Fréttablaðið - 12.07.2013, Qupperneq 8
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
DÆmdu Hann Á InnIhAldInu
LjúFfengUr rjóMaís Með ekta súKkulaðiHjúP
Með KarAmEllUkÚlum
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
FJÁRMÁL Deila stjórnar Vísindasjóðs
Félags framhaldsskólakennara og
Félags stjórnenda í framhaldsskól-
um við Kennarasamband Íslands,
KÍ, um umsýslu sjóðsins sem stað-
ið hefur á þriðja ár er enn í hnút.
Stjórnin hefur falið Láru V. Júlíus-
dóttur hæstaréttarlögmanni að
undir búa kröfu um uppgjör við KÍ.
„Það er ljóst að það á eftir að fara
fram fjárhagslegt uppgjör milli
stjórnar Vísindasjóðsins og kenn-
arahússins vegna utanumhalds á
sjóðnum og viðskilnaðarins við KÍ.
Það er ljóst að
verið er að halda
upplýsingum frá
stjórn sjóðsins.
Það var reynt að
kalla þær fram
með dómsmáli
í fyrra en kröfu
sjóðsi ns va r
hafnað,“ segir
Lára.
Í janúar 2011 óskaði stjórn Vís-
indasjóðs eftir upplýsingum um
svokallað aðstöðugjald sem KÍ
greiddi sér af bankareikningi
sjóðsins. „Þegar í ljós kom að eng-
inn samningur lá fyrir um aðstöðu-
gjaldið vöknuðu fleiri spurning-
ar. Við mættum mikilli tregðu af
hálfu KÍ við að láta bókhaldið af
hendi en fengum að lokum hluta
gagnanna. Meðal þess sem kom í
ljós var að tekjur sjóðsins frá rík-
inu, rúmar átta milljónir króna
á mánuði, voru jafnan færðar af
bankareikningi sjóðsins og inn á
reikning KÍ þar sem þær lágu jafn-
vel í nokkrar vikur. Vextir af þeim
peningum hafa orðið eftir á reikn-
ingi KÍ,“ segja Þórey Hilmarsdótt-
ir, stjórnar formaður Vísindasjóðs-
ins, og Linda Rós Michaelsdóttir
stjórnar maður.
Vísindasjóðurinn hefur nú verið
fluttur úr KÍ og er vistaður annars
staðar. Að sögn Lindu Rósar og Þór-
eyjar var það gert til að tryggja sem
best hagsmuni félaganna beggja.
„Ríkisendurskoðandi tjáði okkur
að við bærum fjárhagslega ábyrgð
á sjóðnum og að við yrðum að skoða
hlutina.“ - ibs
Stjórn Vísindasjóðs Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda ósátt við umsýslu sjóðsins:
Krefja Kennarasambandið um uppgjör
LÁRA V.
JÚLÍUSDÓTTIR
EGYPTALAND, AP Bræðralag mús-
lima stendur fast við kröfu sína
um að Múhamad Morsi fái for-
setaembættið á ný.
„Við viljum halda áfram frið-
samlegu andófi okkar gegn hinu
blóðuga valdaráni hersins, sem
gert var í andstöðu við stjórn-
skipunarlegt lögmæti,“ segir í
yfirlýsingu frá Bræðralaginu.
Bræðralagið, sem hefur mikið
fjöldafylgi í Egyptalandi, hefur
neitað að starfa með bráðabirgða-
stjórninni. - gb
Bræðralagið hvikar ekki:
Boðar friðsam-
leg mótmæli
STJÓRNSÝSLA Borgarráð staðfesti í
gær ákvörðun stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur um að selja skulda-
bréf Magma í eigu fyrirtækisins
þrátt fyrir harða gagnrýni minni-
hlutans á söluferlinu.
Tilboð í bréfin, sem hljóðar upp á
8,6 milljarða króna, barst frá sjóði
á vegum Landsbréfa en ekki er
vitað hver stendur að baki sjóðn-
um.
Salan var samþykkt með fjórum
atkvæðum meirihlutans en þrír
fulltrúar minnihlutans greiddu
atkvæði á móti. Hafa þeir gagn-
rýnt söluferlið harðlega en af mis-
munandi ástæðum.
Þorleifur Gunnlaugsson, vara-
borgarfulltrúi Vinstri grænna,
gagnrýnir þá leynd sem hvílt
hefur á ferlinu. Þykir honum því
hafa verið haldið frá opinberri
umræðu auk þess sem óljóst er
hver sé raunverulegur kaupandi
bréfanna.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagn-
rýnir tímasetningu sölunnar þar
sem álverð sé í lágmarki. Minni-
hlutinn í heild sinni efast um að það
sé í samræmi við góða stjórnsýslu-
hætti að borgarráð taki fullnaðar-
ákvörðun um svo stóran fjármála-
gerning. Í sveitarstjórnarlögum
segir að eingöngu sveitarstjórn
geti tekið ákvarðanir um mál-
efni sem varða verulega fjármál
sveitarfélagsins. Borgarráð hefur
ákveðna heimild til afgreiðslu mála
í sumarleyfi sveitarstjórnarinnar
en borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins ásamt borgarráðsfulltrú-
um Vinstri grænna hafa leitað eftir
áliti innanríkisráðuneytisins á því
hvort slík heimild sé án takmark-
ana. - nej
Sala skuldabréfa Magma gagnrýnd harðlega af minnihluta borgarráðs:
Efa vald borgarráðs í OR-máli
KJARTAN
MAGNÚSSON
ÞORLEIFUR
GUNNLAUGSSON
TRÚMÁL Pílagrímsganga félags-
ins Pílagrímar verður farin
á þriðjudaginn í næstu viku.
