Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 18

Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 18
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN SAMÚELSSON Tjarnarstíg 3, Seltjarnarnesi, lést að kvöldi föstudagsins 28. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Sigríður Sveinsdóttir Jóhann Jóhannsson Bryndís Sveinsdóttir Ásmundur Jónsson Jóhann Sveinsson Birna Guðmundsdóttir Björn Sveinsson Hulda Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR Lækjasmára 6, Kópavogi, lést á Landspítalanum sunnudaginn 7. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. júlí kl. 13.00. Geir Magnússon Áslaug S. Svavarsdóttir Unnur Magnúsdóttir Daníel Helgason Guðlaugur Hilmarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÓSKARSSON Seljalandi 7, Reykjavík, lést á Landakotsspítala 4. júlí. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. júlí kl. 13.00. Þórgunnur Þorgrímsdóttir Örn Berg Guðmundsson Ragnhildur Gröndal Margrét Guðmundsdóttir Steinunn Ósk Guðmundsdóttir Guðrún Gríma Guðmundsdóttir Sigmundur Guðmundsson Guðmundur Ingi Guðmundsson Danuta Mamczura barnabörn og barnabarnabörn. Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu vináttu og kærleik við útför RÓLANTS DAL CHRISTIANSEN. Sérstakar þakkir sendum við Friðbirni Sigurðssyni lækni, Sigurði Blöndal lækni, starfsfólki 11E Landspítala og heimahjúkrun Landspítala. Finnbjörg Grímsdóttir Margrét Rosa Dahl Christiansen Pétur Hlöðversson Johan Sophus Dahl Christiansen Lilja Eiríksdóttir Arna Soffía Dahl Christiansen Jón Ingi Arngrímsson Anna María Antonsdóttir Valgarður Arnarson Linda Petterson Sanda Bjørn Sanda Ragnar Antonsson Guðbjörg Jensdóttir Björn Antonsson Cecilia Antonsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, SNORRI ÞORSTEINSSON lést á gjörgæslu á Landspítalanum í Fossvogi 4. júlí. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 15. júlí kl. 15.00. Anika Sóley Snorradóttir Kristófer Valdi Snorrason og fjölskylda. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA FREYJA GUÐMUNDSDÓTTIR Tungusíðu 23, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 7. júlí. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 15. júlí kl. 13.30. Ólafur Svanlaugsson Margrét Loftsdóttir Guðmundur Svanlaugsson Sigurlaug Stefánsdóttir Aðalbjörn Svanlaugsson Margrét Vestmann barnabörn og barnabarnabörn hinnar látnu. VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann www.kvedja.is Geraldine Ferraro varð fyrsta konan sem útnefnd var sem varaforsetaefni af stórum stjórnmálaflokki í Bandaríkjunum. Ferraro var útnefnd sem meðframbjóðandi demó- kratans Walters Mondale fyrir forseta- kosningarnar árið 1984. Ferraro fæddist árið 1935 og var dóttir ítalskra innflytjenda en faðir hennar dó þegar hún var átta ára. Hún útskrifaðist með BA-gráðu í ensku árið 1956 og varð kennari. Með kennslustarfinu lærði hún lögfræði á kvöldin og útskrifaðist svo með lögfræðigráðu árið 1960. Árið 1974 tók Ferraro við stöðu aðstoðarumdæmis- saksóknara og fjórum árum síðar var hún kosin til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Árið 1980 var Ferraro kosin ritari flokksþingsfundar demókrata og fyrir kosningarnar 1984 var hún í nefnd demókrata sem fjallaði um stefnuskrá flokksins. Sama ár gerðist hún svo með- frambjóðandi forsetaframbjóðandans Walters Mondale. Demókratar töpuðu kosningunum þetta árið fyrir Ronald Reagan sem varð forseti og George Bush varð varaforseti. Árið 2002 bauð Mondale sig fram til öldunga- deildar en tapaði naumlega fyrir Norm Coleman, frambjóðanda demókrata. Ferraro reyndi tvisvar að ná tilnefningu demókrata fyrir öldungadeildina, árin 1992 og 1998, en tapaði í bæði skiptin. Árið 1993 tilnefndi Bill Clinton hana til þess að vera í forsvari fyrir Bandaríkin hjá Sameinuðu þjóðunum. Ferraro lést 26. mars 2011. ÞETTA GERÐIST 12. JÚLÍ 1984 Geraldine Ferraro útnefnd varaforsetaefni MERKISATBURÐIR 1636 Um 35 Íslendingar eru keyptir lausir úr Barbaríinu. 