Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 6

Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 6
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Við hvað ætlar fráfarandi skóla- stjóri Melaskóla, Björn Pétursson, að starfa í haust? 2. Hversu margar af 56 verslunum merkja allar efnavörur rétt? 3. Hvar á að fella skóg fyrir snjófl óða- varnargarð? SVÖR: 1. Hann ætlar að verða skólaliði. 2. Fimm. 3. Við Skutulsfjörð. H Ú S G AG N A H Ö L L I N O P I Ð O G O P I Ð E I T T S Í M A N Ú M E R SUMARÚTSALA | | | | | | | | | | UREYRI | REYKJAVÍK | AKU REYRI | REYKJAVÍK | AKUR EYRI | – fyrir lifandi heimili – LOKAHELGIN AFSLÁTTUR %50 ALLT AÐ SVÍÞJÓÐ Fjöldi vefsíðna með barnaklámi sem lokað hefur verið í Svíþjóð fyrir tilstilli lög- reglunnar hefur tvöfaldast frá áramótum, úr rúmlega 400 í rúmlega 1.000 síður. Fyrst og fremst er um að ræða síður þar sem börn á aldr- inum þriggja til tólf ára eru í kynferðislegum stellingum og ögrandi fatnaði, að því er segir á vef sænska ríkisútvarpsins. Í Svíþjóð er slíkt skilgreint sem barnaklám samkvæmt lögum. Samtök fjármálafyrirtækja í Svíþjóð hafa um árabil unnið að því að stöðva greiðslur til vefsíðna sem dreifa myndum af kynferðisofbeldi gegn börnum. - ibs Barnaklám í Svíþjóð: Eitt þúsund vefsíðum lokað DÓMSMÁL Tveir kröfuhafar sem ekki hafa fengið fé sem þeir lögðu í íbúðarrétt hjá hjúkrunarheimilinu Eir hafa kært niðurstöðu Sýslu- mannsins í Reykjavík til að freista þess að fá aflétt veðskuldabréfum Íbúðalánasjóðs (ÍLS) af fasteignum Eirar. Sýslumaður hafnaði því að aflétta veðskuldabréfunum. Málið verður þingfest fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur í dag. „Það gæti verið ef þessar íbúð- ir reynast ekki meira virði en veð- skuld Íbúðalánasjóðs að það verði ekkert eftir í búi Eirar til að greiða íbúðarréttarhöfunum,“ segir Sig- ríður Kristinsdóttir, lögmaður íbúðarréttarhafanna. Rétthafarnir, sem nú hafa höfð- að mál, telja að Eir hafi ekki stað- ið rétt að því að veðsetja eignirnar. Samkvæmt lögum hafi stjórnend- um Eirar borið að fá leyfi fyrir veðsetningunni hjá sýslumanni. Það hafi ekki verið gert, og því beri sýslumanni að aflétta veðsetn- ingunni, enda ólöglega til hennar stofnað. Íbúðalánasjóður lánaði Eir um 1,9 milljarða króna á árunum 2007 til 2010 til byggingar á 120 íbúð- um í fjórum húsum og tók á móti veð í húsunum. Miklu skiptir fyrir íbúðarrétthafa hvort Íbúðalána- sjóður teljist veðhafi eða almenn- ur kröfuhafi Eirar vegna þessara skulda. Raunar á eftir að takast á um það hvort íbúðarrétthafar telj- ist almennir kröfuhafar eða hvort þeir eigi veðkröfu. Veðkröfur eru tryggðar með veði í eignum og eru þær fyrst greidd- ar af andvirði eignanna, þann- ig að hugsanlegt er að veðið dugi ekki nema fyrir veðkröfum og þá kemur ekkert til greiðslu almennra krafna. Staðfesti dómstólar þá nið- urstöðu Sýslumannsins í Reykja- vík að Íbúðalánasjóður eigi veðrétt fær hann hugsanlega greitt á undan íbúum sem lögðu margir hverjir ævisparnaðinn í íbúðirnar á Eir. Sigríður á von á því að málið verði afgreitt hratt fyrir dómstól- um. Dómstóllinn hefur þrjár vikur til að komast að niðurstöðu frá því málið er þingfest í dag. Líklegt er að niðurstaðan, hver sem hún verð- ur, fari fyrir Hæstarétt, og segir Sigríður mikilvægt að fá lokaniður- stöðu í málið áður en greiðslustöðv- un þrotabús Eirar rennur út þann 9. september næstkomandi. Íbúðalánasjóður mun taka til varna í málinu. Í yfirlýsingu sem sjóðurinn sendi Fréttablaðinu í gær segir að sjóðnum sé óheimilt að lána án þess að veð komi á móti. Hefði legið fyrir að lánunum yrði ekki þinglýst hefði ekkert orðið úr lánveitingunum, og íbúðirnar því tæpast risið. Íbúðalánasjóður telur að ákvæði um að ekki megi veðsetja eignir án heimildar frá sýslumanni eigi ekki við þar sem hér sé lánveitingin for- senda fyrir eignamynduninni. Þá sé ljóst að umfangsmikill rekstur leiguíbúða teljist atvinnurekstur, og ákvæðin eigi ekki við í málinu af þeim sökum. brjann@frettabladid.is Vilja aflétta veðum ÍLS af íbúðum Eirar Tveir íbúðarrétthafar