Verður gengið frá Bæ í Borgar-
firði að Skálholti.
Er þetta um 120 kílómetra göngu-
leið sem tekur um sex daga að
ganga. Þrír biskupar koma að
sérstakra dagskrá í Bæjarkirkju
fyrir gönguna, Agnes Sigurð-
ardóttir, biskup Íslands, Karl
Sigurbjörnsson og Kristján Valur
Ingólfsson, biskup í Skálholti.
Göngustjórar verða séra Elínborg
Sturludóttir og með henni séra
Flóki Kristinsson. - nej
Sex daga pílagrímsganga:
Ganga frá Bæ
að Skálholti
RÍKISFJÁRMÁL Hagræðingar hópur
ríkisstjórnarinnar hefur fengið
umboð meðal annars til að leggja
til fækkun ríkisstarfsmanna.
Í erindisbréfi hópsins segir að
honum sé ætlað að leggja til aðgerð-
ir til að hagræða, forgangsraða og
auka skilvirkni í
rekstri stofnana
ríkisins. Í þeirri
vinnu sé nauðsyn-
legt að fara yfir
stóra útgjaldaliði
ríkisins, svo sem
fjölda stöðugilda,
skipulag, rekstur,
innkaup og skoða
hvort gera megi
kerfisbreytingar sem leiði til auk-
innar framleiðni og betri nýtingar
fjármuna án þess að draga þrótt úr
öllu kerfinu.
„Það getur verið að ríkisstarfs-
mönnum fækki til langs tíma,“
segir Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra, spurð-
ur hvort ekki þurfi að fækka ríkis-
starfsmönnum ætli menn að spara
myndar lega hjá ríkissjóði. „Þessi
hópur á að skoða langtímaáhrifin
og reyna að hagræða á þann hátt
að þjónusta við almenning verði
að minnsta kosti jafngóð áfram og
helst betri. Til langs tíma má hugsa
sér að með sameiningu stofnana þá
fækki ríkisstarfsmönnum en það er
ekki gert ráð fyrir verulegum upp-
sögnum ríkisstarfsmanna enda er
hagkerfið viðkvæmt fyrir slíku.“
Oddný G. Harðardóttir, þingmað-
ur Samfylkingar og fyrrverandi
fjármálaráðherra, segir að fækkun
stöðugilda geti varla þýtt annað en
meira álag á þá sem eftir verða. Ef
þessu á að ná fram með sameiningu
stofnana, þá hafi það alltaf einhvern
kostnað með sér til að byrja með.
„Það er svo sem ekkert óeðlilegt
við það að stöðugildin séu skoðuð.
Ég var í svona hópi hvert einasta
sumar og þá var allt undir,“ segir
Oddný. „Hins vegar veit ég ekki
hvernig í ósköpunum þeir ætla að
fara að þessu. Við vorum búin að
fara í gegnum þetta allt saman og
eftir fjögur ár í niðurskurði erum
við komin ansi nálægt þolmörkum.“
Hún segir vissulega hægt að
klípa áfram af útgjöldunum hér og
þar, „en ég veit ekki hvar þeir ætla
að taka stóru tölurnar. Ég tala nú
ekki um nú þegar þeir eru búnir að
afsala sér tekjum upp á tíu millj-
arða. Þetta hlýtur að enda með því
að þeir taka bara lán.“
thorbjorn@stod2.is
gudsteinn@frettabladid.is
Skoðar hvort fækka
megi stöðugildum
Í erindisbréfi hagræðingarhópsins er honum meðal annars falið að leggja til
fækkun ríkisstarfsmanna. Forsætisráðherra segir þar litið til lengri tíma. Oddný G.
Harðardóttir segist ekki sjá að þetta geti endað öðru vísi en með frekari lántökum.
■ Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokks
■ Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks
■ Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks
■ Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks
■ Arnar Þór Másson, skrifstofustjóri forsætisráðuneytisins
■ Sigurður Helgason, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Hagræðingarnefndin
SIGMUNDUR
DAVÍÐ GUNN-
LAUGSSON For-
sætisráðherra segir
fækkun stöðugilda
hugsaða til lengri
tíma.
ODDNÝ G.
HARÐARDÓTTIR
BOSNÍA, AP Tugir þúsunda manna
komu saman í gær í Bosníu,
skammt frá Srebrenica, til að
jarðsetja á ný lík 409 fórnar-
lamba fjöldamorðanna árið 1995.
Minnsta líkið er af nýfæddri
stúlku, sem lét lífið þann 11. júlí
árið 1995 ásamt föður sínum.
Móðir hennar, Hava Muhic,
fylgdi í dag til grafar dóttur
sinni, sem væri orðin 18 ára hefði
hún lifað.
Undanfarin ár hefur verið
unnið að því að bera kennsl á lík-
amsleifar úr fjöldagröfum.
- gb
Fórnarlambanna minnst:
Hundruð líka
sett í nýja gröf