1690 Orrustan við Boyne: mótmælendaher Vilhjálms 3. sigrar kaþólskan her Jakobs 2. á Írlandi. 1906 Dreyfusmálið: Alfred Dreyfus fær uppreisn æru rúmlega áratug eftir að hann var dæmdur sekur fyrir landráð. 1932 Norskir hermenn leggja hluta Austur-Grænlands undir sig og kalla Eirik Raudes Land. 1962 Hljómsveitin Rolling Stones stígur á svið í fyrsta skipti, í Marquee-klúbbnum í London. 1975 Saó Tóme og Prinsípe fá sjálfstæði frá Portúgal. 1979 Kíribatí fær sjálfstæði frá Bretlandi. 2006 Ísraelskar hersveitir ráðast inn í Líbanon í kjölfar þess að Hezbollah tók tvo ísraelska hermenn í gíslingu. Við verðum bæði með opið hús og útgáfuteiti í dag til að halda upp á afmælið,“ segir Solveig Theodórsdóttir, formaður Heimilisiðnaðarfélagsins, spurð hvernig eigi að halda upp á dag- inn. „Bókin Faldar og skart kemur út í dag í samstarfi við bókaútgáfuna Opnu og við ætlum að fagna því saman hér í Nethyl 2e eftir klukkan fjögur.“ Solveig segir bókina einstæða og að Sigrún sé ein frumkvöðla í því að endur gera gamla íslenska búninginn sem hafi nánast verið horfinn af sjónar- sviðinu. „ Faldbúninganámskeiðin eru núna ein vinsælustu námskeiðin hjá okkur, en við erum líka með nokkur námskeið á ári í þjóðbúningasaum og þá er ég að tala um peysuföt og upphlut. Auk þess erum við með alls kyns önnur námskeið sem njóta mikilla vinsælda.“ Hundrað ár eru langur tími en Solveig segir hlutverk félagsins þó ekkert hafa breyst. „Það er alveg það sama og það hefur verið frá upphafi,“ segir hún . „Það hefur alla tíð verið markmið félagsins að vernda og efla þjóðlegan íslenskan heimilisiðnað. Stuðla að vöndun hans og fegurð og vekja áhuga landsmanna á að búa til fallega og nytsama hluti með rætur í þjóðlegum menningararfi.“ Solveig segir tæplega 800 manns vera skráða í félagið, en auðvitað séu félagsmenn misvirkir. Það sé þó síst að draga úr áhuganum, enda sé óhætt að segja að hann hafi gengið í endurnýjun lífdaga á síðustu árum. HFÍ hefur unnið samkvæmt UNESCO-samningi um menningar- erfðir, sem mennta- og menningar- málaráðuneytið gerði árið 2003, og skömmu áður en Katrín Jakobs- dóttir lét af störfum sem mennta- og menningar málaráðherra var undir- ritaður samningur milli HFÍ og ráðuneytisins um fast framlag frá ríkinu til stuðnings rekstri félagsins. Solveig segir þó fjárhagslegt bolmagn félagsins ekki mikið, en sem betur fer séu félagsmenn duglegir í sjálfboða- starfi, enda hafi starfsemin byggst á því frá upphafi. Hið hundrað ára gamla félag er því enn í fullu fjöri og sýnir engin elli- merki og fullyrðir Solveig að það sé síungt. „Enda tileinkar það sér nýjar hugmyndir og nýja tækni og nýtir sér í kennslu. Það er engin stöðnun í hand- verkinu, sem betur fer.“ fridrikab@frettablladid.is Hundrað ára félag með átta hundruð félagsmenn Stofnfundur Heimilisiðnaðarfélags Íslands var haldinn 12. júlí 1913 og fagnar félagið því 100 ára afmæli í dag. Margt verður gert til að minnast afmælisins og ber þar hæst útgáfu bókarinnar Faldar og skart eft ir Sigrúnu Helgadóttur. FORMAÐURINN Solveig Theodórsdóttir segir engin ellimerki á starfsemi hins hundrað ára gamla Heimilisiðnaðarfélags sem fagnar afmælinu með opnu húsi í dag. Með henni á myndinni er Guðbjörg Inga Hrafnsdóttir, starfsmaður HFÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.