Fréttablaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 46
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34 „Ég leitaði lengi að húsnæði í 101 en fann ekkert sem hent- aði. Svo bauðst mér þessi staður á mínum gömlu bernskuslóðum svo ég sló til,“ segir Páll Ásgeirs- son, sem opnað hefur húðflúrstof- una Classic Tattoo í Breiðholtinu. Páll hefur starfað sem húðflúrari í fimmtán ár og bjó síðustu fjögur ár í Gautaborg þar sem hann rak sína eigin stofu. Nú er hann kom- inn aftur heim í Breiðholtið. „Stof- an er hérna beint fyrir framan blokkina sem ég ólst upp í þegar ég var strákur, sem er einstaklega skemmtilegt.“ Páll missti annað augað í slysi þegar hann var tveggja ára. Hann segir að það hafi þó aldrei angrað sig. „Þegar eitt skynfæri hverf- ur eða hættir að virka, þá eykst virkni annarra skynfæra. Þetta hefur aldrei haft nein áhrif á mig eða vinnuna, enda þekki ég ekk- ert annað,“ segir hann, og bætir við að hann sé haldinn ákveð- inni fullkomnunaráráttu. „Þegar ég vann í unglingavinnunni þá sópaði ég gangstéttina svo vel að það var eins og biskupinn eða forsetinn væru á leiðinni. Þeir gengu þó aldrei þessar bless- uðu gangstéttir. Ég hef alltaf átt það til að vanda mig of mikið.“ Páll skartar sjálfur fjölda húð- flúra en fyrsta húðflúrið fékk hann 17 ára gamall. „Það var árið 1989. Í raun mörgum árum áður en þetta varð virkilega vinsælt.“ Classic Tattoo býður viðskiptavin- um sínum upp á sérstakt tilboð í tilefni opnunarinnar en býður þar að auki upp á skemmtilega nýjung. „Viðskiptavinir okkar geta komið og fengið ráðgjöf hjá húðflúrara á milli klukkan 12 og 13 og klukkan 18 og 19, alla virka daga. Vanda- málið hefur nefnilega oft verið það að fólk kemur inn á húðflúr- stofur og flúrarinn er upptekinn þegar viðkomandi kemur inn. Hann getur þar af leiðandi ekki aðstoðað,“ segir Páll. Með þessu fyrirkomulagi skap- ast því bæði vinnufriður fyrir húð- flúrarann og tími fyrir viðskipta- vininn. „Svo má nú ekki gleyma því að stofan mín er sú eina sem getur boðið upp á almennileg bíla- stæði,“ segir Páll í léttum dúr og áréttar að allir séu velkomnir til hans. kristjana@frettabladid.is Opnar fyrstu tattú- stofuna í Breiðholti Páll Ásgeirsson hefur opnað tattústofuna Classic Tattoo í Neðra-Breiðholti. Hann segir kostinn við staðsetninguna þann að nóg sé til af bílastæðum. ALLIR ERU VELKOMNIR Páll segir að öllum sé velkomið að kíkja til hans á stofuna, næg séu bílastæðin. Viðskiptavinir geta einnig fengið ráðgjöf alla virka daga á milli klukkan 12 og 13 og klukkan 18 og 19. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ég ákvað að létta aðeins á fataskápnum fyrir veturinn en föt eru svo mikið áhugamál hjá mér og skáparnir fyllast því á engum tíma. Svo er bara skemmtileg stemning í miðbænum á sumrin og því frábært að gera þetta núna,“ segir Manuela Ósk, en hún mun selja mikið af vandaðri merkjavöru, fylgi- hlutum og skóm í Kolaportinu um helgina ásamt vinkonu sinni Söru Lind Pálsdóttur. Manuela segist selja föt úr fataskápnum sínum einu sinni á ári og hvetur fólk til að mæta í Kolaportið á laugardag eða sunnudag, þar sem vinkonurnar eru með bás 3G. Mörg þekkt fatamerki verða í boði, þar á meðal Sonia Rykiel og Dolce & Gabbana. Sara Lind Páls- dóttir er eigandi verslunarinnar Júnik í Smáralind og mun einnig vera með mikið úrval af fallegum flíkum sem margar hverjar má einnig finna í versl- uninni. - mmm Selja frá sér fl íkur og fylgihluti Manuela Ósk Harðardóttir og Sara Lind Pálsdóttir selja föt í Kolaportinu um helgina FLOTTAR VINKONUR Þær Manuela Ósk og Sara Lind kynn- tust fyrir stuttu. Þær hafa brennandi áhuga á tísku og flottum flíkum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður haldin um verslunarmannahelgina eins og hefð er fyrir. Í ár verður hátíðin haldin á þremur stöðum en aðaldagskráin mun fara fram á skemmtistaðn- um Faktorý sem senn verður lokað. Það eru Diljá Ámundadóttir og Steinþór Helgi Arnþórs- son sem standa að skipulagningu Innipúkans en að sögn Diljár er hátíðin vinsæl hjá fólki sem af einhverjum ástæðum fer ekki út úr bænum þessa helgi. „Þetta er svona hátíð fyrir fólk sem vill ekki gista í tjaldi og stelpur sem vilja heldur vera í háhæluðum skóm, klæða sig í kjól og setja á sig naglakakk en vera í pollagalla.“ Eins og fyrr segir mun hátíðin fara fram á þremur stöðum að þessu sinni. Faktorý verður með tónlistardagskrá á föstudeginum og laugardeg- inum en einnig er planið að endurvekja gamla Rykkrokk og hafa tónleika snemma á laugar- dagskvöldinu í Fellagörðum. Á meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni í ár eru Valdimar, Steed Lord og Þórunn Antonía. „Þetta verður mjög fjölbreytt og skemmti- legt. Auk þess að vera með dagskrá á Faktorý, þar sem hægt verður að opna út í Hjartagarð og sitja með teppi og, ef fólk vill, fá smá úti- legustemningu í bland við frábæra tónleika í Fellagörðum, verður fjölskylduball á nýja reitnum hjá Vitatorginu. Þar verður grillað og hljómsveitin Magga Stína og Hringir koma fram. Nú vonum við bara að veðurguðirnir verði í sólskinsskapi,“ segir Diljá að lokum. - hó Innipúkinn tekur á sig mynd Aðaldagskráin fer fram á Faktorý sem brátt heyrir sögunni til. FYRIR FÓLK SEM NENNIR EKKI Í ÚTILEGU Þau Diljá Ámundadóttir og Steinþór Helgi Arnþórsson eru skipu- leggjendur Innipúkans í ár. MYND/ARNÞÓR „Ég er í Þýskalandi með fjölskyldu minni, í München í sól og hita. Ætli maður fari ekki og syndi í ein- hverjum af þessum fallegu vötnum sem hér eru og skellum okkur í Legoland.“ Nína Dögg Filuppusdóttir leikkona. HELGIN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.