hafa stefnt þrotabúi Eirar og Íbúðalánasjóði og vilja aflétta veðum sjóðsins af eignum þrotabúsins. Getur skipt gríðarmiklu máli fyrir alla rétthafa, segir lögmaður. Tekist er á um 1,9 milljarða veðkröfu Íbúðalánasjóðs. HAGSMUNIR Þó aðeins tveir íbúðarrétthafar höfði málið á hendur þrotabúinu og Íbúðalánasjóði eiga allir íbúar sem eiga eitthvað inni hjá Eir hagsmuna að gæta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DANMÖRK Kirkjur innflytjenda í Danmörku, sem á tuttugu árum hefur fjölgað úr þrjátíu í 240, hafa það markmið að snúa Dönum til kristinnar trúar. Þetta er haft eftir Erik Nielsen, sem er prestur í kirkjunni First International Baptist Church í Kaupmannahöfn. Í frétt á vef Kristilega Dag- blaðsins segir að kirkjan hafi haldið ráðstefnu um hvernig boða eigi fagnaðarerindið meðal Dana. Innflytjendapresturinn Tony Acheampong er efins um að árangur náist. Danir nenni ekki að verja tíma í að hlusta á eitt- hvað sem þeir trúa ekki á. Til þess þurfi kraftaverk. Þess vegna biðji hann fyrir Dönum svo þeir fari að trúa á Guð. - ibs Kirkjum innflytjenda fjölgar: Vilja snúa Dönum aftur til kristni NOREGUR, AP Norska símafyrir- tækið Telenor Satellite Broadcast- ing hefur tekið höndum saman við Norsku geimrannsóknastöðina um að kanna hagkvæmni þess að koma á netsambandi á norðurskautinu. Bo Andersen, yfirmaður Norsku geimrannsóknarstöðvarinnar, segir í viðtali við AP-fréttastofuna að netsamband gæti komist þar á snemma á næsta áratug, fáist til þess fjármagn bæði frá einkaaðil- um og opinberum stofnunum. Talið er að kostnaðurinn við að koma á loft nýjum gervihnöttum sem geta annað svæðinu verði milli fjörutíu og áttatíu milljarðar íslenskra króna. - gb Norðmenn bregðast við: Vilja netvæða norðurskautið FINNLAND Upplýsingar finnsku öryggislögreglunnar benda til að njósnir erlendra aðila hafi aukist í Finnlandi undanfarin ár. Á vef Hufvudstadsbladet er vitnað í skýrslu rannsóknar- stofnunar þar sem kemur fram að það séu aðallega diplómatar sem stundi njósnirnar. Þeim hafi verið vísað úr landi vegna gruns um njósnir. Finnska varnarmálaráðuneytið telur líklegra að Kínverjar stundi nú njósnir í Finnlandi heldur en Rússar. - ibs Upplýsingar öryggislögreglu: Stunda njósnir í Finnlandi NORÐURSKAUTIÐ Eitt fárra svæða jarðarinnar sem enn er án netsambands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ATVINNUMÁL „Við lögðum til að sett yrði á laggirn- ar starfsnefnd sem hefði það verkefni að reyna að leysa þann hnút sem nokkrar fiskeldisstöðvar eru í,“ segir Guðbergur Rúnarsson, formaður Lands- sambands fiskeldisstöðva, eftir fund með Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, í gær. Þar á Guðbergur við vanda þeirra fyrirtækja sem hafa sótt um leyfi fyrir stækkunum, en leyfisum- sóknirnar eru fastar í kerfinu. Sama kerfi og Sig- urður Ingi sagðist ætla að bylta, í Fréttablaðinu í gær. „Það er svo mikið að gera hjá þessum úrskurðar- nefndum þannig að ef málum er vísað þangað kostar það bara tveggja ára bið,“ segir Guðbergur. Ekki voru allir sáttir við áform ráðherrans um að liðka til í þessu kerfi. Honum bárust bréf frá Orra Vigfússyni, formanni Verndarsjóðs villtra laxastofna, þar sem mælst var til þess að ekki yrðu veitt fleiri leyfi fyrir fiskeldi í sjó þar til Íslendingar byggju yfir nægilegri þekkingu í þessum efnum. „Fiskeldið getur eyðilagt orðstír okkar Íslend- inga. Við erum þekktir fyrir hreina og óspillta náttúru og getum þar af leiðandi selt fisk á tutt- ugu prósent hærra verði en aðrir. Viljum við fórna því?“ spyr Orri. Eins barst ráðherra bréf frá Landssambandi veiðifélaga sem óskaði eftir fundi til að fara yfir málin. - jse Stangveiðimenn ósammála fiskeldismönnum og þrýsta á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: Telja fleiri fiskeldisstöðvar skaða orðstírinn FISKELDI Á VESTFJÖRÐUM Landssamband veiði- félaga og formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna biðja ráðherra að gjalda varhug við stækkunum í fisk- eldi. MYND/FJARÐARLAX VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.