Fréttablaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 10
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 150 140 130 120 110 100 90 80 70 60 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 V ís it al a Grunnskólastig Framhaldsskólastig Háskólastig Menntamál alls Heimild: Hagstofa Íslands, Viðskiptaráð Þróun fjárframlaga á hvern nemanda EFTIR SKÓLASTIGI 29% -31% -16% 6% VÍSINDI, AP Á sólkerfinu okkar er hali, rétt eins og á halastjörn- um og fleiri fyrirbærum í himin- geimnum. Þetta hafa vísindamenn hjá bandarísku geimferðastofnun- inni NASA gengið úr skugga um. NASA birti á miðvikudaginn myndir, sem sýna hvernig þessu er háttað. Myndirnar eru byggðar á gögnum frá gervihnettinum IBEX, sem hringsólað hefur umhverfis jörðina síðan 2008. Vísindamenn hafa reyndar lengi talið víst að á sólkerfinu sé hali, en hafa nú fyrst í höndum gögn til að sanna það. - gb Vísindamenn hjá NASA nú fullvissir: Á sólkerfinu er hali SÓLKERFIÐ OG HALINN Á þessari nýbirtu mynd frá NASA sést sólkerfið vinstra megin og halinn mikli. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AKUREYRI Aðeins einu sinni hefur mælst meira af frjókornum í loft- inu á Akureyri en nú og var það í júlí árið 2005. Langmest var af birkifrjókorn- um og síðan grasfræi, þá mæld- ust einnig furufrjókorn en þó ekki yfir meðallagi. Fram undan er aðalfrjótími grasa og búast má við að hann nái hámarki í lok júlí og byrjun ágúst. - mlþ Gróska í birki á Akureyri: Frjókorn langt yfir meðallagi SAMFÉLAGSMÁL „Vogur er rekinn með 150 milljóna króna halla á ári“, segir Þórarinn Tyrfings- son, yfirlæknir á Vogi, með- ferðarstofnun SÁÁ. „Þess vegna þarf að leita sparnaðar og við lokum göngudeildinni í Efsta- leiti og meðferðarheimilinu Vík. Aðstandendur áfengis- og vímu- efnasjúklinga lýsa áhyggjum af sumarlokunum SÁÁ sem standa til 10. ágúst. Þórarinn segir það beinlínis skyldu stjórnvalda að bregðast við. - ósk Sumarlokanir áhyggjuefni: Stórtap á Vogi FRAMKVÆMDIR „Það er verið að beita okkur ranglæti,“ segir Egill Guð- mundsson hjá arkitektastofunni ARKÍS vegna meintra samnings- brota af hálfu Reykjavíkurborgar. Arkís og Reykjavíkurborg sömdu árið 2008 um að Arkís skyldi „full- hanna grunnskóla við Úlfarsbraut í Úlfarsárdal,“ eins og segir í samn- ingnum. Hlé var gert á verkinu eftir hrun en Arkís var kallað aftur til síðla árs 2012. Að sögn Egils er borgin nú að vanefna samninginn. Reykjavíkurborg hafnar því. „Það var allt tilbúið fyrir aðalútboð, það var búið að hanna lóð og gera yfirlit yfir leiktæki,“ segir Egill. Tugir milljóna króna hafa þegar verið greiddar fyrir verkið. Á forsíðu Fréttablaðsins 4. desemb- er síðastliðinn sagði að á árinu 2013 yrðu 250 milljónir settar til verk- efnisins og efnt til hönnunarsam- keppni. Egill segir þetta fyrstu upplýsingarnar sem Arkís fékk um samkeppnina. „Á engu stigi málsins var samningnum sagt upp né farið í neitt uppgjör,“ segir hann. Egill segir arkitektastofuna van- hæfa til þátttöku í fyrirhugaðri sam- keppni því hann hafi meðal annars tekið þátt í undirbúningshópi um stækkun skólans með sundlaug og íþróttahúsi og verið viðriðinn allan undirbúning fyrir hönnunina frá upphafi. Borgin forðist öll samskipti vegna málsins. „Við erum ítrekað búnir að óska eftir fundum með borginni, án árangurs,“ segir hann. