúten, soja og tilbúin aukefni. Spektro hentar því einstaklega vel þeim sem eru með ofnæmi. Spektro er framleitt í gæða vottuðum verksmiðjum, undir ströngum GMP stöðlum. Solaray bætiefnin fást aðeins í apótekum og heilsuvöruverslunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.