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, vill ekki tjá sig um hvort og þá hvernig samningurinn við Arkís hafi verið til lykta leiddur. Í ljósi þess að áformað sé að reisa sundlaug, íþróttahús og fleira við skólann þurfi samkvæmt reglum borgarinnar að efna til útboðsins. „Þessir arkitektar telja að þeir eigi að fá að teikna þetta allt saman án samkeppni eða útboðs. Þeir hafa fengið töluvert mikið borgað,“ segir Dagur. Egill segir að þótt til standi að byggja fleira en aðeins skólann sé borgin samningsbundin við teikni- stofuna um hönnun skólans. Dagur segir hins vegar „augljóslega um að ræða allt annað verkefni en áður“ og að ekki verði horfið frá hönn- unarsamkeppninni sem borgarráð samþykkti í júní. johannesss@365.is Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 4 61 1099 • www h. eimsferdir.is B irt m eð f m eð yr irv ar a um p re il nt vi llu r. lu r H ei m sf er ð ir ás ki lja r sé r ré tt t é il le ið ré tt in g a s l á sl á s lík u. í A th . v e að v er ð g e r b r b tu r b re ys t án f á n yr irv ararar a.a E N N E M M / S IA • N M 58 59 3 Frábærar haustferðir fyrir eldri borgara Benidorm Tenerife 24. sept. í 3 vikur 30. okt. í 3 vikur Hotel Melia Kr. 195.900 - með hálfu fæði. Netverð á mann í tvíbýli í 24. sept. í 3 vikur. Hotel Villa Adeje Beach Kr. 229.900 - allt innifalið. Netverð á mann í tvíbýli 30. okt. í 3 vikur. Heimsferðir gerir eldri borgurum frábær tilboð í ferð til Benidorm og Tenerife í haust. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í haust á Benidorm eða Tenerife á ótrúlegum kjörum. Fjölbreytt dagskrá í boði í fylgd fararstjóra Heimsferða. Tugmilljóna hönnun í súginn hjá borginni Arkitektastofan ARKÍS sakar Reykjavíkurborg um að svíkja samning um hönnun grunnskóla í Úlfarsárdal. Formaður borgarráðs segir að vegna ákvörðunar um að bæta íþróttahúsi og sundlaug við skólann verði að efna til hönnunarsamkeppni. MENNTUN „Til að tryggja verð- mætasköpun og samkeppnis- hæft vinnuafl til lengri tíma er nauðsynlegt að efla háskólastarf og nýsköpun,“ segir í skoðun Við- skiptaráðs Íslands sem kom út í gær. Auk þess kemur fram að vegna hagræðingaraðgerða stjórnvalda síðustu fimmtán ár hafi framlög á hvern háskólanemanda dreg- ist saman um 31 prósent á sama tíma og framlög til hvers grunn- skólanemanda hafa aukist um 29 prósent. Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi til frekari hagræðingar í menntamálum samkvæmt skoð- uninni. Fækka megi námsárum í bæði grunn- og framhaldsskól- um, samræma kostnað á hvern nemanda í smærri grunnskólum landsins og endurskoðunar sé þörf á stoðþjónustu innan grunn- skólakerfisins. „Þessar staðreyndir, ásamt fleiri þáttum sem bent hefur verið á í umræðu um menntamál á undanförnum misserum, gefa til kynna að skynsamlegra væri að horfa til annarra skólastiga en háskólans þegar kemur að frek- ari hagræðingu.“ Viðskiptaráð horfir til ráðstöf- unar fjármuna innan mennta- kerfa annarra þróaðra ríkja og kemur þá í ljós að hún er með talsvert öðru móti en á Íslandi. „…Ísland er eina landið innan OECD sem ver meira af fjár- magni í hvern grunnskólanema en háskólanema. OECD-ríki verja að meðaltali 70 prósent meira fjármagni í hvern háskólanema en grunnskólanema, en á Íslandi kostar hver grunnskólanemi átta prósentum meira en hver háskólanemi.“ Í skoðuninni hvetur Viðskipta- ráð stjórnvöld, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila til að taka höndum saman um heildstæða endurskoðun á menntakerfinu. - nej Viðskiptaráð segir að ráðrúm sé til hagræðingar: Efla þarf háskólastig Ólík þróun. Síðastliðin 15 ár hafa framlög á hvern grunnskólanema hækkað um 29 prósent á meðan þau hafa lækkað um 31 prósent á hvern háskólanema. EGILL GUÐ- MUNDSSON Einn eigenda ARKÍS segir borgina sólunda tíma og fé borgarbúa með því að nota ekki teikningar ARKÍS af Dalskóla í Úlfarsárdal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þessir arkitektar telja að þeir eigi að fá að teikna þetta allt saman án samkeppni eða útboðs Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.